Innlent

Tekinn dópaður undir stýri

Lögregla stöðvaði ökumann á Hverfisgötu í Reykjavík í nótt, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Hann var réttindalaus eftir að hafa verið sviftur ökuréttindum áður, auk þess sem fíkniefni fundust á honum og farþegum í bílnum.

Fólkinu var sleppt að yfirheyrslum loknum en verður kært fyrir vörslu og meðferð fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×