Fleiri fréttir

Geta ekki gengið lengra en nemur agavaldi biskupsins

Biskup Íslands gerir athugasemdir við nýjar vinnureglur Selfosskirkju. Reglurnar eiga að sporna gegn kynferðisbrotum. „Menn hljóta að breyta þessum reglum,“ segir sóknarprestur Selfosskirkju.

Stjórn OR haldið utan við stöðuna í sölu á Perlunni

Aðili sem bauð 1.689 milljónir króna í Perluna fær frest út mars til að gera arðsemismat. Stjórn OR var ekki upplýst áður en málið var gert opinbert. Óheppilegt játar stjórnarformaðurinn. Engin leynd sé yfir málinu.

Þriðjungur ungra Bandaríkjamanna lent í handtöku

Nær þriðjungur Bandaríkjamanna sem orðnir eru 23 ára gamlir hafa lent í því að verða handteknir einu sinni eða oftar á ævinni en þá eru umferðarlagabrot ekki tekin með í dæmið.

Danadrottning fær uppreisn æru sem listmálari

Margrét Þórhildur Danadrottning hefur fengið nokkra uppreisn æru sem listmálari í upphafi vikunnar en í gær seldust tvær blýantsteikningar eftir hana á verði sem var töluvert yfir matsverði þeirra.

Yfir 900 létust á Filippseyjum

Tala látinna á Filippseyjum eftir hitabeltisstorminn Washi er komin yfir 900 manns og nokkur hundruða er enn saknað.

Taldir hafa reynt að breiða yfir brotið með skjalafalsi

Saksóknari telur að tilgangur Glitnismanna með tíu milljarða láni til Milestone hafi verið að koma í veg fyrir að bréf í bankanum hryndu. Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason eru ákærðir fyrir umboðssvik.

Falsaður þúsundkall í banka

Lögreglunni á Selfossi barst nýverið tilkynning um falsaðan þúsund króna seðil sem fannst innan um aðra þúsund króna seðla í bankaútibúi á Selfossi. Ekki er vitað hvenær né með hvaða hætti seðillinn barst til bankans. Engin önnur tilvik hafa komið til lögreglu og virðist því sem um eitt einstakt tilvik sé að ræða.

Kröfuhafar nálgast Hannes

FI fjárfestingar, félag Hannesar Smárasonar, var úrskurðað gjaldþrota á föstudag. Skilanefnd Glitnis mun í kjölfarið stefna Hannesi vegna 400 milljóna króna sjálfsábyrgðar sem hann var í fyrir lánum til félagsins.

Síld á fjörum segull á tugþúsundir fugla

Dauð og deyjandi síld á fjörum í Breiðafirði dregur að sér þúsundir fugla. Fjörutíu hafernir sáust við Jónsnes. Rotnandi síld gefur frá sér grút og óþef í þíðunni. Veiði og síldarsýkingu kennt um. Hafró fer til rannsókna í janúar.

ESB rannsaki aðstæður í Tíbet

Kínversk stjórnvöld hafa þvertekið fyrir að hleypa eftirlitsfólki frá Evrópusambandinu til Tíbet til að kynna sér aðstæður þar.

Fjalla átti um tölvurannsókn

Áhorfendum og fjölmiðlum hefur verið vísað frá réttarhöldunum yfir bandaríska hermanninum Bradley Manning.

NATO styrki breytt rafkerfi á varnarsvæði

Íslenzk stjórnvöld hafa samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu sótt um styrk til Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins (NATO) til að skipta um rafkerfi í stjórnstöð loftvarnakerfisins á Keflavíkurflugvelli og í mannvirkjum á varnarsvæðinu á vellinum, sem notuð eru vegna loftrýmisgæzlu NATO. Í þessum mannvirkjum er notuð 110 volta spenna, sem er arfleifð frá tíma varnarstöðvar Bandaríkjanna, en staðallinn á Íslandi er 230 volt.

Eldri karlmenn hrifnir af skötu

Eldri karlmenn virðast hrifnastir af skötu ef marka má niðurstöður könnunar MMR um skötuát á Þorláksmessu.

Icesave vistað hjá Össuri

Ráðuneytisstjórar forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins ásamt sérfræðingi í málefnum EFTA-dómstólsins mættu í gær á fund utanríkismálanefndar Alþingis til að skýra hvaða ráðuneyti hafi forræði í samskiptum Íslands við ESA vegna Icesave-dómsmálsins. Sögðu þeir málið heyra undir utanríkisráðherra.

Um heim allan lýsa jólaljósin á aðventu

Kristnar þjóðir hafa hver sinn sið við undirbúning jólahátíðarinnar á jólaföstunni, sem við köllum í daglegu tali aðventu. Aðventan á það þó sameiginlegt alls staðar að lýsa upp hjörtu mannanna, færa okkur birtu og yl og gleðja hjörtu barnanna.

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna að því er fram kemur í tilkynningu.

Áreynslulaust nám framtíðin?

Ný rannsókn, sem fjallað var um í tímaritinu Science í síðustu viku, bendir til þess að hægt sé að nýta heilaörvandi tækni til að auka færni eða þekkingu einstaklinga án áreynslu.

Kötturinn Stewie svæfir litla barnið

Myndband sem sýnir köttinn Stewie svæfa kornabarn hefur vakið mikla athygli á internetinu. Stewie virðist vera jafn undrandi á afreki sínu og áhorfendur.

Arctic Trucks kynnir eyðimerkurjeppa

Íslenska fyrirtækið Arctic Trucks kynnir nú nýjan jeppa sem er sérhannaður fyrir sandauðnir Austurlanda nær. Á vefsíðu sjónvarpsþáttarins Top Gear má finna umfjöllun um þessa nýjustu afurð fyrirtækisins.

Ökumenn bakka á í jólastressinu

Um tuttugu árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is. Það eru töluvert margir árekstrar miðað við það sem gengur og gerist.

Mannát í hollenskum sjónvarpsþætti

Hollensku þáttastjórnendurnir Dennis Storm og Valerino Zeno ákváðu að bragða á holdi hvors annars. Hluti af kviði og rasskinn voru á boðstólunum.

Perlan gæti orðið ferðaþjónustumiðstöð með hóteli og heilsulaugum

Perlan verður að ferðaþjónustumiðstöð með heilsulaugum, hóteli, útsýnispalli og fleiru ef skipulagsyfirvöld Reykjavíkur fallast á hugmyndir hæstbjóðandi fjárfesta. Orkuveitan hefur skrifað upp á viljayfirlýsingu um söluna en tilboðið hljóðar upp á tæpan einn komma sjö milljarða króna.

5 af 1800 ölvaðir í eftirliti lögreglu

Átján hundruð ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglu. Fimm ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og einn var undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.

Hvutti þefaði uppi kannabisræktanir í íbúðarhúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvær kannabisræktanir í Kópavogi fyrir helgina. Um var að ræða kannabisræktun í tveimur íbúðum í sama fjölbýlishúsinu. Í annarri þeirra var lagt hald á tæplega 30 kannabisplöntur og næstum 200 græðlinga.

Gras í Garðabæ

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Garðabæ á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 20 kannabisplöntur, fjármuni og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Tveir karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar og játuðu þeir aðild sína að málinu.

Notaði trúlofunarhringinn til að sleppa úr gröf sem unnustinn gróf

Maður sem gróf unnustu sína lifandi í skóglendi í Englandi hefur verið fundinn sekur um tilraun til morðs. Marcin Kaspzrak skaut kærustu sína með rafbyssu, vafði utan um hana límbandi og stakk henni í pappakassa. Kassann gróf hann síðan í skóglendi nálægt Huddersfield í maí síðastliðnum. Konan slapp úr prísundinni með því að nota demants-trúlofunarhringinn sem Marcin hafði gefið henni. Með hringnum tókst henni að skera af sér límbandið og síðan gat hún grafið sig upp á yfirborðið og leitað hjálpar.

Aratúnsfjölskyldan áfrýjar ekki málinu

Aratúnsfjölskyldan ætlar ekki að áfrýja sýknudómi í meiðyrðamáli sem fjölskyldan höfðaði gegn Trausta Laufdal Aðalsteinssyni, sem bloggaði á vefsvæði DV. Trausti kallaði fjölskylduna meðal annars bilað lið og "mansonfjölskyldu sem ætti að vista í vel afgirtu búri í húsdýragarðinum".

Mótmælin í Kaíró halda áfram

Að minnsta kosti einn hefur látið lífið Í Kaíró höfuðborg Egyptalands í dag í átökum á milli mótmælenda og stjórnarhersins í landinu. Aukin harka hefur færst í mótmælin síðustu daga og frá því á föstudag hafa tólf fallið í átökunum. Öryggissveitir stjórnvalda ruddust inn á Frelsistorgið í miðborginni fyrir dögun og ruddu torgið.

Aratúnsfjölskyldan tapaði meiðyrðamáli í héraðsdómi

Trausti Laufdal Aðalsteinsson bloggari var í dag sýknaður af meiðyrðastefnu vegna ummæla sem hann viðhafði á bloggsíðu á DV. Það var fjölskylda í Aratúni sem stefndi Trausta en hann mun meðal annars hafa kallað fólkið "bilað lið“ og "mansonfjölskyldu sem ætti að vista í vel afgirtu búri í húsdýragarðinum“.

Helmingi meiri jólabjór seldur en í fyrra

Segja má að jólabjórinn hafi rokið út úr Vínbúðunum fyrir þessi jólin. Um 48%, eða nærri helmingi meira, hefur selst af bjórnum í ár en í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Vínbúðanna.

Grunur um salmonnellu smit

Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna að því er fram kemur í tilkynningu.

Úlfar keppir um Gourmand

Uppskriftabók Úlfars Eysteinssonar, Úlfar eldar, var nýverið tilnefnd sem framlag Íslands á hinum virtu Gourmand verðlaunum í flokknum besta uppskriftabók matreiðslumeistara.

„Hinn mikli arftaki“ tekur við í N-Kóreu

Tæplega þrítugur huldumaður verður næsti leiðtogi Norður-Kóreu. Hann, Kim Jong Un mun taka við af föður sínum Kim Jong Il sem lést um helgina 69 ára að aldri.

Undirbúa snjóframleiðslu í Ártúnsbrekku

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins stefna að því að koma upp snjóbyssu við skíðasvæðið í Ártúnsbrekku. Að sögn Magnúsar Árnasonar, framkvæmdastjóra skíðasvæðanna, er um tilraunaverkefni að ræða, en tilgangurinn er meðal annars að geta boðið upp á fleiri skíðadaga á vetri og sýna fram á kosti snjóframleiðslu.

Reynt að brjótast inn í Skíðaskálann í Hveradölum

Tilraun var gerð til innbrots í Skíðaskálann í Hveradölum aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru tvær rúður við hlið útihurðar brotnar og sá sem þarna var að verki náði að teygja sig í læsinguna og opna dyrnar. Það virtist ekki duga honum því hann hafði losað um þolinmóðana í hurðarlömunum, hefur væntanlega ætlað að losa hurðina af hjörum en horfið frá því. Ekki var að sjá að farið hafi verið inn í húsið.

Rösklega 40% borða skötu

Um 41,8% landsmanna ætlar að borða skötu á Þorláksmessu þessi jólin, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar. Um 58,2% ætla hins vegar ekki að borða skötu þann daginn. Niðurstöður könnunarinnar, sem MMR gerði, sýna jafnframt að nokkur munur er á því hvort fólk ætlaði að borða skötu á Þorláksmessu eftir kyni og búsetu en þó sérstaklega eftir aldri. Af þeim sem tóku afstöðu ætluðu fleiri karlar en konur að borða skötu á Þorláksmessu eða 46,6% karla samanborið við 37% kvenna.

Sjá næstu 50 fréttir