Kröfuhafar nálgast Hannes 20. desember 2011 06:45 Hannes Smárason
FI fjárfestingar, félag Hannesar Smárasonar, var úrskurðað gjaldþrota á föstudag. Skilanefnd Glitnis mun í kjölfarið stefna Hannesi vegna 400 milljóna króna sjálfsábyrgðar sem hann var í fyrir lánum til félagsins. FI fjárfestingar ehf., félag í eigu Hannesar Smárasonar, var tekið til gjaldþrotaskipta á föstudag. Í kjölfarið mun skilanefnd Glitnis geta krafið Hannes um 400 milljónir króna vegna sjálfskuldarábyrgðar sem hann gekkst undir þegar FI fjárfestingar, sem hétu áður Fjárfestingafélagið Primus ehf., fékk tvö kúlulán hjá bankanum í lok árs 2007. Lánin standa nú í um 4,7 milljörðum króna. Skilanefnd Glitnis höfðaði mál á hendur Hannesi og félaginu vegna lánanna tveggja. Í febrúar var félaginu gert að greiða skilanefndinni 4,7 milljarða króna vegna þessa. Dómurinn staðfesti auk þess fyrsta veðrétt í atvinnuhúsnæði Hannesar að Faxafeni 12 og fimm sumarbústaðalóðum sem hann átti við Illagil í Grafningi. Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Hannesi bæri ekki að greiða sjálfskuldarábyrgðina „að svo stöddu". Því var ekki hægt að innheimta hana fyrr en fasteignin og sumarbústaðalóðirnar yrðu seldar á uppboði. Það gerðist nýverið og fengust nokkrir tugir milljóna króna fyrir þær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins fór uppboðið á sumarbústaðalóðunum fram í 20 stiga frosti. Í kjölfarið gerði skilanefndin tilraun til fjárnáms hjá FI fjárfestingum. Í úrskurði héraðsdóms, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að ekki hafi tekist að boða Hannes til fjárnámsgerðar „þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir". Fjárnáminu lauk án árangurs. Lögmaður Hannesar hélt því fram að aðfarargerðirnar væru ólögmætar. Því var héraðsdómur ósammála og úrskurðaði á föstudag að bú FI fjárfestinga yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Skilanefndin mun í kjölfarið höfða mál á hendur Hannesi og krefjast þess að hann greiði 400 milljónir króna vegna sjálfskuldarábyrgðarinnar. Heimildir herma að allur málatilbúnaður liggi fyrir. Einungis eigi eftir að birta Hannesi stefnuna. - þsj
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira