NATO styrki breytt rafkerfi á varnarsvæði 20. desember 2011 05:00 Styrkir NATO renna til reksturs loftvarnakerfisins sem er þáttur í sameiginlegum vörnum bandalagsins .Fréttablaðið/vilhelm
Íslenzk stjórnvöld hafa samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu sótt um styrk til Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins (NATO) til að skipta um rafkerfi í stjórnstöð loftvarnakerfisins á Keflavíkurflugvelli og í mannvirkjum á varnarsvæðinu á vellinum, sem notuð eru vegna loftrýmisgæzlu NATO. Í þessum mannvirkjum er notuð 110 volta spenna, sem er arfleifð frá tíma varnarstöðvar Bandaríkjanna, en staðallinn á Íslandi er 230 volt. Eftir brotthvarf varnarliðsins frá Íslandi 2006 tóku íslenzk stjórnvöld við ábyrgð á mannvirkjum NATO og framkvæmdum á vegum mannvirkjasjóðsins sem gistiríki. Ísland átti áður ekki sjálfstæða aðild að sjóðnum, þar sem Bandaríkin sátu þar fyrir Íslands hönd. Ísland byrjaði að borga í sjóðinn 2007 og árið eftir var samþykktur fyrsti styrkurinn til Íslands eftir brotthvarf varnarliðsins. Styrkurinn rennur til reksturs og viðhalds á loftvarnakerfinu, sem Landhelgisgæzlan rekur nú. Hann nemur þremur milljónum evra, eða um 480 milljónum króna, og dreifist á tímabilið 2008-2015. Umsóknin vegna breytingar á rafmagnskerfinu er enn til umfjöllunar. Þá er í undirbúningi að sækja um fé til mannvirkjasjóðsins vegna tveggja annarra verkefna, annars vegar uppfærslu á hugbúnaðarkerfi loftvarnakerfisins og hins vegar vegna fyrirhugaðrar aðlögunar þess að nýju og heildstæðu loftvarnakerfi NATO á árunum 2016-2018.- óþs
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira