Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síminn vill að símhleranir færist yfir til lögreglunnar Síminn hefur ritað innanríkisráðuneytinu bréf þar um að fjarskiptafyrirtæki séu losuð undan því að annast tengingar þegar símhleranir eru notaðar við rannsóknir sakamála. Lögregla sjái um málin sjálf. 22.12.2011 10:15
Amagermaðurinn í lífstíðarfangelsi Marcel Lychau Hansen, 46 ára gamall karlmaður sem danskir fjölmiðlar kalla Amagermanninn, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir tvö morð og fjölmargar nauðganir. Þegar Jacob Scherfig, aðaldómari í málinu, las upp dóminn var klappað í réttarsalnum. Á meðal þeirra sem voru samankomnir í réttarsalnum voru nokkrir þeirra sem hinn dæmdi hafði ráðist á. Það var undirréttur í Kaupmannahöfn sem kvað upp dóminn. 22.12.2011 10:13
Akstur Strætó um jól og áramót Breytingar verða á akstri Strætó bs. um jól og áramót, eins og jafnan á stórhátíðum. Á Þorláksmessu, föstudaginn 23. desember, verður ekið samkvæmt hefðbundinni áætlun á virkum degi. 22.12.2011 10:13
Mest sæði sent úr Grábotna Lokadagur vertíðar sauðfjársæðingastöðva var í gær, að því er fram kemur á vef Landssambands sauðfjárbænda. 22.12.2011 10:00
Staðfesta sakhæfismatið á Breivik Nefnd réttargeðlækna, sem hafði það hlutverk að yfirfara geðlæknismatið á Anders Breivik fjöldamorðingja, gerir engar efnislegar athugasemdir við við matið. Áður höfðu réttargeðlæknar, sem töluðu við Breivik og mátu sakhæfi hans, komist að þeirri niðurstöðu að hann væri ósakhæfur sökum geðveiki. 22.12.2011 09:52
Segir fréttaskrif í beinni úr dómsal hafa spillt málinu Verjandi Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, telur að fréttaflutningur af málinu úr dómsal hafi spillt fyrir því. Hann gagnrýnir héraðsdómara harðlega í greinargerð sem lögð hefur verið fyrir Hæstarétt. 22.12.2011 09:30
Heimsóknir á söfn tvöfaldast Heildarfjöldi safngesta hefur nærri því tvöfaldast frá árinu 1995. Samkvæmt tölum Hagstofunnar var áætluð aðsókn að söfnum og tengdri starfsemi á síðasta ári ríflega 1,6 milljón gesta en þeir voru 829 þúsund árið 1995. 22.12.2011 09:20
Óskarinn fyrir Citizen Kane fór á hundrað milljónir Óskarsverðlaunastyttan sem Orson Welles fékk fyrir að skrifa handritið að kvikmyndinni Citizen Kane árið 1941 seldist á uppboði í Kalíforníu í gær á 850 þúsund dollara eða rúmar hundrað milljónir króna. 22.12.2011 09:02
Leiga þarf að hækka og ójafnvægi ríkir á markaði Leiga þarf að vera þriðjungi hærri em markaðurinn vill borga til að standa undir ávöxtun fjárfesta sem myndu standa að leigufélagi. Kaupverð íbúða þarf líka að hækka til að jafnvægi náist við byggingarkostnað. 22.12.2011 09:00
Rannsókn lýkur varla fyrir jól Ólíklegt er að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu muni ljúka rannsókn sinni á máli þar sem átján ára stúlka hefur kært Egil Einarsson og unnustu hans fyrir nauðgun fyrir jól, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 22.12.2011 08:45
Finnar kyrrsetja skip: Patriot flaugar merktar sem flugeldar Hafnaryfirvöld í finnsku borginni Kotka hafa stöðvað för flutningaskips sem siglir undir fána eyjarinnar Manar. Skipið var á leið til Kína en um borð fundust bandarískar Patriot eldflaugar og öflugt sprengjuefni. Innanríkisráðherra Finnlands segir að í farmskrá hafi eldflaugarnar, sem eru af fullkominni gerð, verið skráðar sem flugeldar. Skipið, sem heitir MS Thor Liberty, var að koma frá Þýskalandi. 22.12.2011 08:11
Mannskæðar árásir í Írak Að minnsta kosti átján létust og fimmtán eru særðir eftir röð sprengjuárása í Bagdad í Írak í morgun. Tvær vegasprengjur sprungu í einu héraðinu á meðan bílsprengja olli usla í öðru. Árásir af þessu tagi eru enn algengar í Írak þótt dregið hafi töluvert úr ofbeldinu þar í landi síðustu misserin. 22.12.2011 08:08
Eftirlitsmenn Arababandalagsins til Sýrlands Sérskipaðir eftirlitsmenn frá Arababandalaginu kom líklegast til Sýrlands í dag en þeim er falið að fylgjast með þróun mála í landinu og er vonast til að vera þeirra þar dragi úr átökunum sem þar hafa geisað síðustu mánuði. 22.12.2011 08:07
Innan við 20 mínútur á leiðinni 83 prósent þeirra sem koma sem gestir á Landspítalann eru tuttugu mínútur eða styttri tíma á leiðinni. Þetta eru niðurstöður ferðavenjukönnunar sem gerð var fyrir Nýja Landspítalann, opinbert hlutafélag um nýja byggingu við spítalann. 22.12.2011 08:00
Evrópuríki mega rukka Evrópudómstóllinn hefur hafnað rökum bandarískra og kanadískra flugfélaga, sem kærðu evrópsk stjórnvöld fyrir að leggja kolefnisgjald á flug til Evrópu. 22.12.2011 08:00
Yngstu voru einungis fjórtán ára Vinnueftirlitið hefur vísað til lögreglu málum fjögurra fiskvinnslufyrirtækja meðal annars vegna brota á reglugerð um vinnu barna og unglinga. 22.12.2011 07:45
Páfagaukspiltur stal pólskum seðlum Tvítugur piltur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot. Sakaferill hans er orðinn æði langur þótt hann sé ungur að aldri. 22.12.2011 07:45
Nýtt tilboð fylgi hótellóð með Perlunni Dagur B. Eggertsson, forseti borgarstjórnar, segir að þeir sem átt hafi hæsta tilboð í Perluna hafi aðeins gert fyrirvara um arðsemi kaupanna. Allir sem tekið hafi þátt í útboðinu hafi verið með einhverja fyrirvara. 22.12.2011 07:30
Fróaði sér fyrir framan stúlknahóp Hálfsextugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að fróa sér fyrir framan hóp stúlkna á 14. og 15. aldursári í Elliðaárdal. 22.12.2011 07:15
Par ruddist inn í heimahús og gekk í skrokk á konu - missti meðvitund Kona var flutt meðvitundarlaus með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans um klukkan hálf fjögur í nótt, eftir fólskulega líkamsárás í heimahúsi í Hafnarfirði. 22.12.2011 07:05
Í vandræðum í veðurhamnum Fólk lenti víða í hættulegum aðstæðum í illviðri sem gekk yfir landið í gærkvöldi, en ekki er vitað til að neinn hafi slasast. Björgunarsveit var kölluð út til að aðstoða fólk í þremur bílum á Ólafsfjarðarvegi upp úr miðnætti, en þar þorði fólk ekki að hreyfa bílana vegna óveðurs og flug hálku. 22.12.2011 07:03
Dauð síld eykur samstarf skipa „Útgerðirnar taka fréttir af dauðri síld á Breiðafirði mjög alvarlega og munu leggja sig allar fram um að áhrif veiðanna verði eins lítil og mögulegt er,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri sambandsins. 22.12.2011 07:00
Sóknarnefndar og presta að marka stefnu Prestar og sóknarprestur Selfosskirkju eru ekki á einu máli um hvort heimilt sé öðrum en biskupi að meina prestum sem uppvísir hafa orðið að kynferðisbrotum að þjóna í kirkjunni. 22.12.2011 06:15
Hvatt til neyðarfundar hjá SÞ Sýrlenskir stjórnarandstæðingar hvetja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að koma saman til neyðarfundar vegna blóðbaðsins í Sýrlandi, sem sagt er hafa náð nýjum hæðum á allra síðustu dögum. 22.12.2011 06:00
Á skilorð eftir árásir og hótanir Karlmaður hefur í Héraðsdómi Reykjaness verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast með ofbeldi á þáverandi sambýliskonu sína, hrinda henni í gólfið, kýla hana fyrir framan tveggja ára barn hennar og sparka nokkrum sinnum í maga hennar. Bótakröfu konunnar var vísað frá dómi. 22.12.2011 06:00
Myndaði stjörnu í foreldrahúsum Myndir ljósmyndarans Magnúsar Unnars af ofurfyrirsætunni Elisu Sednaoui prýða forsíðu bandaríska tímaritsins the journal. Sednaoui hefur setið fyrir í fjölda virtra tímarita og sýnt fyrir stærstu nöfnin í tískubransanum. 22.12.2011 06:00
Íraksstjórn vill fá Hashemi afhentan Spenna milli þjóðernishópanna þriggja í Írak magnast á ný, strax og Bandaríkjaher yfirgefur landið. Forsætisráðherrann, sem er sjía-múslimi, krefst þess að kúrdar láti af hendi aðstoðarforsætisráðherrann, sem er súnní-múslimi. 22.12.2011 05:15
Fjárfest fyrir 200 milljónir í Breiðdalsá á nokkrum árum Strengir hafa gert tíu ára leigusamning um veiðiréttinn í Breiðdalsá. Þröstur Elliðason segir erfitt að rækta upp laxveiðiár á Austur- og Norðurlandi. Endurheimtur laxaseiða séu lakar. 125 þúsund seiðum sleppt í vor. 22.12.2011 05:00
Nötrandi og í miklu uppnámi Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tveir karlmenn sem ákærðir hafa verið fyrir að nauðga konu í bíl við Reykjavíkurflugvöll skuli sæta gæsluvarðhaldi til 13. janúar. 22.12.2011 05:00
Á að vinna gegn kreppunni Seðlabanki Evrópusambandsins skrúfaði í gær frá lánakrönum sínum og útvegaði 523 evrópskum bönkum lán upp á samtals 489,2 milljarða evra, í von um að geta með þessu liðkað verulega fyrir viðskiptum á evrusvæðinu. Þessi fjárhæð samsvarar 78.000 milljörðum króna. 22.12.2011 01:00
Umhleypingar tefja farþegaflug Talsverðar seinkanir urðu í gær í innanlandsflugi. Að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, var um að kenna erfiðum brautarskilyrðum í Reykjavík. 22.12.2011 00:15
Gefa von um líf úti í geimnum Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa fundið tvær reikistjörnur utan okkar sólkerfis sem eru svipaðar Jörðinni að stærð. Þetta er í fyrsta sinn sem plánetur af slíkri stærð finnast og gefa von um að líf sé að finna á fjarlægum hnöttum. 21.12.2011 23:45
Kærður fyrir manndráp eftir að hafa látið bróður sinn borða kókaín Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp en hann er grunaður um að hafa sannfært bróður sinn um að borða tæplega 30 grömm af kókaíni. 21.12.2011 23:30
Tekin í röð dýrlinga eftir að 11 ára piltur læknaðist Hinn 11 ára Jake Finkbonner þjáðist af undarlegri holdétandi bakteríusýkingu og var nær dauða en lífi í nokkra mánuði. Eftir að Jake læknaðist á undraverðan máta hefur Vatíkanið nú ákveðið að kona frá 17. öld verði fyrsti ameríski dýrlingurinn af indjánaættum. 21.12.2011 22:30
Kórsöngur í boði Svarthöfða Lokaprófin geta tekið á og þegar jólin nálgast gefst nemendum sjaldnast tími til njóta jólaandans. Nemendur við Tækniháskólanum í Algonquin ákváðu að ljá prófatímabilinu smá jólastemningu og fengu Svarthöfða til stjórna kórsöng. 21.12.2011 22:00
Eignaðist barn með tvö höfuð og er í skýjunum Brasilísk kona sem eignaðist barn með tvö höfuð er hæst ánægð með nýja fjölskyldumeðliminn. Í anda jólanna skýrði hún piltinn - eða piltana - Jesus og Emanoel. 21.12.2011 21:30
Halda gleðileg jól á sporbraut um jörðu Eldflaug með þrjá geimfara var skotið á loft í Kasakstan í dag. Skotið heppnaðist afar vel og var flaugin komin á sporbraut um jörðu nokkrum mínútum seinna. 21.12.2011 20:30
Össur: Það á enginn frátekið pláss í þessari ríkisstjórn Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að það gefi aðildarviðræðum við Evrópusambandið trúverðugleika að hafa Jón Bjarnason sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 21.12.2011 20:17
Íslendingar búnir að kaupa 500 þúsund lítra af jólabjór Íslendingar eru bjórþyrstir þessi jól líkt og hin fyrri en tæplega fimmhundruð þúsund lítrar af jólabjór hafa nú þegar verið seldir. Sá allra vinsælasti er danskur en íslenski Víkingurinn veitir honum harða samkeppni. 21.12.2011 19:30
Ofurtalan kom upp - en enginn með aðaltölurnar réttar Ofurtalan kom upp í Víkingalottóinu í kvöld en enginn var með allar tölur réttar og því gekk vinningurinn ekki upp, enn hann hljómaði upp á um 4 milljarða króna. 21.12.2011 19:20
Pössum okkur að borða ekki of mikið yfir hátíðarnar "Þó að við tökum hraustlega til matar þá er samt sem áður gott að hafa þessi heilræði í farteskinu; að borða ekki of mikið - og sérstaklega ekki alltaf of mikið,“ segir Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðingur, sem var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 21.12.2011 17:55
Svartamarkaðsviðskipti með lúðu Fisksali sér fram á svartamarkaðsviðskipti með lúðu eftir áramót. Þá tekur gildi reglugerð sjávarútvegsráðherra um almennt bann við lúðuveiðum. Friðun lúðunnar er tilkomin vegna tillögu Hafrannsóknastofnunar. 21.12.2011 20:52
Ekkert heitt vant í Innri Njarðvík og Vogum Bilun kom upp síðdegis í dag í heitavatnsstofnlögn og því er lokað fyrir heita vatnið í Innri Njarðvík og Vogum. Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki síðar í kvöld. Reynt verður að setja fréttir um framvindu verksins inn á heimasíðu fyrirtækisins, hsveitur.is, fram eftir kvöldi. 21.12.2011 18:41
Ekkert samkomulag gert um að fella niður neysluhlésgreiðslur Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara vísar því alfarið á bug að niðurfelling svokallaðra neysluhlésgreiðslna hjá leikskólakennurum hafi verið hluti samkomulags sem gert var í síðustu kjarasamningum. Leikskólakennarar hafa mótmælt niðurfellingunni en borgaryfirvöld hafa ávallt svarað því til að skýrt hafi komið fram í síðustu kjaraviðræðum að greiðslurnar myndu falla niður. Þetta segir Haraldur alrangt, ekkert ekkert samkomulag var gert, hvorki við kjarasamningsborðið né í reykfylltum bakherbergjum, eins og hann orðar það. 21.12.2011 16:07
Skógræktarfélagið og skátarnir keyptu Úlfljótsvatn Skógræktarfélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta og Skátasamband Reykjavíkur keyptu í dag jörðina að Úlfljótsvatni austast í Grafningi. Skrifað var undir kaupsamninginn í dag, en jörðin var í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Jörðina keypti Reykjavíkurbær árið 1929 á 98 þúsund krónur vegna fyrirhugaðrar virkjunar í Soginu en jörðin fluttist yfir til Orkuveitunnar við stofnun hennar enda einnig jarðhiti þar. 21.12.2011 16:03