Fleiri fréttir

Meiri spilling á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum

Ísland lendir í þrettánda sæti á spillingarlista Transparancy International en samtökin gefa árlega út listann þar sem löndum er raðað eftir því hve mikil spilling þrífst þar. Í ár mælist minnsta spillingin á Nýja Sjálandi og þar á eftir koma Norðurlöndin Danmörk, Finnland og Svíþjóð. Í fimmta sæti er Singapúr og Norðmenn ná sjötta sætinu. Íslendingar eru því samkvæmt þessum mælikvarða töluvert spilltari en frændur okkar á Norðurlöndunum. Í sætunum fyrir neðan koma lönd á borð við Þýskaland, Japan og Austurríki.

Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt í fimmta sinn

Öryrkjabandalag Íslands veitti í gær á alþjóðadegi fatlaðra hvatningarverðlaun sín í fimmta sinn. Bergþór Grétar Böðvarsson fékk verðlaunin í flokki einstaklinga fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi. Í flokki fyrirtækja og stofnana fékk Hestamannafélagið Hörður verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.

Einn forsprakka Outlaws í gæsluvarðhald - var með afsagaða haglabyssu

Karl á þrítugsaldri, sem lögregla segir að sé einn forsprakka Outlaws vélhjólaklúbbsins hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. desember vegna gruns um aðild að skotárás í austurborginni í síðasta mánuði. Hann hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu en hann var handtekinn á heimili sínu í Reykjavík á föstudag og síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær. "Við húsleit hjá manninum var lagt hald á afsagaða haglabyssu og skotfæri en nú er rannsakað hvort byssan hafi verið notuð í umræddri skotárás,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Engar yfirheyrslur hjá sérstökum í dag

Hlé var gert á yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara í dag í Glitnismálinu svokallaða. Fjölmargir voru yfirheyrðir í gær vegna málsins en í samtali við fréttastofu í dag sagði Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari að ákveðið hefði verið að gera hlé í dag og einbeita sér þess í stað að því að undirbúa næstu viku. Þrír eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Jóla popup markaður í Hörpunni í dag

Fjölmargir íslenskir hönnuðir tóku sig saman og settu upp jóla popup markað í Hörpu í gær og í dag. Af nógu er að taka og þeir sem eru í vandræðum með jólagjafirnar þetta árið finna áreiðanlega eitthvað á markaðnum. Opið er til klukkan sex í dag.

„Gaman að vinna lottóið í þetta skiptið“

Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson vann til fyrstu verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Tórínó í gær. Hafsteinn segir verðlaunin hafa komið sér skemmtilega á óvart og líkir þeim við að vinna í lottó.

Fjárlaganefnd stefnir á að klára í dag

Formaður fjárlaganefndar segir nefndina ætla að afgreiða frumvarpið til þriðju umræðu í dag. Það sé mikilvægt að klára fjárlögin og hafa þau tilbúin fyrir næsta ár. Nefndin mun funda klukkan sex í kvöld og stjórnarflokkarnir stefna að því að greiða atkvæði um málið á miðvikudag.

Þúsundir Þjóðverja fluttir á brott vegna sprengju sem fannst í Koblenz

Tugþúsundir íbúa þýsku borgarinnar Koblenz hafa verið fluttir af heimilum sínum eftir að risastór ósprungin sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni fannst í ánni Rín sem rennur í gegnum borgina. Um 45 þúsund manns þurftu að yfirgefa borgina en í dag á að reyna að aftengja sprengina sem er tæp tvö tonn af þyngd en henni var varpað á borgina af breskri sprengjuflugvél á sínum tíma.

Rússar ganga til kosninga

Í dag ganga Rússar til kosninga um neðri-deild þingsins til næstu fimm ára. Deilt hefur verið á framkvæmd kosningana en, Golos, einu sjálfstæðu eftirlitssamtök Rússlands, hafa tekið á móti fimm þúsund og þrjú hundruð kvörtunum.

Skóflustunga tekin að stúku í Eyjum

Fyrsta skóflustungan að nýrri stúku var tekin við Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum í gær í þriggja stiga frosti og snjó. Samkvæmt vefmiðlinum eyjar.net var það Eyjólfur Guðjónsson útgerðarmaður sem fékk það hlutver að taka skóflustunguna og notaði til þess stóra skurðgröfu.

Frábært skíðafæri fyrir norðan

Skíðasvæði Skagfirðinga, Akureyringa, Dalvíkinga og Siglfirðinga eru opin í dag. Umsjónarmaður skíðasvæðisins á Siglufirði segir sjö stiga frost þar, norðaustan golu og smá „jólaéljagang“. Í Hlíðarfjalli er níu gráðu frost og logn og á Dalvík er flott færi og veður eins og það er orðað í tilkynningu. Svipaða sögu er að segja frá Sauðárkróki.

Tvö umferðaróhöpp á Selfossi

Tvö umferðaróhöpp komu upp í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt og í morgun. Rétt fyrir hálf fjögur fór bíll útaf á Eyrarbakkavegi og hafnaði á skilti. Bíllinn er mikið skemmdur að sögn lögreglu en ekki urðu slys á fólki.

Skemmtistað lokað vegna fjölda gesta

Lögreglan lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt þegar í ljós kom að allt of margir voru inni á staðnum. Að sögn lögreglu gekk vel að koma fólkinu út af staðnum en eigandinn má búast við sekt vegna málsins.

Við getum breytt heiminum

Þau Páll Óskar Hjálmtýsson og Halldóra Geirharðsdóttir hafa hvort um sig leikið margvísleg hlutverk í gegnum sinn listaferil. Undanfarið hafa þau þau spreytt sig á nýju og krefjandi hlutverki sem tók verulega á, um leið og það gaf þeim nýja sýn á lífið. Halldóra heimsótti Úganda í fyrra og Haítí í október síðastliðnum en Páll Óskar fór til Afríkuríkisins Síerra Leóne. Fyrrnefnda landið er í sárum eftir náttúruhamfarir, það síðarnefnda eftir borgarastyrjöld. Á báðum stöðum vinnur UNICEF nauðsynlegt starf við að bæta lífsskilyrði barna og standa vörð um réttindi þeirra.

Dæmdur í fangelsi fyrir dónalegt húðflúr

Dómari í áströlsku borginni Ipswich dæmdi á dögunum mann í fangelsi fyrir undarlegar sakir. Maðurinn húðflúrar fólk í hjáverkum og þegar kúnni kom til hans og bað hann um kínverska táknið Ying og Yang hófst hann handa. En þegar hann var nýbyrjaður virðist hann hafa móðgast hressilega vegna einhvers sem kúnninn sagði og í stað þess að flúra táknið ákvað hann að teikna stærðarinnar getnaðarlim á bak mannsins.

Þriðji hver Dani haldið framhjá

Ný könnun leiðir í ljós að þriðji hver Dani hefur verið maka sínum ótrúr einhvern tímann á ævinni. Framhjáhaldið skiptist nokkuð jafnt milli kynja.

Á annan veg sigraði í Tórínó

Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson vann til fyrstu verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Tórínó í dag. Þetta var í 29. sinn sem hátíðin er haldin en hún er á meðal virtari hátíða í kvikmyndageiranum. Sérstök verðlaun dómnefndar hlutu franska myndin Filles '17 og mynd frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Líbanon, Tayeb, Khalas, Yalla.

Bestu og verstu plötuumslögin

Að gömlum og góðum sið fékk Fréttablaðið hóp valinkunnra andans manna til að velta fyrir sér kostum og göllum íslenskra plötuumslaga sem komið hafa út á árinu. Fjölmörg umslög voru nefnd til sögunnar og niðurstöðurnar gefur að líta hér í meðfylgjandi myndasafni.

Enginn öruggur í Game of Thrones

Handritshöfundarnir og framleiðendurnir David Benioff og D.B. Weiss veðjuðu á réttan hest þegar þeir fóru saman á fund HBO fyrir sex árum og kynntu fyrir sjónvarpsrisanum sjónvarpsþáttaröð byggða á fimm bókum George R.R. Martin, A Song of Ice and Fire. Og til varð Game of Thrones. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við David Benioff og D.B. Weiss um framtíð þáttanna og dvölina á Íslandi.

Móðir Ellu Dísar að missa íbúð sína

Móðir langveikrar stúlku er niðurbrotin eftir að henni var tilkynnt að leigusali krefst þess að þær mæðgur verði bornar út af heimili þeirra á næstunni. Dóttir hennar, Ella Dís, er enn í þrýstiöndunarvél.

Enginn með fyrsta vinning í Lottóinu

Enginn var svo heppinn að vera með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins í Lottóinu. Tæpar fjörutíu milljónir hefðu komið í hlut hins heppna og stækkar potturinn því á næsta laugardag. Fjórir hlutu annan vinning og fær hver í sinn hlut 140 þúsund krónur. Sex voru síðan með fjórar jókertölur í réttri röð en það gefur 100 þúsund krónur.

Aurburður og öskufall ógnar bænum

Lengja hefur þurft varnargarð við Hverfisfljótið undan Vatnajökli um hátt í hálfan kílómeter á tveimur árum. Aukinn aurburður og öskufall hafa hækkað yfirborð árinnar hratt sem ógnar nú nálægum bæ.

Cain hættur við framboð

Herman Cain, einn þeirra sem hefur þótt líklegur til að hreppa útnefningu Repúplikana til framboðs í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum er hættur í kapphlaupinu. Þetta tilkynnti hann rétt í þessu en beðið hefur verið eftir tilkynningu hans í nokkurn tíma. Cain var nær óþekktur viðskiptamógúll sem hafði auðgast á Pizza framleiðslu áður en hann bauð sig fram. Öllum að óvörum gekk honum nokkuð vel í kapphlaupinu og hefur stundum mælst með mesta stuðninginn á meðal kjósenda. Hneykslismálin hrúguðust þó upp að lokum en hann hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni í garð nokkurra kvenna. Þá steig kona ein fram í síðustu viku og fullyrti að hún hafi haldið við Cain, sem er giftur maður, í þrettán ár.

Kemur vel til greina að leigja Nubo Grímsstaði

Eigandi stærsta hluta jarðarinnar að Grímsstöðum á Fjöllum segir það vel koma til greina að leigja Huang Nubo jörðina svo byggja megi upp ferðaþjónustu á svæðinu. Iðnaðarráðherra hyggst hafa samband við Nubo á næstunni.

Óvenjumikið um árekstra

Óvenjumikið var um árekstra í dag og svo virðist sem sumir séu farnir að láta jólastressið hlaupa með sig í gönur þótt desember sé aðeins rétt byrjaður. Samkvæmt upplýsingum frá www.arekstur.is urðu hátt í tuttugu árekstrar í höfuðborginni í dag frá hádegi og fram til klukkan fimm. Þetta þætti í meira lagi á virkum dögum og þykir mjög mikið ef litið er til þess að nú er laugardagur.

Fjárlaganefnd tókst ekki að klára í dag

Fundi fjárlaganefndar var frestað í dag en að því hafði verið stefnt að afgreiða fjárlögin úr nefndinni í dag svo hægt verði að leggja það fyrir þingið og ræða það á þriðjudag. Það tókst þó ekki og hefur annar fundur verið boðaður á morgun, að sögn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur. Þá er eftir sem áður stefnt að því að atkvæðagreiðslan um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2012 fari fram á miðvikudag.

Heiðursglæpum fjölgar mikið

Svokölluðum heiðursglæpum hefur fjölgað mikið í Bretlandi á síðustu misserum. Með heiðursglæpum er átt við það þegar konum og stúlkum er refsað af fjölskyldum sínum. Guardian hefur nú í fyrsta sinn birt tölur yfir heiðursglæpi sem framdir eru í Bretlandi en það voru réttindasamtök íranskra og kúrdískra kvenna sem fóru fram á að tölurnar yrðu gerðar opinberar.

Jólakaffi Hringsins á Broadway

Jólakaffi Hringsins verður haldið á Broadway á morgun, fjórða desember. Kaffisamsætið hefst klukkan 13:30 en húsið verður opnað hálfri klukkustund fyrr. Í tilkynningu frá Hringskonum segir að blásið verði til glæsilegs happdrættis auk þess sem boðið verði upp á góð skemmtiatriði.

Þrjátíu og þrír fórust í bílslysi í Brasilíu

Brasilísk yfirvöld segja að þrjátíu og þrír verkamenn hafi farist þegar flutningabíll með tengivagn skall á langferðabíl sem flutti verkamenn í fylkinu Bahia í suðurhluta landsins. Lögregla segir að ökumaður flutningabílsins hafi misst stjórn á honum í beygju þegar hann var á leið niður bratta brekku nálægt bænum Miracles.

Stefnir í metsumar á Ísafirði 2013

Það stefnir í algjört metár í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar sumarið 2013 en stærsta félag heimsins í þeim bransanum, Carnival, hefur ákveðið að bæta Ísafirði inns sem viðkomustað það sumarið. Frá þessu er greint á vestfirska miðlinum Bæjarins Besta í dag. Carnival hefur lagt inn pöntun fyrir sex skip og þar á meðal eru hin frægu fley Queen Victoria og Queen Elizabeth.

Páfinn sleppur við sekt í Þýskalandi

Benedikt sextándi páfi mun sleppa við að greiða sekt vegna umferðarlagabrots sem hann framdi í Þýskalandi þegar hann heimsótti landið í september. Þar á bæ eru skýrar reglur um að menni verði að vera með öryggisbelti þegar þeir aka um í bíl en páfi klikkaði á því þegar hann rúntaði framhjá þúsundum manna í sérsmíðaða bílnum sem gengur oft undir nafninu „popemobile“.

Árborg selur eignir og lækkar skuldir

Sveitarfélagið Árborg hefur undanfarið seltt nokkrar eignir í því skyni að grynnka á skuldum. Í dag var undirritaður samningur við Stokkseyrarkirkju um kaup á Hafnargötu 10 á Stokkseyri. Í tilkynningu segir að húsið muni nýtast fyrir ýmsa starfsemi á vegum kirkjunnar.

Heiðra minningu Hermanns

„Þetta verða stærstu X-mas tónleikar frá upphafi,“ segir Úlfar Linnet, einn vina Hermanns Fannars Valgarðssonar sem féll frá langt fyrir aldur fram í byrjun nóvember. Hinir árlegu X-mas tónleikar X-ins verða að þessu sinni styrktartónleikar í minningu Hermanns, og verða haldnir í Kaplakrika hinn 20. desember næstkomandi.

Clarkson í klandri: Sjálfselska að kasta sér fyrir lest

Jeremy Clarkson stjórnandi Top Gear á BBC er enn á ný kominn í klandur vegna ummæla sinna. Á dögunum varð allt vitlaust þegar hann sagði að réttast væri að taka þá sem tóku þátt í allsherjarverkfallinu í Bretlandi í vikunni af lífi fyrir framan fjölskyldur þeirra. Nú er hann enn á milli tanna fólks í Bretlandi eftir að hafa skrifað í pistli í The Sun að þeir sem fremji sjálfsmorð með því að henda sér fyrir lest séu sjálfselskir.

Stefnt á afgreiðslu fjárlaga úr nefnd í dag

Fjárlaganefnd Alþingis stefnir að því að afgreiða fjárlög fyrir árið 2012 úr nefndinni nú síðdegis. Stjórnarflokkarnir stefna jafnframt að atkvæðagreiðslu um fjárlögin á miðvikudag.

Byggt á Hólmsheiði og fé veitt á Hraunið

Ákveðið hefur verið að veita fé til byggingar nýs fangelsis á Hólmsheiði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Að auki er rætt um að setja sérstaka fjárupphæð til nauðsynlegra endurbóta á fangelsinu á Litla-Hrauni.

Hálka víðsvegar um land

Hálka er á Hellisheiði, í þrengslum og í uppsveitum en á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða snjóþekja. Á vesturlandi er snjóþekja eða hálka og sömuleiðis á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Á vestfjörðum og norðurlandi er hálka og snjóþekja á flestum leiðum en snjókoma er í kringum Akureyri og á Tjörnesi en éljagangur í kringum mývatn.

Stútar í Hveragerði og einn undir áhrifum fíkniefna á Selfossi

Tveir ökumenn voru teknir í Hveragerði í nótt grunaðir um ölvunarakstur. Og lögreglan á Selfossi handtók mann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bíl hans fannst einnig lítilræði af fíkniefnum. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem tekin voru af honum blóð- og þvagsýni.

Ryskingar í Vestmannaeyjum

Karlmaður um tvítugt var handtekinn í Vestmannaeyjum um klukkan sjö í morgun eftir að hafa lent í átökum við annan mann. Lögreglumenn voru á eftirlitsferð um bæinn þegar þeir sáu tvo menn takast á, og handtóku annan í kjölfarið. Hinn maðurinn var með áverka á höfði en taldi sig ekki þurfa á læknishjálp að halda og gat því farið heim. Sá handtekni sefur nú úr sér áfengisvímu í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag.

Skíðasvæðin fyrir norðan opin í dag

Þeir Sauðkrækingar sem beðið hafa eftir því að komast á skíði geta tekið gleði sína því skíðasvæði þeirra Tindastóll verður opnað í dag klukkan tólf. Staðarhaldari segir mikinn og góðan snjó á svæðinu. Þá er skíðasvæði Dalvíkinga í Böggvisstaðarfjalli er opið frá tólf til fjögur í dag og skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli er opið frá tíu til fjögur.

Sjá næstu 50 fréttir