Fleiri fréttir

Stöðvuðu bát á ólöglegum veiðum út af Siglufirði

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð línubát að meintum ólöglegum veiðum í lokuðu hólfi á Fljótagrunni, norðvestur af Siglufirði í gærkvöldi og var skipstjóranum gefin fyrirmæli um að hætta veiðum og halda til Siglufjarðar.

Skemmdarverk á Selfossi

Mikil skemmdarverk voru í nótt unnin á stórri vinnuvél, sem stóð við steypustöðina í útjaðri Selfoss.

Farþegar á leið til Alicante gistu í Manchester

Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Alicante á Spáni, varð að lenda í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, eftir að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri laus í einu farangursrými vélarinnar.

Flugfreyjur fresta verkfalli

Flugfreyjur hjá Icelandair undirrituðu nýjan kjarasamning við félagið hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi og verður hann nú borinn undir atkvæði.

Gaddafi grafinn á leynilegum stað í dag

Ákveðið hefur verið að grafa Muammar Gaddafi fyrrum leiðtoga Líbíu á leynilegum stað í dag. Þetta kemur fram í máli talsmanns bráðabirgðastjórnar Líbíu í samtali við norska blaðið Verdens Gang.

Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi

Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðingum fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöngum og annan minni á ytri kynfærum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undanförnum mánuðum.

Vildu orku á 5 árum en ekki ræða verðið

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að Alcoa hafi ekki fengist til viðræðna um orkuverð fyrir mögulegt álver á Bakka, þrátt fyrir óskir Landsvirkjunar þar um. Hann segir Alcoa hafa óskað eftir afhendingu orkunnar innan fimm ára. Landsvirkjun hafi hins vegar talið lengri afhendingarfrest nauðsynlegan, um tíu til tólf ár, þar sem jarðvarmavirkjanir þurfi að byggja upp í skrefum.

ETA segjast hætt öllu vopnaskaki

ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, batt í gær enda á vopnaða sjálfstæðisbaráttu sem staðið hefur í 43 ár og kostað 829 mannslíf.

Margir vildu hitta Khagendra

Fjöldi fólks mætti í verslanir Eymundsson í gær til að hitta minnsta mann í heimi samkvæmt bókinni Ripley"s, Khagendra Thapa Magar. Hann er hér á landi í tengslum við útgáfu bókarinnar Ripley"s ótrúlegt en satt.

Rannsóknarnefnd átelur siðanefnd HÍ

Þriggja manna rannsóknarnefnd hefur komist að því að verulegir annmarkar hafi verið á starfi siðanefndar Háskóla Íslands þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann.

Viðbrögð við kynferðisbrotum rædd

Herra Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði með dr. Marie Fortune og fagráði þjóðkirkjunnar á Biskupsstofu í gær. Eins og greint hefur verið frá er dr. Fortune stödd hér á landi til að halda námskeið og málþing á vegum þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot innan kirkjunnar og viðbrögð hennar við því.

Borgarahreyfingin ræðir við Hreyfinguna

Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur samþykkt að ganga til viðræðna við þingflokk Hreyfingarinnar um samstarf. Þetta kemur fram í bloggfærslu Friðriks Þórs Guðmundssonar, stjórnarmanns í Borgarahreyfingunni.

Batnandi staða en lánasöfn viðkvæm

Staða stóru viðskiptabankanna þriggja hefur batnað talsvert síðustu misseri. Eiginfjárstaða bankanna er hlutfallslega góð og lausafjárstaða þeirra einnig. Þetta er mat Fjármálaeftirlitsins (FME) sem fjallaði um stöðu viðskiptabankanna á blaðamannafundi í gær.

Viðvörunarljós bilaði í vél Iceland Express

Flugvél Iceland Express sem fór frá Keflavíkurflugvelli laust eftir klukkan fimm í kvöld til Alicante varð að lenda í Manchester í Bretlandi vegna viðvörunarljóss í stjórnborði flugvélarinnar sem gaf til kynna að eldur gæti verið laus í einu farangursrými hennar. Flugvélin lenti í Manchester um klukkan átta að íslenskum tíma og reyndist bilunin vera í viðvörunarljósinu sjálfu og því var aldrei nein raunveruleg hætta á ferðum.

Chavez segist vera orðinn frískur

Hugo Chavez, forseti Venezuela, sagðist vera laus við krabbamein eftir að hann sneri heim frá læknisskoðun á Kúbu. Hann hefur verið í erfiðum lyfjameðferðum upp á síðkastið og fór í skurðaðgerð fyrir fjórum mánuðum,eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. Chavez segir að meðferðin hafi gengið vel. „Ég er laus við öll veikindi," sagði Chavez við íbúa Venesúela eftir að hann kom til bæjarins La Fria í vesturhluta Venesúela.

Hefur ekkert heyrt í Hönnu Birnu

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerir alveg eins ráð fyrir því að Hanna Birna Kristjánsdóttir bjóði sig fram gegn honum á landsfundi í nóvember. Hann er fullur sjálfstrausts fyrir landsfundinn en segist ekkert hafa rætt við Hönnu Birnu síðan í júlí.

Lögðu hald á 2600 lítra af áfengi

Tollurinn lagði hald á 2600 lítra af áfengi á síðasta ári og 150 þúsund sígarettur. Áætlað er að það séu aðeins um tíu prósent af því sem reynt er að smygla til landsins.

Segir kreppuna geta seinkað uppbyggingu á Norðurlandi

Forstjóri Landsvirkjunar getur engu lofað um uppbyggingu í Þingeyjarsýslum á næstunni og hefur verulegar áhyggjur af því að efnahagskreppan í Evrópu seinki framkvæmdum. Iðnaðarráðherrra segir að annað álfyrirtæki en Alcoa sé meðal fimm fyrirtækja í viðræðum um orkuna.

Sýknudómur í kynferðisbrotamáli ómerktur

Hæstiréttur ómerkti og vísaði aftur í hérað sýknudómi yfir karlmanni sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku í þvottahúsi á heimili sínu. Manninum var gefið að sök að hafa káfað tvisvar innanklæða á rassi stúlkunnar Í héraðsdómi var komist að þeirri niðurstöðu að framburður vitna, sem báru að stúlkan hefði sagt þeim frá atvikinu, sýndi að stúlkan hefði verið sjálfri sér samkvæm.

Brjálaðist út af þvottinum og sló lögregluþjón

Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að slá lögreglumann hnefahöggi þegar hann ætlaði að rétta honum vatnsglas.

Leiðtogi uppreisnarmanna staðfestir fall Gaddafís

Forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Líbíu hefur nú staðfest að Múammar Gaddafí, einræðisherra landsins til fjörutíu ára, hafi verið skotinn til bana fyrir utan bæinn Sirte í dag. Mahmoud Jibril starfandi forsætisráðherra landsins hélt blaðamannafund í höfuðborginni Trípólí þar sem hann staðfesti fréttirnar og sagði hann um leið að nú væri tími til kominn að koma á fót nýrri sameinaðri Líbíu.

Heiða Kristín: Það stefnir allt í hreinan meirihluta

"Mér finnst þetta mjög áhugavert. Þetta er nokkurskonar þjófstart,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, sem ásamt Guðmundi Steingrímssyni, vinna að nokkurskonar systurframboði Besta flokksins til alþingiskosninga 2013.

Húsleit eftir fíkniefnaakstur á Akureyri

Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á fertugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 30 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Er þetta í fimmta skipti á stuttum tíma þar sem lögreglan á Akureyri stöðvar ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna og framkvæmir í framhaldinu húsleitir þar sem í öllum tilfellum hefur verið lagt hald á fíkniefni.

Unnu stórsigur á Egyptum

Ísland vann stórsigur á Egyptum í Bridge nú rétt í þessu, 20-10 og bætti stöðu sína enn frekar í hópi efstu sveita á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Hollandi.

Garðeigendur hvattir til að klippa tré sem vaxa út fyrir lóðamörk

Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur og hvetur Reykjavíkurborg nú garðeigendur til að bregðast við og klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu.

Fartölvum og iPod stolið

Brotist var inn í fjóra bíla í Reykjavík og Kópavogi í gærkvöld og nótt. Úr þeim var stolið meðal annars fartölvum, greiðslukortum og iPod. Í tilkynningu ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.

Játaði vörslur á barnaníðsefni

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir vörslu ljósmynda og hreyfimynda sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn játaði sök fyrir dómi.

Iðnaðarráðherra: Alcoa einnig áhugalausir

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, gaf til kynna að áhugaleysi Alcoa hefði einnig orðið til þess að fyrirtækið ákvað að byggja ekki álver á Bakka nærri Húsavík í sérstökum umræðum um málið á Alþingi í dag.

Loftpressa brann yfir í Mjóddinni

Reykurinn sem barst upp úr kjallara í Mjóddinni um klukkan eitt í dag orsakaðist af því að loftpressa brann yfir. Enginn eldur myndaðist en nokkurn reyk lagði frá pressunni. Slökkviliðið vinnur nú að því að reykræsta kjallarann og er búist við því að slökkviliðsmenn ljúki störfum eftir um hálftíma.

Reykur úr kjallara í Mjódd

Reykur er úr kjallara í Mjóddinni. Allt tiltækt slökkvilið hefur verið sent á staðinn. Fyrstu fregnir hermdu að eldur hefði kviknað í kjallara verslunarinnar Nettó. Framkvæmdastjóri verslunarinnar hafði samband við Vísi og sagði reykinn koma úr kjallara verslunarhúsnæðis þar sem efnalaug. Svo virðist sem slökkviliðið sé búið að slökkva eldinn og sé að reykræsta húsið.

Ákærð fyrir úlpuþjófnað

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært tæplega tvítuga konu fyrir að stela rándýrum úlpum úr fatahengi í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í nóvember í fyrra.

Þúsundir mótmæla í Aþenu

Þúsundir mótmælenda hafa nú safnast saman fyrir framan þinghúsið í Grikklandi en í dag munu þingmenn greiða atkvæði um aðgerðir í efnahagsmálum. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu bíður lögreglan grá fyrir járnum en í gær brutustu út mikil átök. Í dag er annar dagur verkfalls á almennum vinnumarkaði í Grikklandi.

Gaddafí fallinn - myndir birtar af líkinu

Varað er við myndum með þessari frétt. Reuters fréttastofan hefur eftir Abdel Majid talsmanni uppreisnarmanna í Líbíu að Gaddafí hafi særst skotsári á höfði sem hafi dregið hann til dauða. Þetta hefur þó ekki verið formlega staðfest fremur en fyrri fregnir. Majid fullyrti fyrir hádegið að Gaddafí hafi verið handsamaður og að hann hafi særst á báðum fótum.

Sjö mánaða fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik

Tuttugu og fjögurra ára karlmaður hefur verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik en hann sveik út vörur og þjónustu fyrir milljónir króna hjá ýmsum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Hann þarf að greiða á þriðju milljón króna í skaðabætur til fórnarlamba sinna.

Bílasali dæmdur fyrir fjársvik

Einn karlmaður var sakfelldur fyrir fjársvik og annar sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mönnunum var gefið að sök að hafa rifið varahluti úr bílum í eigu fjármagnsfyrirtækjanna Avant og Lýsingar en voru í vörslu bílasölu sem var í eigu mannanna. Sá sem var dæmdur starfaði sem framkvæmdastjóri bílasölunnar.

Gaddafí handsamaður - særður á báðum fótum

Talsmenn Líbíska þjóðarráðsins, bráðabirgðastjórnar uppreisnarmanna í landinu segja að Múammar Gaddafí fyrrverandi einræðisherra landsins hafi verið handsamaður. Fréttastofa Reuters hefur eftir talsmönnunum að einræðisherrann sé á lífi en að hann hafi særst á báðum fótum.

Sjá næstu 50 fréttir