Heiða Kristín: Það stefnir allt í hreinan meirihluta 20. október 2011 15:01 Heiða Kristín Helgadóttir leiðir framboðið ásamt Guðmundi Steingrímssyni, þingmanni. „
Mér finnst þetta mjög áhugavert. Þetta er nokkurskonar þjófstart," segir Heiða Kristín Helgadóttir, sem ásamt Guðmundi Steingrímssyni, vinna að nokkurskonar systurframboði Besta flokksins til alþingiskosninga 2013. Nýtt framboð mælist allavega vel á meðal þeirra sem voru spurðir í könnun MMR en þar segjast 33,5 prósent aðspurðra geta hugsað sér að kjósa framboð þeirra. Hvernig sem á það er litið þá er könnunin jákvæð fyrir framboðið, sem hefur ekki einu sinni hlotið nafn. En að sögn Heiðu Kristínar stendur til að bæta úr því, „við sjáum til að mynda fyrir okkur opna nafnasamkeppni," segir hún um hugsanlegt nafn stjórnmálaaflsins. Heiða Kristín og Guðmundur hafa þreifað fyrir sér á landsbyggðinni og rætt við ýmsa aðila um að standa að framboðinu. Sú vinna er enn í mótun að sögn Heiðu. Það er ljóst að stjórnmálaumhverfið er ólíkt öðru eftir hrun. Vantraust til stjórnmálamanna er gríðarlegt líkt og árangur Besta flokksins sýndi og sannaði í síðustu borgarstjórnarkosningum. Þá náði Borgarahreyfingin fjórum þingmönnum inn á Alþingi í þingkosningum 2009. Þingmennirnir klufu sig hinsvegar frá Borgarahreyfingunni á miðju kjörtímabili og heitir flokkurinn nú Hreyfingin. Heiða segist standa í þeirri trú að framboð þeirra nú sé ferskari vettvangur bæði fyrir stjórnmálaþenkjandi fólk sem og hina. Aðspurð hvort framborðið verði sett fram í gríni líkt og Besti flokkurinn svarar Heiða: „Mig langar ekki til þess að búa til leiðinlegan flokk. En það eru til margar leiðir til þess að koma skilaboðum áleiðis," segir Heiða Kristín. Heiða segir könnun MMR gefa framboðinu byr í seglin. „Þetta er bara upphafið. Það stefnir allt í hreinan meirihluta með þessu áframhaldi," bætir Heiða við.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Fleiri fréttir Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Sjá meira