Innlent

Farþegar á leið til Alicante gistu í Manchester

Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Alicante á Spáni, varð að lenda í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, eftir að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri laus í einu farangursrými vélarinnar.

Svo reyndist þó ekki vera, því bilun var í viðvörunarljósinu. Hinsvegar skorti varahluti þannig að farþegarnir voru vistaðir á hótlum í Manchester í nótt.

Sömuleiðis þurftu farþegarnir, sem ætluðu heim með vélinni í nótt, að gista á hótelum í Alicante. Áætlað er að vélin haldi þangað fyrir hádegi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×