Fleiri fréttir

Rúm 36% treysta Jóhönnu best sem formanni

Liðlega 36 prósent Samfylkingarmanna treysta Jóhönnu Sigurðardóttur best til að gegna formennsku flokksins og rúmlega 28 prósent Guðbjarti Hannessyni, heilbrigðisráðherra.

Mikið að gera á hjólbarðaverkstæðum

Mikið var að gera á hjólbarðaverkstæðum á Akureyri í gær þegar bíleigendur fóru að skipta yfri á vetrardekkin og þess varð líka vart á höfuðborgarsvæðinu, eftir fyrstu hálku vetrarins þar um slóðir.

Elísabet Bretadrottning heimsækir Ástralíu

Elísabet II Bretlandsdrotting er nú stödd í 10 daga opinberri heimsókn til Ástralíu en hún kom til landsins í gærdag. Talið er að þetta sé síðasta opinbera heimsókn drottningarinnar til Ástralíu vegna þess hve öldruð Elísabet er orðin en hún er 85 ára gömul.

Rolex telur ránið stórt á alþjóðavísu

Úraránið í verslun Michelsen úrsmiða þykir stórt á alþjóðlegan mælikvarða Rolex. Listi yfir þau úr sem var rænt á mánudag hefur verið afhentur fyrirtækinu og lögreglu, að sögn Franks Michelsen úrsmiðs. Hann gefur ekki upp hversu mörgum úrum var stolið. Frank hefur lofað milljón krónum í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta orðið til þess að ránið verði upplýst. Hann segist hafa fengið fjölda ábendinga en bendir fólki á að hafa samband við lögregluna ef það hefur upplýsingar um málið.

Lögreglumaður skar sér hryggvöðva

DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært varðstjóra í lögreglunni á Höfn í Hornafirði fyrir að misnota stöðu sína og verða sér með því úti um hryggjarvöðva úr hreindýri. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Austurlands í fyrradag.

Viljayfirlýsingar um orkuna fyrir norðan

Þrjú fyrirtæki hafa undirritað viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Útboð er í gangi varðandi hönnun á mannvirkjum varðandi virkjanir við Bjarnarflag og Þeistareyki, sem samanlagt munu gefa 180 megavött.

Mötuneyti skólanna sögð sem þrælabúðir

„Vinnan í sumum mötuneytum er farin að líkjast meira þrælabúðum en eðlilegum vinnustað,“ segir í yfirlýsingu Samtaka faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur.

Frjókorn aldrei mælst fleiri

Aldrei hafa verið fleiri frjókorn í lofti yfir Reykjavík en í sumar og á Akureyri mældust frjókorn yfir meðallagi. Niðurstöður frjómælinga hafa verið birtar á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Fimm hugmyndir íbúa skoðaðar á mánuði

Íbúum Reykjavíkurborgar gefst kostur á að hafa bein áhrif á borgarmálin í gegnum vefinn Betri Reykjavík sem hleypt var af stokkunum í gær á slóðinni betrireykjavik.is.

Vilja sakhæfi aftur upp í 15 ár

Dönsk stjórnvöld áforma að hækka sakhæfisaldur aftur úr 14 árum upp í 15 ár. Stjórn Venstre og Íhaldsflokksins færði aldurinn niður fyrir um einu ári. Talsmaður Venstre segir við danska ríkisútvarpið að ekki sé gert ráð fyrir fangelsisdómum yfir 14 ára börnum, heldur séu önnur úrræði til staðar þegar dómur hafi verið kveðinn upp. Stjórnin svarar því hins vegar til að hingað til hafi lækkun sakhæfisaldurs ekki skilað neinum árangri.

Biskup lýsti djúpri sorg vegna mistaka

Um 150 manns tóku þátt í námskeiði á vegum þjóðkirkjunnar í Neskirkju í gær. Dr. Marie M. Fortune fræddi viðstadda um kynferðislegt ofbeldi í samhengi kirkju og trúfélaga og rétt viðbrögð við því.

Gröf með báti og vopnum

Heillegt bátskuml hefur fundist í Skotlandi, á afskekktum skaga sem nefnist Ardnamurchan. Talið er að víkingahöfðingi hafi verið grafinn þar ásamt báti sínum, exi, sverði og spjóti. Kumlið er líklega meira en þúsund ára gamalt, en þetta er fyrsta heillega víkingakumlið sem finnst í Bretlandi og þykir þessi fornleifafundur því afar merkilegur. Reynt er að afla vitneskju um samfélagsþróun á þessum slóðum frá víkingatímanum.

George Clooney ætlar ekki í atvinnustjórnmál

Hollywoodleikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney ætlar ekki að gera stjórnmál að atvinnu sinni. Hann ætlar, eftir sem áður, að taka þátt í stjórnmálum af hliðarlínunni. Ástæðan fyrir þessum yfirlýsingum Clooneys er sú að hann er um þessar myndir að kynna nýja mynd sem hann leikur í og leikstýrir. Myndin heitir The Ideas of March. Í myndinni leikur hann fylkisstjóra að nafni Mike Morris, sem jafnframt tekur þátt í forkosningum fyrir forsetakjör.

Eiginkona Frakklandsforseta ól stúlku

Carla Bruni, eiginkona Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, ól stúlkubarn klukkan sex í dag að íslenskum tíma. Frönsk blöð segja að margmenni hafi safnast saman fyrir utan La Muette fæðingardeildina áður en hún fæddi.

Eigandi Sögusafnsins kvíðir sölu Perlunnar

Eigandi Sögusafnsins í Perlunni segist lifa milli vonar og ótta um að þurfa ekki að yfirgefa Perluna ef hún verður seld. Sögusafnið er hannað og byggt inn í einn tankinn í Perlunni. Ernst J Backman, sem rekur safnið, segist hafa varið 120 milljónum króna í uppbygginguna.

Fjöldi villidýra skotinn

Það varð uppi algjör ringulreið í Zanesville í Ohio þegar villidýr sem voru lokuð inni á einum bænum þar sluppu út. Lögregluna grunar að bóndinn á bænum, Terry Thompson, hafi sleppt dýrunum og svo svipt sig lífi. Um 50 manna lögreglulið fór strax á stúfana og skaut að minnsta kosti þrjátíu dýr. Þar á meðal voru ljón, tígrisdýr, úlfar og birnir.

Bensínsprengjum varpað í Aþenu

Grikkir hentu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Aþenu í dag og lögreglan svaraði með táragasi. Gríska þingið ræðir nú frumvarp sem gerir ráð fyrir tímabundnum uppsögnum þrjátíu þúsund stöðugilda í opinbera kerfinu og niðurskurð á lífeyri og launakjörum. Atvinnulífið í Grikklandi lamaðist jafnframt í dag en þar hófst tveggja daga verkfall á almennum vinnumarkaði svo allt flug hefur legið niðri og mikil röskun hefur verið á almenningssamgöngum, í skólum og verslunarþjónustu.

Sagði sjálfsagt að ráðherra gæfi Landsvirkjun fyrirmæli

Þrjú skýr dæmi eru um að ríkisstjórnin beitti sér gegn álveri á Bakka. Áður en Steingrímur J. Sigfússon varð fjármálaráðherra lýsti hann þeirri skoðun sinni að sjálfsagt væri að sá sem gegndi því embætti gæti sem yfirmaður Landsvirkjunar gefið fyrirtækinu fyrirmæli.

Gaman að hestarnir séu komnir inn í stórmynd

"Við þekkjum þessa eiginleika mjög vel og þetta er bara mjög gaman að hestarnir skuli vera komnir inn í svona mikla stórmynd,“ segir Einar Bollason, einn helsti ferðaþjónustufrömuður á Íslandi á sviði hestamennsku. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að íslenskir hestar yrðu notaðir við tökur á Hobbitanum, sem er undanfari sögunnar um Hringadróttinssögu.

Sá minnsti fetar í fótspor þess stærsta

Minnsti maður í heimi, Khagendra Tghapa Magar, frá Gaglunghéraðinu í Nepal, er staddur hér á Íslandi. Hann er einungis 56 sentimetrar á hæð. Hann er hér á landi til þess að kynna bókina Ótrúlegt en satt - ekki fyrir viðkvæma, sem er að koma út um þessar mundir.

Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir krefst úrbóta

Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir hefur afhent lögreglu lista yfir 56 nöfn, 117 símanúmer og 29 netföng manna sem fullyrt er að hafi falast eftir vændi í gegnum auglýsingar í Fréttablaðinu og vefjunum Einkamálum og Rauða torginu.

Grunaður dópsali úrskurðaður í gæsluvarðhald

Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fíkniefnamisferli. Maðurinn er erlendur ríkisborgari og hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Svíar ósammála um brottvísun 91 árs konu

Yfirvöld í Svíþjóð frestuðu því á síðustu stundu í gær að senda 91 árs gamla úkraínska konu úr landi. Ákvörðunin var tekin eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu ákvað að taka mál konunnar fyrir.

Ekið á reiðhjólamann

Ekið var á reiðhjólamann á Dalvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, var fluttur á slysadeild í sjúkrabíl. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur Dalveginum verið lokað við Sorpu á meðan lögregla og sjúkralið athafna sig.

Eldur í matsal

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrr í dag vegna elds í loftljósum í matsal að Skúlagötu 19 í Reykjavík en þar er sjúkraþjálfun til húsa. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að allir starfsmenn hafi brugðist rétt við, yfirgefið húsið og hringt á slökkvilið. Talsverður eldur var í rýminu og mikill reykur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en töluvert tjón er á matsalnum.

Bíl, flatskjá og áfengi stolið í Þorlákshöfn

Brotist var inn á bílaverkstæði Bíliðjunnar við Unubakka í Þorlákshöfn í nótt og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið. Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá, og þeim komið yfir á Mazda bifreiðina. Að því loknu ók þjófurinn af stað og í burtu frá verkstæðinu.

Stendur við ábendingu sína

Ríkisendurskoðun telur að ekkert hafi komið fram sem breyti niðurstöðum stofnunarinnar um innkaup löggæslustofnana sem finna má í ábendingu hennar frá því í lok september um að hluti viðskipta löggæslustofnana hafi farið í bága við lög um opinber innkaup en stofnanirniar keyptum vörur af fjórum fyrirtækjum í eigu lögreglumanna eða venslamanna fyrir rúmlega 91 milljón króna.

Bernaisesósa innkölluð

Ölgerðin hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Dass bearnaissesósu þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki nægjanlega vel merktir á umbúðum vörunnar.

Sigurður Jónsson dæmdur í skilorðsbundið fangelsi

Íslenski knattspyrnuþjálfarinn Sigurður Jónsson, sem hefur þjálfað í Svíþjóð síðustu ár, var í Héraðsdómi Stokkhólms í dag dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til að greiða sekt fyrir að beita fyrrum kærustu sína ofbeldi og ofsækja hana meðal annars með tölvupóstum og textaskilaboðum.

Íslenskir hestar notaðir við tökur á Hobbitanum

Íslenskir hestar eru notaðir við tökur á stórmyndinni Hobbitanum sem tekin er upp á Nýja-Sjálandi um þessar mundir. Þeir eru reiðskjótar dverganna þrettán. Aðeins um 100 íslenskir hestar eru til í landinu.

Móeiðar er sárt saknað eftir að hún strauk

„Auðvitað vill maður vita hvar hryssan er - hvor hún sé á lífi eða dauð," segir Guðrún Katrín Jóhannsdóttir, eigandi hryssu sem er búin að vera týnd í að minnsta kosti tvær vikur.

Bjarni Ben yfirheyrður sem vitni: Hef ekkert að fela

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, var yfirheyrður sem vitni í rannsókn sérstaks saksóknara á Sjóvármálinu sem snýr meðal annars að meintum brotum á lögum um hlutafélög. Bjarni segist ekkert hafa fela hvað varðar aðkomu sína að málinu.

Ísland komið í 4. sæti á HM í bridge

Íslendingar hækkuðu sig í morgun um tvö sæti á heimsmeistaramótinu í bridge með því að sigra Singapúr 22-8. Eftir leikinn eru Íslendingar í 4. sæti með 169,5 stig en átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina sem hefst nk. sunnudag.

Biskup mætti ekki á málþing um kirkjuna

Karl Sigurbjörnsson biskup mætti ekki á málþing sem haldið var í Háskóla Íslands í gær um kynferðislegt ofbeldi innan íslensku þjóðkirkjunnar.

Kýldi annan mann sem lá í rúmi sínu

Karlmaður um tvítugt var í Héraðsdómi Reykjavíkur gær dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn sló annan mann, sem lá í rúmi sínu, einu höggi með krepptum hnefa í mars á síðasta ári. Þolandinn hlaut skurð á vinstri augabrún sem var 2 sentimetrar og þurfti sauma 4 spor til að loka skurðinum. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur áður gengið undir greiðslu sektar hjá lögreglu fyrir fíkniefnalagabrot og viðurlagaákvörðun fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Stækkunarstjóri ESB til Íslands

Štefan Füle, framkvæmdastjóri stækkunar- og nágrannastefnu ESB, mun á miðvikudag og fimmtudag heimsækja Ísland í fyrsta sinn síðan landið sótti um aðild að Evrópusambandinu. Í heimsókninni mun hann ræða við bæði ráðamenn og hagsmunaaðila um innihald nýútkominnar framvinduskýrslu um Ísland og næstu skref í aðildarferlinu.

82 prósent vilja taka Guðmundar- og Geirfinnsmálið aftur upp

82 prósent landsmanna eru frekar eða mjög sammála því að dómstólar taki aftur upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Um 55 prósent eru mjög sammála því að málið verðið tekið aftur upp og um 27 prósent eru frekar sammála því.

Ekkert varð úr jarðskjálftahrinu

Ekkert varð úr jarðskjálftahrinu, sem hófst um 34 kílómetra norður af Siglufirði fyrir hádegi í gær. Þá mældust þrír skjálftar vel yfir þrjá á Richter, sá snaprasti var þrír komma sex.

Sjá næstu 50 fréttir