Hefur ekkert heyrt í Hönnu Birnu 20. október 2011 19:30
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerir alveg eins ráð fyrir því að Hanna Birna Kristjánsdóttir bjóði sig fram gegn honum á landsfundi í nóvember. Hann er fullur sjálfstrausts fyrir landsfundinn en segist ekkert hafa rætt við Hönnu Birnu síðan í júlí. Allt stefnir í harðvítug átök á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram 17.-20. nóvember næstkomandi. Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur ekki enn gefið það út formlega hvort hún bjóði sig fram gegn sitjandi formanni en sterkar vísbendingar eru um að kosningabaráttan sé komin á fullt bak við tjöldin. Bjarni Benediktsson var gestur í þættinum Klinkinu í dag. Ert þú að búa þig undir formannsslag við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur? „Ég er alltaf tilbúinn í kosningu um formannsembættið." En er hún að fara gegn þér? „Ég geri alveg eins ráð fyrir því, eða einhver annar," sagði Bjarni, en sagði að hann og Hanna Birna hefðu ekki rætt saman síðan í júlí síðastliðnum. Bjarni sagðist í raun ekki vita með vissu hvort hún ætlaði að bjóða sig fram gegn sér. Bjarni hefur verið að mælast með mun lakari stuðning en Hanna Birna í skoðanakönnunum sem hafa birst. Hverjar eru skýringarnar á því? „Ég kann engar skýringar á því. Ég get bara sagt þér að þeir sem standa í eldlínunni í stjórnmálunum eru ekkert endilega alltaf vinsælustu mennirnir í landinu. Og ég tel að ég hafi margoft sýnt að ég sé tilbúinn að standa með minni sannfæringu þegar á þarf að halda. Til lengri tíma litið tel ég að það verði alltaf metið við menn sem eru í stjórnmálum að þeir hagi ekki skoðunum sínum eftir því hvernig vindar blása hverju sinni," sagði Bjarni. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við Innlent Fleiri fréttir „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Sjá meira