Innlent

Stöðvuðu bát á ólöglegum veiðum út af Siglufirði

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð línubát að meintum ólöglegum veiðum í lokuðu hólfi á Fljótagrunni, norðvestur af Siglufirði í gærkvöldi og var skipstjóranum gefin fyrirmæli um að hætta veiðum og halda til Siglufjarðar.

Þangað er báturinn væntanlegur fyrir hádegi og mun lögregla þá taka skýrslur af skipverjum. Langt er síðan að skipstjóri hefur verið staðinn að landhelgisbroti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×