Össur vill reyna opna helming allra kafla fyrir áramót 20. október 2011 16:13 Össur og Füle á góðri stundu
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í gærkvöldi fund með Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sem er staddur hér á landi. Í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu segir að á fundinum hafi þeir rætt stöðu og framgang aðildarviðræðna Íslands og ESB en á ríkjaráðstefnu í Brussel í gær luku samningsaðilar viðræðum um tvo samningskafla. Þannig hafa alls sex samningskaflar verið opnaðir frá því í lok júní og þar af er viðræðum um fjóra þegar lokið en aðildarviðræðurnarnar snúast alls um 35 samningskafla. Þá hitti Stefan Füle samninganefnd Íslands í morgun í utanríkisráðuneytinu, þar sem farið var yfir stöðuna í viðræðunum og fyrirkomulag þeirra næstu mánuði. Á fundinum með Füle lagði utanríkisráðherra áherslu á að Ísland væri reiðubúið að opna allt að helming allra kafla fyrir áramót og lýsti þeirri skoðun sinni að opna ætti þá samningskafla sem ljóst er að verði tímafrekir, svo sem um sjávarútveg og landbúnað, sem fyrst í ferlinu. Þar lægju grundvallarhagsmunir Íslands, sem og í kaflanum um efnahags- og peningamálasamstarf. Utanríkisráðherra sagði mikilvægt að vinna náið með Dönum, sem taka við formennsku ESB um áramót og opna aðra samningskafla á fyrri hluta næsta árs. Stefan Füle sagði nýútkomna framvinduskýrslu ESB um Ísland staðfesta að Ísland væri vel í stakk búið fyrir aðild vegna þess hve löggjöf er sambærileg vegna þátttöku Íslands í EES- og Schengen-samstarfinu. Füle hrósaði samvinnu embættismanna á Íslandi og í Brussel sem hann sagði vera til fyrirmyndar.
Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Innlent Segist eiga fund með Pútín Erlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Innlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira