Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flestir fluttu til Norðurlandanna Á þriðja ársfjórðungi ársins fæddust 1220 börn, en 470 einstaklingar létust en landsmönnum fækkaði hinsvegar um 90 á tímabilinu. Í lok fjórðungins bjuggu 319.090 manns á Ísland, Um 160 þúsund karlar og tæplega 159 þúsund konur. Erlendir ríkisborgar voru tæplega 21 þúsund og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu rúmlega 203 þúsund. 17.10.2011 09:30
Spá stormi víða um land í dag Veðurstofan spáir stormi víða um land í dag og bendir ökumönnum á að búast megi við erfiðum akstursskilyrðum á noðranverðu landinu í dag, fyrst norðvestanlands. 17.10.2011 08:36
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun Tveir grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Kópavogi í nótt og stálu þaðan töluverðum verðmætum og komust undan. 17.10.2011 08:18
Kveikt í mannlausum bíl Tilkynnt var um eld í mannlausum fólksbíl við Laufásveg á sjötta tímanum í morgun og logaði hann í einhverjum efnum við bensínlokið, þegar slökkvilið kom á vettvang. 17.10.2011 08:09
Settu klám inn á YouTube síðu Sesame Street Klámtölvuþrjótum tókst að brjótast inn á YouTube síðu bandaríska barnaþáttarins Sesame Street í gærdag. Þar settu þeir inn myndbönd sem eru stranglega bönnuð börnum. 17.10.2011 08:05
Forseti Mexíkó veldur illvígum pólitískum deilum Illvígar pólitískar deilur hafa blossað upp í Mexíkó í kjölfar viðtals The New York Time við Felipe Calderon forseta landsins. 17.10.2011 08:00
Stórbruni í Kaupmannahöfn Allt tiltækt slökkvilið Kaupmannahafnar berst nú við stórbruna á iðnaðarlóð í Rödovre, einu úthverfa borgarinnar. 17.10.2011 07:58
Kenýa sendir hermenn yfir landamærin til Sómalíu Stjórnvöld í Kenýa hafa sent hersveitir yfir landamærin til Sómalíu en hersveitirnar eiga að ráða niðurlögum sómalskra mannræningja sem hafa herjað á flóttamannabúðir og ferðamannastaði í Kenýa. 17.10.2011 07:55
Uppreisnarmenn komnir í síðasta vígi Gaddafis Uppreisnarmenn í Líbíu segja að þeir séu komnir inn í bæinn Bani Walid sem talinn er síðasta vígi Muammar Gaddafi og hersveita hliðholla honum. 17.10.2011 07:44
Eldur í íbúð í Eskihlíð, kettir fengu far með sjúkrabíl Eldur kviknaði í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi við Eskihlíð um miðnætti. Íbúar annarsstaðar í húsinu heyrðu í reyksynjara í íbúðinni, en þar sem engin virtist vera heima kölluðu þeir á slökkvilið. 17.10.2011 07:39
Lögreglan kölluð út til að róa farþega á Gatwick Kalla þurfti lögreglu til á Gatwick flugvelli við London í gærdag til að hemja 200 æsta og reiða farþega flugvélar. Farþegarnir höfðu beðið í flugvélinni í níu tíma og voru orðnir sársvangir enda allur matur um borð uppurinn. 17.10.2011 07:28
Björguðu fólki úr ófærð á Klettshálsi Björgunarsveit frá Patreksfirði var kölluð út um miðnætti til að aðstoða fólk í bíl á Klettshálsi, en þar var orðið aftaka veður og snjókoma. 17.10.2011 07:25
Lauk 11 ára göngu hringinn í kringum heiminn Göngu Kanadamannsins Jean Beliveau hringinn í kringum heiminn er lokið en hann var 11 ár á leiðinni. 17.10.2011 07:21
Dælingin gæti flýtt fyrir stærri skjálftum Að sögn Jónasar Ketilssonar, jarðhitasérfræðings hjá Orkustofnun, eru allar líkur á því að það dragi úr smáskjálftavirkni á Hengilsvæðinu eftir því sem niðurdæling Orkuveitunnar á vatni stendur lengur. 17.10.2011 07:00
Ráðherra segir vændisrannsókn koma til greina Vel kemur til greina að láta rannsaka umfang og eðli vændis á Íslandi á næstunni. Þetta segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. 17.10.2011 07:00
Höfða mál vegna milljóna Ólafs F. Frjálslyndi flokkurinn hefur höfðað mál á hendur Reykjavíkurborg til að freista þess að innheimta um 3,4 milljónir sem greiddar voru sem styrkur til borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar. 17.10.2011 06:15
Átján hundruð milljónir í einum lottópotti Það stefnir í að aðalvinningurinn í Víkingalottóinu á miðvikudaginn kemur verði sá næststærsti sem spilað hefur verið um frá því að Víkingalottóið hóf göngu sína hér á landi. 17.10.2011 06:00
Vatnsauðlindinni tryggð vernd Innleiðing vatnatilskipunar Evrópusambandsins er hafin í samræmi við lög sem voru samþykkt á Alþingi vorið 2011 um stjórn vatnamála. Lögin fela í sér innleiðingu vatnatilskipunarinnar í íslenskan rétt. Tilgangurinn er að tryggja verndun og heilnæmi vatns á Íslandi til framtíðar. 17.10.2011 06:00
Framhaldsnám sé á Hólmavík Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar, lagði á fundi með fjárlaganefnd Alþingis á föstudag megináherslu á að undirbúningur við stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík verði hafinn árið 2012. 17.10.2011 06:00
Hollande sigraði í forvalinu Francois Hollande sigraði í gær í forkosningum Sósíalistaflokksins í Frakklandi. Hann verður því frambjóðandi flokksins til forseta landsins á næsta ári. 17.10.2011 05:15
Byltingar þörf til að takast á við kreppu „Eftirspurn eftir mat er að verða meiri en framboðið. Undanfarin tíu ár hefur verið framleitt minna af fæðu en þörf er fyrir,“ segir Julian Cribb, prófessor í miðlun vísindalegrar þekkingar. Cribb skrifaði bókina The Coming Famine – The Global food crisis and what we can do to avoid it, eða Hungursneyðin yfirvofandi – alþjóðlega matarkreppan og hvað við getum gert til að forðast hana. Cribb heldur fyrirlestur í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar klukkan tólf í dag. 17.10.2011 05:00
Ingibjörg Sólrún á leið til Kabúl Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, hefur verið boðið starf yfirmanns UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Þetta staðfesti Ingibjörg Sólrún við Fréttablaðið í gær. Hún er nú í viðræðum við stofnunina um að taka að sér starfið, en slíkar ráðningar eru tímafrekar sökum pappírsvinnu og annars. 17.10.2011 05:00
Ákalli norskrar eyju svarað úr Borgarnesi Með flutningi 13 Íslendinga til eyjunnar Fjelberg undan Noregsströnd hefur eyjarskeggjum fjölgað um 10 prósent. Eyjan fékk styrk frá norska ríkinu til þess að laða til sín barnafjölskyldur og var ákveðið að auglýsa eftir þeim á Íslandi. Nú eru þrjár íslenskar fjölskyldur búsettar á Fjelberg ásamt þeim 108 íbúum sem fyrir voru. 17.10.2011 04:00
Nálgunarbann eftir grófa árás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að karlmaður skuli sæta brottvísun af heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar og nálgunarbanni í fjórar vikur, eftir að hann hafði gengið í skrokk á henni með þeim afleiðingum að hún fékk meðal annars heilahristing. 17.10.2011 03:45
Sýnir verk með stórstjörnum Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sýnir í hinu virta hönnunarsafni Triennale í Mílanó fyrst Íslendinga. Þar tekur Þórunn þátt í stórri samsýningu og er ekki í amalegum félagsskap þar sem verk eftir heimsþekkta listamenn á borð við Damien Hirst og Louise Bourgeois eru til sýnis. 17.10.2011 03:00
Gagnaverið rís á næstu vikum Gagnaver Verne Global kom til hafnar í Helguvík um helgina. Það verður sett upp á næstu vikum. 17.10.2011 03:00
Damanaki boðar minni miðstýringu Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, leggur mikla áherslu á að draga úr miðstýringu við endurskoðun sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu sambandsins. 17.10.2011 01:30
Alls eru 297 látnir í Taílandi Tala látinna af völdum flóðanna í Taílandi hefur nú hækkað upp í 297 en miklir rigningar hafa verið í landinu síðustu tvo mánuði. Talið er að yfir 8,5 milljónir manna í 61 héraði hafi orðið fyrir barðinu á flóðunum. Búist var við meiri rigningu á sunnudag í fleiri héruðum sem og í höfuðborginni, Bangkok. Þar vinna hjálparstarfsmenn að því að breikka skurði og styrkja flóðvarnir í kringum borgina. 17.10.2011 01:00
Ayatollah varar Bandaríkjamenn við Æðsti leiðtogi Íran, Ayatollah Ali Khamenei, varaði bandarísk yfirvöld við því í dag að grípa til aðgerða gegn landinu. Hann sagði slíkt fela í sér afdráttarlaus viðbrögð Írans, án þess að tiltaka hvers væri að vænta. 16.10.2011 15:30
Segir Hitler hafa lifað góðu lífi í Argentínu eftir stríð Breski blaðamaðurinn og rithöfundurinn, Gerrard Williams, heldur því fram í viðtali við Sky fréttastofuna að hann hafi fundið yfirþyrmandi sannanir fyrir því að Adolf Hitler hafi alls ekki framið sjálfsmorð í neðanjarðarbyrgi í Berlín árið 1945 - eins og sögubækurnar segja til um - heldur hafi hann flúið til Argentínu ásamt Evu Braun. 16.10.2011 15:25
Helga endurkjörinn formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir var í dag einróma endurkjörin formaður Ungmennafélags Íslands til næstu tveggja ára á þingi þess sem nú stendur yfir í menningarhúsinu Hofi á Akureyri samkvæmt tilkynningu frá félaginu. 16.10.2011 14:57
Vegagerðin: Hálkublettir víða Hálkublettir eru frá Selfoss að Markarfljóti en autt að öðru leyti. Á Vesturlandi er hálka á Fróðárheiði og hálkublettir á Holtavörðuheiði. 16.10.2011 14:47
Tæplega 200 skátar bræddu merki úr tini og bjuggu til gervisár Um helgina komu 170 skátar saman í grunnskólanum í Borganesi á skátamótinu Smiðjudögum. 16.10.2011 13:04
Enn skelfur jörð í Hveragerði Fáeinir skjálftar hafa mælst nærri Hellisheiðarvirkjun frá miðnætti í nótt. Sá stærsti mældist þrír á richter og svo nokkrir um tveir á stærð. 16.10.2011 11:45
Mótmælendur handteknir í Bandaríkjunum Lögreglan í New York handtók um það bil sjötíu manns í gærkvöld sem mótmæltu efnahagsástandinu í Bandaríkjunum við Times Square. 16.10.2011 10:20
Hafa gefið út nöfnin á föngunum sem verður sleppt Stjórnvöld í Ísrael hafa gefið út nöfn á þeim fjögur hundruð sjötíu og sjö föngum frá Palestínu sem sleppt verður í skiptum við Ísraelska hermanninn Gilad Shalit sem situr nú í fangelsi í Palestínu. Forseti Ísrael Simon Peres hefur hafið náðunarferli fangana. 16.10.2011 10:18
Varað við stormi Búist er við stormi á Norðvestur landinu í dag og einnig Suðaustanlands á morgun. 16.10.2011 10:07
Slegist fyrir utan Manhattan - rólegt á Airwaves Líkamsárás átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Manhattan í Keflavík í nótt. Nokkrum mönnum lenti þar saman og var einn barinn í höfuðið með glasi. Hann hlaut þó ekki alvarlega áverka en ryskingarnar stöðvuðust þegar lögregla mætti á svæðið. Þá var tilkynnt um líkamsárás á skemmtistaðnum 800 bar á Selfossi um hálffjögurleytið í nótt. 16.10.2011 10:01
Vatnstjón í Drápuhlíð og mikill erill í sjúkraflutningum Mikið vatnstjón varð í kjallara húsnæðis heilsugæslunnar í Drápuhlíð þegar heitavatnslögn virðist hafa gefið sig. Slökkviliðið var kallað á vettvang um klukkan hálf fimm í nótt vegna lekans. 16.10.2011 09:53
Aftur kveikt í á Bergstaðastrætinu Enn og einu sinni var kveikt í mannlausu húsi á horni Bergstaðastrætis og Spítalastígs. 16.10.2011 09:47
Mikið um hálkuslys Mikil hálka var í morgun og virtist koma mörgum í opna skjöldu. Þannig urðu sjö umferðaróhöpp í nótt og tvær bílveltur á Suðurlandsvegi eftir miðnætti í nótt. 16.10.2011 09:35
Gucci tískuvörur sagðar framleiddar í þrælakistum Starfsmenn í kínverskri verksmiðju, sem framleiðir Gucci tískuvörur, hafa sent yfirvöldum og fjölmiðlum opið bréf, þar sem þeir halda því fram að verksmiðjan sé í raun þrælakista. 16.10.2011 06:00
Hafa áhyggjur af börnum með snjallsíma Ef trylltir uppvakningar og þrýstnar stúlkur í leit að sætum strákum myndu rata í barnatímana yrði líklega eitthvað sagt. Þannig hafa bandarískir foreldrar verulegar áhyggjur af snjallsímum, sem fjölmörg börn hafa undir höndum, en þangað virðist "óviðeigandi“ efni eiga greiða leið í formi smáforrita (apps). 15.10.2011 23:00
Pylsusali reyndist líka vera vopnasali Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn af lögreglunni í San Jose í Bandaríkjunum í september ásamt meintum vitorðsmanni sínum, sem er rúmlega tvítugur, fyrir að selja vopn úr pylsuvagni. 15.10.2011 21:00
Vildu ekki vinna eineltisálit með minnihluta vegna tengsla við skólann N listinn í Sveitarfélaginu Garði hefur óskað eftir að fá afrit af bréfi því sem bæjarstjóri og meirihluti skólanefndar sendu til Mennta og menningarráðuneytisins, undirritað af þeim, samkvæmt frétt Víkurfrétta um málið. 15.10.2011 19:48