Innlent

Vegagerðin: Hálkublettir víða

Hálkublettir eru frá Selfoss að Markarfljóti en autt að öðru leyti. Á Vesturlandi er hálka á Fróðárheiði og hálkublettir á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og Hálfdán. Hálkublettir eru á Gemlufallsheiði, Mikladal, Kleifaheiði og Klettshálsi þar sem einnig er éljagangur. Hrafnseyrarheiði er ófær vegna snjóflóða.

Spáð er versnandi veðri á norðanverðum Vestfjörðum í dag.

Á Norðurlandi eru hálkublettir á Vatnsskarði og hálka á Öxnadalsheiði. Austanlands er hálka á Fjarðarheiði. Hálkublettir eru á Möðrudalsöræfum, Oddskarði, Breiðdalsheiði og Öxi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×