Fleiri fréttir

Alvarlegt ef ekki má tryggja börn með ADHD

Björk Þórarinsdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir alvarlegt ef börn með ADHD njóti ekki sömu tryggingaréttinda og önnur börn. Hún segir það geta hvatt til þess að fólk forðist greiningu og meðhöndlun á röskuninni.

Neysluvatn í Hveragerði ekki mengað

Ekki er arsenikk í drykkjarvatni Hvergerðinga. Þetta segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands en bóndi í sveitinni segist hafa misst tvær kýr vegna arsenikk mengunar í drykkjarvatni.

Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra

Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs.

Segir Suðurnes í heljargreipum Vinstri grænna

Viðræður um orkusölu til álversins í Helguvík eru komnar í loft upp og kveðst forstjóri HS Orku líta svo á að orkusölusamningur við Norðurál sé runninn úr gildi. Bæjarstjórinn í Garði segir Suðurnesjum vera að blæða út í atvinnuleysi og þau séu í heljargreipum Vinstri grænna.

„Þörfnumst þess að málið sé upplýst"

Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin.

„Sæll félagi Össur“ - Magma bað ráðherra um frið fyrir Vinstri grænum

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hlutaðist til um kaup Magma Energy í HS Orku nokkuð eftir að hann hætti sem iðnaðarráðherra, þótt orku- og auðlindamál heyrðu ekki undir hann. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, bað iðnaðarráðherra um frið fyrir Vinstri grænum í bréfi sem hann sendi á síðasta ári.

Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn

Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi.

Óttast greiðsluþrot Reykjanesbæjar

Kristinn Jakobsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjanesbæ, segist óttast að bærinn gæti verið settur undir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna. Hann segir skuldir bæjarsjóðs nema um 400% prósent af árstekjum og þetta hlutfall fari hækkandi. Bærinn hafi bjargað sér fyrir horn vegna gengishagnaðar en reksturinn sé of dýr.

Óttast arsenikkmengun i neysluvatni

Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, en tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum.

Öllum brugðið í Vesturbæjarskóla

Fólki var brugðið þegar að það sá tvo skúra sem voru svona illa útlítandi, segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Vesturbæjarskóla. Vísir sagði frá því fyrr í dag að foreldrar barna í Vesturbæjarskóla væri reiðir vegna tveggja hrörlegra skúra sem settir voru upp við Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeir eiga að hýsa sjö ára gamla nemendur skólans.

Fjölmenni við útför Hannesar

Fjölmenni var við útför Hannesar Þórs Helgasonar sem var gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan eitt í dag. Færri komust að í kirkjunni en vildu og var athöfninni því varpað á skjá í íþróttasal Víðistaðaskóla.

Breytingar hjá efnahagsbrotadeild

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út nýtt skipurit fyrir efnahagsbrotadeild embættisins sem gerir ráð fyrir að tveir saksóknarar starfi á rannsóknar- og ákærusviði deildarinnar. Eins og Vísir greindi frá í vor hefur Sigríði Elsu Kjartansdóttur, sem skipuð er saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, verið falið að gegna starfi saksóknara við efnahagsbrotadeild. Þá hefja fleiri nýir starfsmenn störf við deildina á næstunni.

Foreldrar í Vesturbæjarskóla æfir yfir aðstöðuleysi

Mikil reiði ríkir á meðal foreldra í Vesturbæjarskóla eftir að færanlegar skólastofur voru fluttar á lóð Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Skúrarnir voru fluttir á lóðina í gærkvöld. Þeim er ætlað að hýsa sjö ára gömul börn á meðan að skólastarfið stendur yfir í vetur.

Svíar kanna einnig tengsl milli bólusetningar og drómasýki

Sænska lyfjastofnunin er að athuga hvort samhengi geti verið milli bólusetningar við svínaflensu með bóluefninu Pandemrix og svefnflogum eða drómsýki. Hætt hefur verið að gefa bóluefnið við svínaflensu tímabundið í Finnlandi eða þar til endanlegar niðurstöður liggja fyrir um tengsl þess við sjúkdóminn.

Fleiri börn greinast með drómasýki í Finnlandi

Fleiri börn hafa greinst með drómasýki á síðustu sex mánuðum í Finnlandi en áður þekkist, og vilja einhverjir rekja það til bólusetningu við svínaflensu. Hætt hefur verið að gefa efnið Pandemix tímabundið, eða þar til niðurstaða liggur fyrir.

Kjör bænda skerðast um mánaðamótin

Bændur verða fyrir kjaraskerðingu um þessi mánaðamót þegar ríkið hættir að greiða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð þeirra. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda segir erfitt fyrir þá að vega skerðinguna upp með hækkun afurðaverðs.

Mistök gerð hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna

Tæknileg mistök hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna höfðu í för með sér að upp undir þúsund ífeyrisþegar fengu rangan útreikning. Þar var tilkynnt um lækkun eða jafnvel niðurfellingu á lífeyrisgreiðslum. Öryekjabandalagið vekur athygli á þessu og segir að leiðréttingarbréf sé væntanlegt frá greiðslustofunni.

Svíakóngur drakk kampavín á Austur

Karl Gústav, konungur Svíþjóðar, ákvað að gera sér dagamun á veitingastaðnum Austur í gærkvöld. Þar var hann í nokkuð fjölmennum hópi fólks og drakk kampavín, samkvæmt heimildum Vísis. Starfsfólk Austur staðfesti fréttirnar þegar Vísir hafði samband þangað en vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér um málið.

Morðið í Hafnarfirði: Karlmaður í haldi

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Hann hefur ekki verið yfirheyrður áður í tengslum við morðið.

Össur í Ríga

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tekur þátt í árlegum samráðsfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Ríga í Lettlandi í dag og á morgun.

Auðveldara að meta börn eftir átta ára aldur

Tryggingafélagið Sjóvá metur hvort hægt sé að tryggja börn með þroskaröskun, eins og ofvirkni með athyglisbrest, eftir að barnið hefur náð átta ára aldri, samkvæmt vinnureglum fyrirtækisins. Þetta segir Valborg Sveinsdóttir, sérfræðingur í persónutryggingum hjá Sjóvá. Hún segir að ástæðan sé sú að eftir þann aldur sé auðveldara að meta barnið.

Fleiri fóru til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra

Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði.

KFC og Góu lokað vegna útfarar Hannesar

Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir ellefu dögum, verður lokað í dag hjá Sælgætisgerðinni Góu-Lindu, á veitingastöðum KFC og Taco Bell ásamt skrifstofum þessara fyrirtækja. Hannes verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag klukkan 13.

Flokksskrifstofa rýmd vegna dufts í bréfi

Sex starfsmenn á skrifstofu danska jafnaðarmannaflokksins í Frederiksberg í Kaupmannahöfn hafa verið settir í einangrun eftir að bréf sem innihélt hvítt duft barst skrifstofunni í morgun. Flokksskrifstofan var rýmd og lokaði lögregla götum í grennd við skrifstofuna.

Ásta fundar með kvenþingforsetum ESB

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, situr fund kvenþingforseta aðildarríkja Evrópusambandsins í Varna í Búlgaríu á morgun í boði Tsetsku Tsachevu, forseta búlgarska þingsins. Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum aðildarríkja ESB auk umsóknarríkja. Aðalumræðuefni fundarins eru samskipti ólíkra menningarheima í Evrópu og notkun veraldarvefsins í því samhengi, að því er fram kemur á vef Alþingis.

Fær ekki að tryggja barn með athyglisbrest

Sunna Albertsdóttir fékk ekki að tryggja sjö ára gamlan son sinn sem er greindur með ofvirkni og athyglisbrest. Hún gagnrýnir Sjóvá og segir tryggingarskilmálana afar undarlega - til dæmis sé ekki hægt að tryggja börn sem greind eru með lesblindu.

Bæjarstjóri gáttaður á bréfi forstjóra Magma

„Ég er gáttur á þessu bréfi og það setur málið í allt aðra stöðu," segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, um bréf forstjóra Magma til iðnaðarráðherra. Hann segir að sett hafi verið upp leikrit í kringum sölu Íslandsbanka á hlut Geysis Green Energy í HS Orku til Magma í stað lífeyrissjóðanna eða Norðuráls. Hann telur að samkomulag hafi verið gert um að selja raforku HS Orku til annarra fyrirtækja en álvers Norðuráls í Helguvík.

Japanir boða hvalveiðiþjóðir til fundar

Japönsk stjórnvöld hafa boðið hvalveiðiþjóðum til fundar í nóvember til þess að efla samstöðuna um að taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni að nýju. Um 40 þjóðum hefur verið boðið til fundarins og eru Íslendingar og Norðmenn á meðal þeirra sem fengið hafa fundarboð.

NASA aðstoðar í Chile

Verkamönnunum sem eru fastir í námu í Chile hefur verið greint frá því þeir þurfi að dvelja niðurgrafnir til áramóta. Sérfræðingar frá NASA aðstoða nú við björgunaraðgerðirnar.

Hætta að niðurgreiða sígarettur á Kúbu

Stjórnvöld í Kúbu hafa tilkynnt að í næsta mánuði hætti þau að niðurgreiða sígarettur fyrir Kúbverja 55 ára og eldri líkt og hefur viðgengist um árabil. Þetta er gert til að draga úr kostnaði hins opinbera. Í hinu ríkisrekna dagblaði Granma segir ennfremur að sígarettur séu ekki meðal brýnustu lífsnauðsynjar.

Elin Nordegren: Gekk í gegnum helvíti

Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona Tiger Woods, segist hafa gengið í gegnum helvíti eftir að upp komst um svik kylfingsins. Elin hefur nú rofið þögnina og tjáð sig í fyrsta sinn um framhjáhaldið en eins og frægt er orðið stigu á annan tug kvenna fram í sviðsljósið á síðasta ári og fullyrtu að þær hefðu átt í sambandi við Tiger.

Innbrot í fyrirtæki á Laugavegi

Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki á Laugavegi um klukkan hálfsjö í morgun. Lögregla er á staðnum og rannsakar málið og málsatvik eru óljós sem stendur. Þá var einn ökumaður tekinn í höfuðborginni í nótt grunaður um ölvunarakstur en að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglu.

Meinti njósnarinn myrtur fyrir hálfum mánuði

Frekari rannsóknir verða gerðar á líki mannsins sem fannst myrtur á heimili sínu miðborg Lundúna á mánudag og starfaði á vegum bresku utanríkisleyniþjónustunnar MI6. Enn er á huldu við hvað maðurinn, sem var 31 árs, starfaði hjá leyniþjónustunni en getgátur hafa verið um að hann hafi verið njósnari. Hann hafði verið færður til milli starfa en áður vann hann hjá deild sem annaðist hleranir. Lík mannsins fannst í poka í baðherbergi en talið er að allt að hálfur mánuður sé frá því að hann var myrtur.

Evran hefði litlu breytt í hruninu

„Ég átti satt að segja von á því að aðild að myntbandalaginu myndi skipta meira máli,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.

Myrt fyrir að neita að þræla fyrir glæpagengi

Fólkið sem fannst myrt í Mexíkó í fyrradag var frá Mið- og Suður-Ameríku og huggðist fara ólöglega til Bandaríkjanna. Fólkið, 58 karlar og 14 konur, var myrt á strjálbýlu svæði í norðurhluta Mexíkó eftir að það neitaði að þræla fyrir glæpagengi við framleiðslu fíkniefna.

Nítján fórust í flugslysi

Nítján fórust þegar farþegaflugvél hrapaði í Afríkuríkinu Austur-Kongó í gærkvöldi. Tveir hafa fundist á lífi. Allt lítur út fyrir að flugvélin, sem var að gerðinni Let-410, hafi einfaldlega orðið eldsneytislaus í innanlandsflugi milli höfuðborgarinnar Kinshasa og Bandundu en hún hrapaði skammt frá flugvelli borgarinnar.

Ákæra um áreitni rannsökuð

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, á ekki lengur yfir höfði sér ákærur fyrir nein kynferðisbrot í Svíþjóð.

Niðurstöðu senn að vænta

Starfshópur um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu er að ljúka störfum. Drög að heildarskýrslu verða lögð fyrir á fundi hópsins í dag. Stefnt er að því að skýrslan líti dagsins ljós í næstu viku.

Engin kvörtun borist ríkislögreglustjóra

Ekkert erindi hefur borist embætti ríkislögreglustjóra varðandi ásakanir þess efnis að skráningum brotamála hjá lögreglu sé breytt þannig að þær gefi ranga tölfræðilega mynd af eðli og tíðni brota.

Ofurtollum beitt gegn samkeppni

Innflutningur á ostum og kjöti er nær útilokaður eftir að landbúnaðarráðherra breytti aðferð við álagningu tolla. Neytendur borga þúsundum króna meira fyrir hvert kíló af innfluttri vöru eftir breytingu.

Mígreni tengt meiri líkum á hjartaáfalli

Heilbrigðismál Auknar líkur eru á því að fólk með ákveðna tegund mígrenihöfuðverkja deyi af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Í niðurstöðum íslenskrar rannsóknar sem birt var í gær í vefútgáfu British Medical Journal (BMJ) kemur fram að fólk sem þjáist af mígreni með áru, en þá fylgja höfuðverknum sjón- eða skyntruflanir, sé í þessum áhættuhópi. Fólk með mígreni án áru er ekki í aukinni hættu.

Sjá næstu 50 fréttir