Öllum brugðið í Vesturbæjarskóla Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. ágúst 2010 16:30 Húsnæðið var girt af í dag. Mynd/ Reykjavíkurborg.
Fólki var brugðið þegar að það sá tvo skúra sem voru svona illa útlítandi, segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Vesturbæjarskóla. Vísir sagði frá því fyrr í dag að foreldrar barna í Vesturbæjarskóla væru æfareiðir vegna tveggja hrörlegra skúra sem settir voru upp við Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeir eiga að hýsa sjö ára gamla nemendur skólans. Slysahætta af húsunum Hildur segir að starfsfólk og foreldrar hafi tekið eftir því í morgun að ekki væri búið að girða í kringum skúrana. Því hafi þau óttast að húsnæðið myndi skapa slysahættu. „Við vissum að það myndu koma tvö lítil hús en það hafði enginn séð þetta fyrir sér," segir Hildur. Fólk hafi ímyndað sér að húsin yrðu alveg út við Hringbraut og tækju ekki mikið pláss. Vegna strangra reglugerða hafi niðurstaðan hins vegar orðið sú að skúrarnir voru settir á miðja skólalóðina. Það takmarkar mjög leiksvæði barnanna. Hildur segir að Fræðslustjóri Reykjavíkurborgar hafi komið í skólann í dag og rætt við foreldra. Þar hafi hann skýrt frá því að fræðsluyfirvöld myndu funda með Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar á morgun. Einnig verður Hildur sjálf viðstödd fundinn. „Ég held að allir séu sammála því að það þarf að finna varanlega lausn fyrir húsnæði frístundaheimilisins," segir Hildur. Lóð skólans sé of lítil til að bera það og því þurfi að leita annað. Hún segir að Vesturbæjarskóli sé of lítill og það verði að stækka hann. Þangað til verði að finna frístundaheimilinu sómasamlegan stað. Hildur á þó von á því að skúrarnir tveir sem komnir eru á lóðina verði gerðir upp og hafðir þar yfir veturinn. Húsin lagfærð Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem send var fjölmiðlum síðdegis kemur fram að starfsfólk skólans hafi vaktað svæði skólans á meðan skólastarf stóð yfir í dag til að tryggja öryggi barnanna. Svæðið hafi verið girt af í öryggisskyni á meðan unnið verði við frágang á húsunum og svæðinu í kring. Í tilkynningunni segir jafnframt að næstu daga verði unnið við lagfæringarnar á kennslustofunum en þær verði meðal annars málaðar og aðgengi bætt. Einnig verði hafist handa við að innrétta þær til að þjóna starfssemi frístundaheimilis. Þá segir að starfsemi hefjist ekki í húsnæðinu fyrr en að eftirlitsaðilar, eins og heilbrigðis- og eldvarnareftirlit, hafi gengið úr skugga um að það uppfylli þær kröfur sem gerðar séu til skólahúsnæðis.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Konur í Framsókn sjá að sér Innlent Fleiri fréttir Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Sjá meira