Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvalhræ urðað við Ásbúð Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað gert verði við hræið af Steypireyði sem rak á land við eyðibýlið Ásbúð á Skaga fyrir skömmu. Líklegt er þó að það verði urðað í fjörunni. 25.8.2010 18:41
Árni Friðriksson í olíuleit á Drekasvæðinu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er komið í olíuleit á Drekasvæðinu. Skipið safnar borkjarnasýnum úr efstu botnlögum til að kanna hvort í þeim leynist olía eða gas. Fréttir af gasfundi við Grænland gætu skipt Íslendinga máli. 25.8.2010 18:39
Eigum ekki að óttast EFTA-dómstólinn Lagaprófessor við Háskóla Íslands segir að íslensk stjórnvöld eigi ekki að óttast að láta EFTA-dómstólinn dæma í Icesave-málinu, en fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg niðurstaða af Íslendingar töpuðu málinu þar og vill frekar semja. 25.8.2010 18:30
Kirkjuráð biðst fyrirgefningar Kirkjuráð biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar biskups fyrirgefningar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá kirkjuráði. Þar kemur fram að Kirkjuráð trúi frásögnum þeirra Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og fyrir hönd þjóðkirkjunnar biðji kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. 25.8.2010 17:21
Lögreglan lýsir eftir Jóni Helga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Hann er fæddur þann 24.07.1993, er um 168 sm á hæð og 60 kg. Hann er með dökkt hár og ljósar strípur. Hann fór frá Hamarskoti í Flóa þann 12. ágúst. Talið er að hann dvelji í Reykjavík og ábendingar hafa borist um að hann hafi sést á ferð í Breiðholti. Þeim sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóns Helga er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1180. 25.8.2010 16:33
Nýjar vísbendingar um tengsl mígrenis og hjartaáfalla Fólk á miðjum aldri sem þjáist af mígrenihöfuðverkjum ásamt undanförum þeirra, sem geta verið sjóntruflanir, svimi og dofi, deyja frekar vegna hjarta og æðarsjúkdóma en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk 25.8.2010 16:30
Biskup ræddi við Pétur Hafstein um sannleiksnefnd Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði i dag með Pétri Kr. Hafstein um að sá síðarnefndi taki að sér að kanna möguleika á skipun nefndar til þess að fara yfir mál Ólafs Skúlasonar heitins biskups. Tillögur að nefndinni eiga að vera tilbúnar fyrir næsta kirkjuþing sem haldið er síðar á árinu. 25.8.2010 14:55
Kynungabók komin út Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu 25.8.2010 14:12
Fullnægjandi lyktir í máli Geirs Niðurstaða fundar Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, og Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, í morgun er fullnægjandi að mati Guðbjargar Jóhannesdóttur, formanns Prestafélags Íslands. Geir hafði verið gagnrýndur fyrir að segja í blaðagrein að hann teldi þagnaskyldu presta vera algera. Eftir fund hans og biskups í morgun lýsti sá síðarnefndi því yfir að Geir myndi hlýða tilkynningaskyldu. 25.8.2010 14:00
Ögmundur: Jón er ekki einn Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir menn fara hamförum gegn samflokksmanni hans, Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og líkja megi því við einelti. Ögmundur segir að Jón sé ekki einn í afstöðu sinni að vera andvígur aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 25.8.2010 13:25
Lögreglan sýnilegri við skólana á næstunni Framhaldsskólar og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og má því búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. 25.8.2010 12:55
Fundur um makrílveiðar smábáts mikilvægari Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kaus á funda með eigendum lítils sjávarútvegsfyrirtækis á Rifi á Snæfellsnesi, um reynslu af makrílveiðum smábáts, fremur en að sitja ríkisstjórnarfund í gærmorgun. 25.8.2010 12:12
Peningar í óskilum Peningar, sem fundust í vesturbæ Reykjavíkur, eru í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra í afgreiðslu lögreglunnar á Hverfisgötu 115, Reykjavík, sem er opin virka daga frá kl. 8-16. Afhending fer fram gegn staðfestingu á eignarhaldi, segir í tilkynningu frá lögreglunni. 25.8.2010 12:09
Grænland datt í lukkupottinn Fréttir í gær um að gas hefði fundist undan ströndum Grænlands og vísbendingar um olíu eru taldar auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja að hefja olíuleit allt í kringum þetta næsta nágrannaríki Íslands. 25.8.2010 12:07
Enginn í haldi lögreglu vegna morðsins Enginn er nú í haldi lögreglu vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni að sögn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er enn í fullum gangi og voru nokkrir aðilar yfirheyrðir í gærkvöldi. Yfirheyrslum verður framhaldið í dag að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. Tíu dagar eru nú liðnir síðan Hannes fannst myrtur á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði. 25.8.2010 12:00
Þjófagengi í Árbæ: Tveimur sleppt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. 25.8.2010 12:00
Ágreiningur leystur í Svíþjóð vegna ákvæða í samningi Norðurál hefur stefnt HS Orku fyrir gerðardóm í Svíþjóð vegna ágreinings um magn og verð á raforku fyrir álver í Helguvík. Ástæða þess að ágreiningurinn verður leystur í Svíþjóð er ákvæði í samningi HS Orku og Norðuráls og hefur ekkert með eignarhaldið á HS Orku að gera. 25.8.2010 12:00
Síra Geir hlýðir tilkynningaskyldu Síra Geir Waage, prestur í Reykholti, mun hér eftir sem hingað til hlýða þeirri tilkynningaskyldu og samsvarandi ákvæðum sem kveðið er á um í siðareglum þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu. Síra Geir fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands í morgun. 25.8.2010 11:47
Týr aðstoðar vélarvana togara Varðskipið Týr kom um klukkan fjögur í nótt að erlendum togara sem hann var vélarvana um 490 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi. Varðskipið lagði úr höfn síðdegis á mánudag til aðstoðar togaranum sem er 60 metra langur. Þegar varðskipið kom að togaranum í nótt var dráttarlínu skotið yfir og gekk aðgerðin vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Hagstæða veðurskilyrði eru á svæðinu og standa vonir til að varðskipið verði komið í Faxaflóa á laugardag. 25.8.2010 11:43
Starfsmenn Gæslunnar fræddir um Senegal Starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem héldu til Afríkuríksins Senegals um síðustu helgi fengu áður færðslu um landið. Fram í október mun TF-SIF, flugvél Gæslunnar flaug sinna landamæraeftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Varðskipið Ægir hefur sinnt sama verkefni frá byrjun maí. 25.8.2010 11:23
Biskup fundar með síra Geir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og síra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, funda nú saman á Biskupsstofu. Biskup boðaði Geir til fundarins vegna blaðagreinar sem hann skrifaði um helgina. Þar sagði Geir að þagnaskylda presta gagnvart þeim sem skrifta væri alger. 25.8.2010 11:04
Eyjafjallaaskan braut náttúrulögmál Askan úr Eyjafjallajökli fauk mun lengri vegalengd en mögulegt ætti að vera. Þýskir vísindamenn hafa rannsakað öskuna frá fjallinu. 25.8.2010 10:59
Biskup biðjist afsökunar Séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir vaxandi stuðning meðal presta við að skipuð verði sannleiksnefnd til að rannsaka meint kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Hann segist skilja gremju almennings til Þjóðkirkjunnar sem telji að ekki sé verið að gera málin upp. Þórhallur vill að Karl Sigurbjörnsson, biskup, biðjist afsökunar fyrir hönd kirkjunnar. 25.8.2010 10:17
Ölvaðir ökumenn greiða tryggingafélögum milljónir Vátryggingafélag, sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völdum ökutækja, á endurkröfurétt á hendur þeim, sem veldur tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Slíkar endurkröfur á tjónvalda í umferðinni hafa aldrei verið fleiri en í fyrra, samkvæmt tilkynningu sem endurkröfunefnd sendi frá sér í morgun. 25.8.2010 10:09
Ólafur Skúlason hlaut fálkaorðuna fjórum sinnum Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup Íslands, hlaut fálkaorðuna fjórum sinnum á meðan að hann lifði. Orðustigin sem forseti Íslands veitir eru fimm og hlaut Ólafur þau öll nema æðsta stigið sem er keðja ásamt stórkrossstjörnu. 25.8.2010 08:00
Vargöld í Mexíkó: Fundu 72 lík Tugir líka fundust í Mexíkó í gær. Talið er að fólkið hafi verið myrt í tengslum við átök um fíknefnamarkaðinn í landinu. 25.8.2010 07:54
Wikileaks: CIA skjölin birt í dag Forsvarsmenn vefsíðunnar Wikileaks gáfu það út í gærkvöldi að þær hyggist birta leyniskjöl frá bandarísku leyniþjónustunni CIA í dag. Ekki er gefin upp nákvæm tímasetning. Skjölin eru síðari hluti af skjalasafni sem varðar aðfarir bandaríska hersins í Afganistan. 25.8.2010 07:44
Sakar yfirvöld í S-Afríku um þjóðarmorð Suður-afrískur maður sakar þarlend stjórnvöld um þjóðarmorð í erindi sem hann hefur sent Sameinuðu þjóðunum. Hann segir 40 þúsund hvíta bændur hafa verið myrta í landinu á undanförnum árum. 25.8.2010 07:09
Meintur njósnari fannst látinn í poka Talið er að maður sem fannst myrtur í miðborg Lundúna á mánudag hafi verið njósnari á vegum bresku utanríkisleyniþjónustunnar MI6. Lík mannsins fannst í poka í baðhergi íbúðar skammt frá höfuðstöðvðum leyniþjónustunnar sem verst allra fregna af málinu. Lundúnalögreglan fer með rannsókn málsins enn sem komið er. 25.8.2010 07:04
Vill 40 þyrlur Sameinuðu þjóðirnar þurfa mun fleiri þyrlur til að geta sinnt neyðaraðgerðum á flóðasvæðunum í Pakistan. Samtökin hafa yfir að ráða tíu þyrlum í dag en John Holmes, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðanna, segir brýnt að fjölga þeim upp í 50. 25.8.2010 07:02
Fleiri smitast í Bretlandi Um hálf milljón manna smitaðist af kynsjúkdómi í Bretlandi á síðasta ári en það er nærri 12 þúsund fleiri en árið 2008. Þetta sýna nýjar tölur breskra heilbrigðisyfirvalda sem segja mikilvægt að reka aukinn áróður fyrir notkun smokks. 25.8.2010 06:59
Sex ráðherrar vilja aðskilnað ríkis og kirkju Helmingur ríkisstjórnarinnar vill aðskilnað ríkis og kirkju. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist íhuga að segja sig úr þjóðkirkjunni á blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi í gær en vildi þó ekki gefa upp hvort það væri í ljósi atburða síðustu daga. 25.8.2010 06:30
Fimm manna þjófagengi handtekið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. Mennirnir voru í haldi síðdegis í gær og stóðu yfirheyrslur þá enn yfir. 25.8.2010 06:15
Olíufundur þar ýtir undir áhuga á rannsóknum hér Fundur skoska olíufélagsins Cairn Energy á gasi og olíu í sandlagi á hafsbotni undan vesturströnd Grænlands kann að ýta undir áhuga á olíurannsóknum á íslenska landgrunninu. Cairn upplýsti í gær að fundist hefðu vísbendingar um olíu í fyrstu tilraunaborholu félagsins á Baffinsflóa. Í umfjöllun Berlingske Tidende í gær var félagið sagt hafa fengið „bingó“ eftir sex vikna leit. 25.8.2010 06:00
Erum neðst Vestur-Evrópuríkja Ísland er staðsett á milli Egyptalands og Papúa Nýju-Gíneu á lista yfir lönd þegar borinn er saman hagvöxtur í þeim síðustu tvo áratugi. 25.8.2010 05:00
Bannað að selja heitt vatn til Hvergerðinga Fyrirtækið Ræktunarmiðstöðin sf. sem verið hefur í rekstri gróðrarstöðvar og jarðverktöku fær ekki að selja Hvergerðingum heitt vatn og gufu. 25.8.2010 05:00
Eyjamenn vilja fleiri ferðir Herjólfs Vestmanneyingar vilja að ferðum Herjólfs milli Eyja og Landeyjahafnar verði fjölgað. Einungis er mánuður frá því að ný Landeyjahöfn var tekin í notkun og ferðum var fjölgað verulega en bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að skipið anni ekki eftirspurn að óbreyttu. 25.8.2010 04:00
Stærsta laxi sumarsins var sleppt „Hann var eins og fallegt, feitt konulæri,“ segir Geir Gunnarsson, forstjóri Honda-umboðsins, sem í gær veiddi stærsta lax sumarins, 110 sentimetra langan og 51 sentimetra að ummáli. 25.8.2010 02:30
Kýldi mann og kinnbeinsbraut Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. 25.8.2010 02:00
Sló og sparkaði í fangavörð Ríkissaksóknari hefur ákært konu á fimmtugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni. 25.8.2010 01:45
Ráðherrar hitta iðnaðarnefnd Iðnaðarnefnd Alþingis ætlar að fá umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra á sinn fund á morgun til þess að ræða stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og áhrif þeirrar stækkunar á áform um Norðlingaölduveitu. 25.8.2010 01:30
Skáru göt á sextíu heyrúllur Skorið var á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar en skemmdarverkin voru unnin fimmtudagskvöldið 19. ágúst eða aðfaranótt föstudagsins. 25.8.2010 01:00
Nærri helmingur bjargaðist Kínversk farþegaþota brotlenti í aðflugi að flugvelli við borgina Yichun, sem er milljón manna stórborg í Heilongjiang-héraði í norðanverðu Kína. 25.8.2010 00:30
Lítið skeytt um Pakistan? Hjálparstofnanir segja að alþjóðasamfélagið sýni óvenjulítinn áhuga á að styðja við fórnarlömb flóðanna í Pakistan. 25.8.2010 00:00
Búið að slökkva eldinn Eldur kviknaði í íbúð að Jörfabakka í Breiðholti fyrir stundu. Um er að ræða fjölbýlishús. Samkvæmt varðstjóra var eldurinn ekki kominn á gang hússins og þurfti ekki að flytja aðra íbúa út úr húsinu vegna eldsins. 24.8.2010 22:29