Óttast greiðsluþrot Reykjanesbæjar SB skrifar 26. ágúst 2010 17:33 Kristinn Jakobsson hefur áhyggjur af skuldastöðu Reykjanesbæjar.
Kristinn Jakobsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjanesbæ, segist óttast að bærinn gæti verið settur undir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna. Hann segir skuldir bæjarsjóðs nema um 400% prósent af árstekjum og þetta hlutfall fari hækkandi. Bærinn hafi bjargað sér fyrir horn vegna gengishagnaðar en reksturinn sé of dýr. „Samkvæmt 6 mánaða rekstraruppgjöri var tap upp á 566 milljónir króna," segir Kristinn. „Það lítur því út fyrir að það sé alvarleg staða á bæjarsjóði." Í bókun sem Kristinn lagði fram á dögunum bendir hann á að ekki hafi tekist að ná endum saman í rekstri bæjarfélagsins. Hann segir að samkvæmt tillögu um breytingar á sveitastjórnarlögum eigi hlutfall skulda A og B hluta bæjarfélaga ekki að vera hærri en 150% af árstekjum sveitarfélaga. „Skuldir Álftaness voru yfir 400% af árstekjum þegar þeir fóru undir eftirlitsnefndina. Okkar var 399% á sama tíma og ég óttast að þessi tala muni hækka," segir Kristinn. Hann segir markmiðið með bókunina hafa verið að vekja athygli á þessari alvarlegu stöðu bæjarsjóðs. „Nú er að fara af stað endurskoðun fjárhagsáætlunar og því mikilvægt að bregðast rétt við," segir Kristinn.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Sjá meira