Innlent

Foreldrar í Vesturbæjarskóla æfir yfir aðstöðuleysi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mikil reiði ríkir á meðal foreldra barna í Vesturbæjarskóla eftir að færanlegar skólastofur voru fluttar á lóð Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeim er ætlað að hýsa sjö ára gömul börn á meðan að skólastarfið stendur yfir í vetur. Skúrarnir eru mjög hrörlegir á að líta og standast engan veginn þær kröfur sem gerðar eru til nútíma skólahúsnæðis.

„Ég held að það sé allt logandi yfir þessu," segir Sigrún Sigurðardóttir, móðir tveggja barna í skólanum, sem hefur látið sig málið varða. „Ég get líka fullyrt að eldri nemendur i skólanum eru mjög reiðir vegna þess að það er verið að skerða mjög mikið af þeirra litla leiksvæði," segir Sigrún. Hún spyr sig líka hvort skólinn standist öryggiskröfur. „Það hefur fjölgað svo mikið í skólanum en engin varanleg lausn í húsnæðismálum. Þetta er ástand sem er orðið þannig að það verður að fara að bregðast við því," segir Sigrún í samtali við Vísi.

Fleiri foreldrar barna í Vesturbæjarskóla eru á máli Sigrúnar. Helga Vala Helgadóttir, lögfræðingur og móðir, tekur sterkt til orða um kofana á skólalóð Vesturbæjarskóla og rifjar upp að frístundaheimili hangi saman við markmið um heilsdagsskóla. „Hér á að rækta þeirra sálir í heilsdagsskólunum! Kofarnir taka helminginn af því plássi sem 330 börn hafa til að leika sér í frímínútum. Og þá reyndar geri ég ekki ráð fyrir því plássi sem nú er undir skúrunum því vissulega geta hugmyndarík börn dundað sér við að festast undir þessu ógeði," segir Helga Vala á fésbókarsíðu sinni.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×