Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þurfa að dvelja niðurgrafnir til áramóta - deilt um upplýsingaskyldu Námuverkamennirnir þrjátíu og þrír frá Chile sem setið hafa fastir í námu síðustu átján daga, sungu þjóðsönginn og þökkuðu björgunarfólki í gær. Það sem þeir vita líklega ekki er að þeir þurfa að dvelja í námunni fram að áramótum. 24.8.2010 19:12
Ungliðar krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar Ungir Jafnaðarmenn krefjast tafarlausrar afsagnar Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vegna ummæla hans um ESB og birtust í Morgunblaðinu í dag. 24.8.2010 18:00
Skemmdarvargar brutu úrkomumæli í Vestmannaeyjum Óprúttnir aðilar unnu skemmdir á úrkomumæli Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið í Vestmannaeyjum. 24.8.2010 17:14
Hundruð manna til Þjóðskrár Hundruð manna hafa lagt leið sína á skrifstofu Þjóðskrár Íslands í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur stór fjöldi þeirra verið þar til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni en nákvæmar tölur um það liggja ekki fyrir. 24.8.2010 16:00
Ökumanninum sleppt eftir skýrslutökur Maðurinn sem var handtekinn ölvaður eftir að hafa keyrt inn í anddyri Íslandsbanka er laus úr haldi lögreglunnar. Honum var sleppt eftir hádegi í dag eftir skýrslutökur á lögreglustöð. 24.8.2010 15:10
Um 80 þúsund tóku strætó Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi. 24.8.2010 15:20
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning hafin Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitafélaga hófst í dag. Hún mun standa til næsta mánudags. Gögn um samninginn voru send trúnaðarmönnum í gær í tölvupósti. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn 24.8.2010 14:36
David Cameron eignast fjórða barnið Breska forsætisráðherrafrúin Samantha Cameron hefur alið manni sínum fjórða barn þeirra hjóna. Barnið er stúlka. Í tilkynningu sem breski forsætisráðherrabústaðurinn sendi fjölmiðlum segir að bæði móður og barni heilsist vel. Í yfirlýsingu sem talsmaður forsætisráðherrans las fyrir fjölmiðla þökkuðu forsætisráðherrahjónin læknum og hjúkrunarfólki fyrir þeirra þátt við fæðinguna. 24.8.2010 13:40
Færri og stærri heilsugæslustöðvar gætu skilað tíu prósenta sparnaði Til að tryggja að fólk leiti að jafnaði fyrst til heilsugæslunnar, áður en það fer til dýrari sérfræðinga, er lagt til að leggja mishá komugjöld á sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, í vinnuskýrslu um eflingu heilsugæslunnar. Fækkun og stækkun heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu gæti skilað tíu prósenta sparnaði. 24.8.2010 12:53
Forsætisráðherra hefur íhugað að segja sig úr Þjóðkirkjunni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur íhugað að segja sig úr Þjóðkirkjunni. Þetta sagði hún við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í dag. Jóhanna vildi ekki svara því hvort þessar íhuganir hennar væru tilkomnar vegna nýjustu málefna Þjóðkirkjunnar. 24.8.2010 12:42
Framandi úrræði að vista þýska vandræðaunglinga á Íslandi Forstöðumaður félags- og skólaþjónustu Snæfellinga segir það framandi úrræði og fjarrænt að senda þýska unglinga til vistunar á íslenskum sveitaheimilum eins og gert hefur verið undanfarin ár. Unglingarnir eru settir á heimili þar sem ekki er töluð þýska og ganga í skóla á meðan þeir eru vistaði hér. 24.8.2010 12:42
Bardagasveitir enn til staðar í Írak Fregnir af því að allar bardagasveitir bandaríska hersins séu farnar frá Írak, virðast ekki alfarið á rökum reistar. 24.8.2010 12:31
Segir Karl hafa þrýst á Ólaf að segja af sér Fyrrverandi biskupsritari segist hafa lagt að Ólafi Skúlasyni að segja af sér embætti. Það hafi núverandi biskup einnig gert. Ólafur hafi hinsvegar tekið illa í þær hugmyndir því hann hafi litið svo á að með því hafi hann verið að viðurkenna þær ásakanir sem á hann voru bornar. Hann segist í engum vafa um að ásakanirnar hafi alla tíð verið réttar. 24.8.2010 12:20
Garðar á þaki höfuðstöðva Landsbankans Arkitektastofan Work í New York birti nýlega teikningar sínar af nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Stofan tók þátt í samkeppni um hönnun þeirra árið 2007 og var tillaga hennar ein af fimm sem valdar voru til áframhaldandi þróunar. Líkt og margar aðrar teikningar sem gerðar voru í góðærinu verða þessar eflaust ekki að veruleika. 24.8.2010 12:14
Dreifðu brauði fyrir utan Stjórnarráðshúsið Vörubílstjórinn Sturla Jónsson mótmælti í félagi við annan mann fyrir utan Stjórnarráðshúsið í dag þar sem fram fór ríkisstjórnarfundur. Í samtali við fréttamann á staðnum sagði Sturla sig og félaga sinn dreifa brauði fyrir utan húsið til að laða máva að lóðinni í mótmælaskyni við sitjandi ríkisstjórn. 24.8.2010 11:33
Ásta Björg ráðin sveitarstjóri Skagafjarðar Ákveðið hefur verið að ráða Ástu Björgu Pálmadóttur, núverandi útibússtjóra Landsbanka Íslands á Sauðárkróki, sem sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Miðað er við að hún hefji störf um miðjan september. 24.8.2010 11:06
Vann ekki á KFC Íslenski karlmaðurinn sem er í haldi lögreglunnar í Litháen eftir að hafa verið tekin með eitt kíló af fíkniefnum vann ekki á KFC-kjúklingastað í Vilníus eins og mishermt var í Fréttablaðinu í dag. 24.8.2010 11:00
Harðari viðurlög við brotum á banni við áfengisauglýsingum Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir að þar sem ekki hafi tekist að draga nægjanlega mikið úr áfengisneyslu landsmanna verði að grípa til árangsríkari aðgerða. Hún vill að harðar verði tekið á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum. 24.8.2010 11:00
Vill 700 þúsund krónur vegna ólögmætrar handtöku Ungur karlmaður hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir ólögmæta handtöku. Maðurinn var handtekinn í júní í hitteðfyrra vegna gruns um aðildar að líkamsárás. Manninum var haldið í tíu klukkustundir á lögreglustöð á meðan yfirheyrslur fóru fram. Honum var síðan sleppt. 24.8.2010 10:45
Viðgerð hafin á anddyri Íslandsbanka Viðgerð er hafin á anddyri Íslandsbanka við Kirkjusand. Um tvöleytið í nótt ók ölvaður maður inn í bygginguna í gegnum glerdyr. Hann sakaði ekki. Lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvun mannsins. Ekki liggur fyrir hve mikið tjónið er. 24.8.2010 10:02
Skar á 62 heyrúllur Óprúttinn aðili tók sig til og skar á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum, annað hvort á síðasta fimmtudagskvöld eða aðfararnótt föstudagsins. Lögreglan á Selfossi segir það vera ljóst að þarna sé um að ræða tjón sem talið er í hundruðum þúsunda en umtalsverður kostnaður felst í því að pakka rúllunum upp og óvíst er hversu mikið tjón verður á heyinu við það að súrefni kemst að því. 24.8.2010 09:46
Þagnarskylda takmarkast við öryggi barna Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, segir prestum skylt að tilkynna um brot gegn börnum. Að hans mati lýkur þagnarskylda presta þegar kemur að barnaverndarlögum. Þagnarskylda víkur þannig fyrir tilkynningarskyldu. 24.8.2010 09:42
Ökumenn séu varir um sig Umferðarstofa minnir ökumenn á yngstu þátttakendurna í umferðinni, sem eru mörg hver á gangi til og frá skóla þessa dagana. Það er mikilvægt að ökumenn takmarki hraða í íbúðahverfum og við skóla en einnig þarf að taka tillit til þess að börn skynja umhverfi sitt á annan hátt en fullorðinn. 24.8.2010 09:11
Hannes jarðsunginn á fimmtudag Hannes Þór Helgason sem myrtur var á heimili sínu fyrir rúmri viku verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á fimmtudaginn. 24.8.2010 08:47
Fengu túnfisk og mjólkursopa á tveggja daga fresti Námuverkamennirnir 33 sem setið hafa fastir í námu í Chile í tæpar þrjár vikur fengu tvær skeiðar af túnfisk úr dós, mjólkursopa og kexköku á tveggja daga fresti áður en björgunarsveitarmenn fundu þá. 24.8.2010 08:10
Jóhanna meðal mestu kvenleiðtoga heims Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er í öðru sæti á lista tímaritsins Time yfir tíu mestu kvenleiðtoga heims sem birtur var í gær. Að mati tímaritsins er Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, sú áhrifamesta en í þriðja sæti er Cristina Fernández de Kirchner, forseti Argentíu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er í fimmta sæti og þá er Tarja Halonen, forseti Finnlands, í því áttunda. 24.8.2010 07:09
Átta ferðamenn féllu í gíslatökunni á Fillipseyjum Nú er ljóst að átta kínverskir ferðamenn létu lífið þegar fyrrverandi lögreglumaður réðst inn í rútu á Fillipseyjum og tók 24 í gíslingu í gær. Tveir eru enn alvarlega slasaðir. Gíslatökumaðurinn sem var 55 ára gamall krafðist þess að verða endurráðinn en hann var rekinn úr starfi fyrir tveimur árum. Maðurinn fullyrti að hann hefði verið borinn röngum sökum. 24.8.2010 07:04
Réttað yfir lækni Jackson í byrjun næsta árs Læknir Michaels Jackson sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi vegna andláts popparans verður spurður spjörunum úr í byrjun janúar á næsta ári þegar réttarhöldunum verður framhaldið. Þetta var niðurstaða dómara í Los Angeles í gær. 24.8.2010 07:03
Ók inn í bankann Bifreið var ekið inn í Íslandsbanka á Kirkjusandi klukkan rúmlega tvö í nótt. Að sögn lögreglu var ökumaðurinn ölvaður og fór bíllinn í gegnum glerhurð í andyri og hálfur í gegnum vegg þar fyrir innan. Ökumanninn sakaði ekki en lögregla telur að um ásetning hafi verið að ræða þrátt fyrir ölvunina. Ekki mun þó hafa verið um ránstilraun að ræða heldur fremur að maðurinn hafi talið sig eiga óuppgerðar sakir við bankann. Hann gistir nú fangageymslur og bíður þess að komast í yfirheyrslu. 24.8.2010 06:58
Almenningur vill sjá vægari refsingar Almennir borgarar á Norðurlöndunum eru refsimildari en dómstólar þeirra. Þetta sýnir umfangsmikil norræn rannsókn á afstöðu almennra borgara til refsinga. Niðurstöðurnar voru kynntar á norrænu dómstólaþingi í Kaupmannahöfn síðastliðinn fimmtudag. 24.8.2010 06:15
Sá sem talar fyrir fólkið mun sigra Reynsla Norðmanna af tveimur atkvæðagreiðslum um aðild að því sem í dag heitir Evrópusambandið sýnir að það eru ekki endilega efnahagsleg rök eða varðstaða um auðlindir sem ráða mestu um útkomuna, heldur eðli þeirrar orðræðu sem andstæðar fylkingar hafa uppi. 24.8.2010 06:15
Þjóðkirkjan hrökk í vörn Karl Sigurbjörnsson biskup segir kirkjuna hafa brugðist í málefnum kvennanna þriggja sem leituðu hjálpar vegna kynferðislegrar áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar biskups. Hann vísar því á bug að hafa reynt að þvinga konurnar til að falla frá ásökununum. Biskup segir málið snúið og auðvelt sé að vera vitur eftir á. Hann segir þjóðkirkjuna hafa brugðist og greinilegt sé að ekki hafi verið komið konunum til hjálpar. 24.8.2010 06:00
Kertum fleytt í minningu Hannesar Þórs Helgasonar Mörg hundruð manns söfnuðust saman við lækinn í Hafnarfirði í kvöld til að minnast Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu fyrir um viku. Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið. Kertum var fleytt á lækinn og Flensborgarkórinn söng lög. Fjölskylda Hannesar var meðal viðstaddra og einkenndi mikill samhugur og samkennd þessa minningarstund. 23.8.2010 21:22
Biskupinn í Kastljósinu: Ætla ekki að segja af mér Karl Sigurbjörnsson neitar því að hafa hvatt konurnar, sem sökuðu Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisofbeldi, að draga ásakanir sínar til baka. Hann segist ekki rengja sögu Guðrúnar Ebbu, dóttir Ólafs Skúlasonar, sem jafnframt sakaði biskupinn um kynferðisofbeldi. Karl sagði í Kastljósviðtalinu ekki telja ástæðu til að hann stigi til hilðar. 23.8.2010 19:52
Slitastjórn í mál við fyrrum bankastjóra Slitastjórn Landsbankans ætlar að krefjast fjögur hundruð milljóna króna af fyrrverandi bankastjórum bankans, Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, og millistjórnanda í bankanum, fyrir að hafa innleyst kaupréttasamninga nokkrum dögum fyrir hrun þrátt fyrir að þeir væru ekki innleysanlegir fyrr en um tveimur mánuðum síðar. 23.8.2010 18:16
Vifta bilaði í járnblendiverksmiðjunni Ástæðan fyrir reyknum úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga var bilun í viftu í reykhreinsivirki verksmiðjunnar. Í tíufréttum Rúv var haft eftir Einari Þorsteinssyni, forstjóra Elkem, að enga hættu stafi af reyknum og búið sé að tilkynna atvikið til umhverfisstofnunar líkt og lög og reglur geri ráð fyrir. 23.8.2010 22:34
Tiger Woods skilinn Kylfingurinn Tiger Woods og Elin Nordegren eru skilin. Í yfirlýsingu frá hjónunum sem birt var í dag á heimasíðu Tiger Woods kemur fram að þau muni hafa sameiginlegt forræði yfir börnum sínum. 23.8.2010 20:56
Reykur upp úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga Sjónvarvottar segja mikinn reyk stíga upp úr járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Lögreglan á Borgarnesi segist ekki hafa fengið tilkynningu um eld í verksmiðjunni. Hins vegar geti hún staðfest að reykur berist frá verksmiðjunni en ekki hafi borist beiðni um hjálp. Starfsmaður járnblendiverksmiðjunnar sem Vísir ræddi við vildi ekki tjá sig um ástæður þess að reykur berst frá verksmiðjunni. 23.8.2010 20:30
Biskup rúinn trausti Staða Karls Sigurbjörnssonar biskups er mjög veik, segir Andrés Jónsson, formaður Almannatengslafélags Íslands. Karl hefur staðið í miklum ólgusjó undanfarna sólarhringa vegna umræðu um kynferðisbrot innan Þjóðkirkjunnar. 23.8.2010 19:45
Vill að leynd yfir skýrslu um útigangsmenn sé aflétt Fulltrúi Vinstri grænna í velferðarráði Reykjavíkur gagnrýnir leynd yfir skýrslu um málefni utangarðsfólks. Hann hefur farið fram á að trúnaði um skýrsluna verði aflétt. 23.8.2010 19:16
Skuldir Orkuveitunnar tífaldast á tíu árum Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hafa tífaldast á innan við áratug. Allir flokkar í borgarstjórn hafa átt fulltrúa í meirihluta stjórnar Orkuveitunnar á þessum tíma, en fimm af sex stjórnarformönnum eru úr sjálfstæðis- og framsóknarflokki. 23.8.2010 18:41
Lögreglan rannsakar saurmengun á Þingvöllum Lögreglurannsókn er hafin á seyrulosunarmálinu á Þingvöllum. Sýnataka úr neysluvatni síðan á miðvikudag bendir ekki til að vatn sé mengað, þó óyggjandi niðurstöður liggi enn ekki fyrir. 23.8.2010 18:30
Pakistanar á Íslandi kalla eftir aðstoð Pakistanar hér á landi kalla eftir aðstoð vegna flóðanna í landinu. Þau færi samfélagið áratugi aftur í tímann og mikið fé þurfi til endurbyggingar. Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall sitt til þjóða heims um aðstoð. 23.8.2010 18:29
Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996. 23.8.2010 18:22
Makrílstríð: Breskur þingmaður vill viðskiptabann á Íslendinga Fyrst hrundu bankarnir, svo gaus Eyjafjallajökull og nú ætla Íslendingar að svipta fiskveiðimenn okkar lífsviðurværinu. Svona hljómar fyrirsögnin á frétt Daily Mail um makrílveiðar Íslendinga. Í greininni rifjar Daily Mail upp þorskastríðið og segir Íslendinga haga sér eins og bandóðir víkingar. 23.8.2010 17:33