Innlent

Hannes jarðsunginn á fimmtudag

Faðir Hannesar, Helgi Vilhjálmsson, fleytti kerti til minningar um son sinn við Lækinn í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Faðir Hannesar, Helgi Vilhjálmsson, fleytti kerti til minningar um son sinn við Lækinn í Hafnarfirði í gærkvöldi. Mynd/Valgarður Gíslason

Hannes Þór Helgason sem myrtur var á heimili sínu fyrir rúmri viku verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði næstkomandi fimmtudag klukkan 13.



Mörg hundruð manns söfnuðust saman við Lækinn í Hafnarfirði í gærkvöldi til að minnast Hannesar. Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið, að sögn viðstaddra. Kertum var fleytt á lækinn og Flensborgarkórinn söng lög. Fjölskylda Hannesar var meðal viðstaddra og einkenndi mikill samhugur og samkennd þessa minningarstund.



Nýliðna helgi notaði lögregla til að fara yfir gögn sem aflað hefur verið, bæði með tæknirannsóknum á vettvangi og annars staðar frá. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn, segir í Fréttablaðinu í dag talsvert hafa borist af upplýsingum og ábendingum frá almenningi, sem verið sé að vinna úr samhliða fleiri þáttum málsins. Hann segir á fjórða tug manna hafa mætt hjá lögreglu. Enginn sé í haldi grunaður um verknaðinn.

Fjöldi fólks var saman komið við lækinn í Hafnarfirði til að heiðra minningu Hannesar.
Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið.
Banamaður Hannesar er enn ófundinn.
Kertum fleytt á lækinn til minningar um Hannes.
Kór Flensborgarskólans söng lög.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×