Innlent

Reykur upp úr járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga

Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga.
Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga.

Sjónvarvottar segja mikinn reyk stíga upp úr járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Lögreglan á Borgarnesi segist ekki hafa fengið tilkynningu um eld í verksmiðjunni. Hins vegar geti hún staðfest að reykur berist frá verksmiðjunni en ekki hafi borist beiðni um hjálp. Starfsmaður járnblendiverksmiðjunnar sem Vísir ræddi við vildi ekki tjá sig um ástæður þess að reykur berst frá verksmiðjunni.

Þann 29. júní síðastliðinn varð sprenging í verksmiðjunni með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið. Í kjölfarið átti að fara fram úttekt og rannsókn á örygisþáttum verksmiðjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×