Segir Karl hafa þrýst á Ólaf að segja af sér 24. ágúst 2010 12:20 Baldur Kristjánsson, fyrrverandi biskupsritari.
Fyrrverandi biskupsritari segist hafa lagt að Ólafi Skúlasyni að segja af sér embætti. Það hafi núverandi biskup einnig gert. Ólafur hafi hinsvegar tekið illa í þær hugmyndir því hann hafi litið svo á að með því hafi hann verið að viðurkenna þær ásakanir sem á hann voru bornar. Hann segist í engum vafa um að ásakanirnar hafi alla tíð verið réttar. Baldur Kristjánsson prestur og fyrrum biskupsritari segist á bloggsíðu sinni hafa átt fund með Ólafi ásamt Karli Sigurbjörnssyni og Guðmundi Þorsteinsyni, þar sem þeir hafi lagt til að Ólafur myndi segja af sér embætti. Það hafi verið mönnum erfitt, enda hafi Ólafur verið kotroskinn og óskorðaður foringi jafnaldra sinna í prestastétt. Þetta hafi verið gert án tillits til þess hvað hafi verið hæft í ásökunum kvenna um kynferðisbrot en kirkjan hafi þurfti endurnýjun á þessum tíma. Ólafur tók hinsvegar ekki vel í tillöguna. „Ólafur var ákaflega ákaflega kotroskinn maður og það var mjög erfitt fyrir fólk að koma til hans með svona uppástungur. Það þýddi ábyggilega í huga hans að hann væri játast einhverjum ásökunum," segir Baldur.Hann segir fundinn ekki hafa verið auðveldan. „Það er aldrei auðvelt fyrir presta eða starfsmenn biskups að vera á fundi með honum og biðja hann um að segja af sér. Þetta lítur mjög einfaldlega út eftir á en í hringiðjunni sjálfri þá er þetta miklu flóknara." Baldur segir þá þöggun sem ríkti á þessum tíma hafa átt rætur sínar í vina- og kunningjahóp Ólafs. Hann hafi átt vini meðal stjórnmálamanna og annarra áhrifamanna. Andrúmsloftið hafi verið í þá átt að þetta væri tómt rugl, vitleysa og ráðabrugg og það hafi mótað stemmninguna sem ríkti. En Baldur er í engum vafa um að ásakanirnar hafi verið réttar. „Ég hef aldrei ekki trúað þeim en ég var auðvitað í hópi þeirra sem lengi framan af reyndu að telja sér trú um að þetta væri eitthvað málum blandið. Það hverfur alveg í seinni tíð þegar Guðrún Ebba kemur fram og Birgir Áss. Mín skoðun er sú að þessar ásakanir hafi í alla tíð verið réttar."
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira