Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Formaður Lögmannafélagsins gagnrýnir feminista og fjölmiðla Vændiskaup er kynferðistbrot gegn þeim sem selur vændið. Því eru þinghöld í vændiskaupamálum lokuð eins og í öllum öðrum kynferðisbrotamálum, segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, í pistli sem hann birtir á vefsvæði Pressunnar. 11.7.2010 15:59
Nýlistasafnið hlaut Safnaverðlaunin Nýlistasafnið í Reykjavík hlaut Safnaverðlaunin í ár við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Í rökstuðningi dómnefndar segir að safnið hafi með starfsemi sinni mætt fjölbreyttum áskorunum á nýstárlegan hátt og verið lifandi vettvangur söfnunar, miðlunar og rannsókna á íslenskri myndlist. 11.7.2010 15:42
Kastaðist af vélhjóli á Miklubraut Karlmaður kastaðist af mótorhjóli á Miklubraut á öðrum tímanum í dag. Hann lenti á umferðareyju við girðingu sem aðgreinir umferðina eftir brautinni. Mótorhjólið rann niður eftir brautinni einhverja tugi metra. 11.7.2010 14:43
Rætt um að Ingibjörg Sólrún stýri rannsóknarnefnd á vegum SÞ Forseti Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hefur rætt það við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, 11.7.2010 14:03
Gríðarlega góð aðsókn að Þjóðlagahátíð Gríðarlega góð aðsókn hefur verið að Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði sem lýkur í dag. Að sögn Gunnsteins Ólafssonar, listræns stjórnanda hátíðarinnar, hafa verið seldir hátt í tvö þúsund miðar á tónleika tengdum hátíðinni og hafa bæði heimamenn og gestir annarsstaðar af á landinu sótt viðburði á hátíðinni. 11.7.2010 13:32
Mandela verður á úrslitaleiknum í kvöld Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, mun verða viðstaddur úrslitaleikinn á HM sem fram fer í Jóhannesarborg í Suður Afríku í kvöld. 11.7.2010 13:14
Forseti Íslands afhendir safnaverðlaunin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun í dag afhenda Íslensku safnaverðlaunin við hátíðlega athöfn sem hefst á Bessastöðum klukkan þrjú. Í ár eru Byggðasafn Skagfirðinga að Glaumbæ, Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi og Nýlistasafnið tilnefnd til verðlaunanna. 11.7.2010 11:18
Færri vilja verða leikskólakennarar Aðsókn að leikskólakennaranámi við Háskóla Íslands hefur minnkað upp á síðkastið þrátt fyrir að ekki takist að fullmanna stöður á leikskólum með fagmenntuðum leikskólakennurum. 11.7.2010 11:00
Vill fund um Magma Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, óskaði í gærkvöldi eftir fundi í iðnaðarnefnd Alþingis vegna þeirra upplýsinga sem fram hafa komið um að iðnaðarráðuneytið hafi leiðbeint kanadíska orkufyrirtækinu Magma 11.7.2010 10:02
Þúsund manns komu saman á „Úlfalda“ Talið er að um 1000 manns hafi verið samankomnir á hátíðinni „Úlfaldi úr mýflugu" sem fram fór í Mývatnssveit í gær og í fyrradag. Lögreglan á Húsavík segir að þar hafi verið að mestu leyti verið saman komið ungt fólk. Erlendir ferðamenn sem hafi átt leið um Mývatnssveit hafi orðið fyrir töluverðu ónæði vegna hávaða. Þrjú minniháttar fíkniefnamál hafa komið upp í tengslum við hátíðina, þar af eitt þar sem grunur leikur á að fíkniefni hafi verið boðin til sölu. Þá voru að minnsta kosti fjórir stöðvaðir vegna gruns um ölvunarakstur. 11.7.2010 09:57
Brotist inn í félagsheimili hestamanna á Selfossi Brotist var inn í félagsheimili hestamanna á Selfossi í nótt. Skemmdir voru unnar á bústaðnum en ekki er útlit fyrir að neinu hafi verið stolið að sögn lögreglu. 11.7.2010 09:35
Kviknaði í húsbíl í Fellunum Eldur kom upp í húsbíl í Fellahverfinu í Breiðholti um tvöleytið í nótt og er bíllinn töluvert skemmdur. Að sögn lögreglunnar var par að laga til í bílnum þegar eldurinn kom upp og var það flutt á slysadeild með lítilsháttar brunasár. 11.7.2010 08:55
Brasilískur fótboltakappi skar kærustuna í bita og henti fyrir hundana Brasilískur fótboltakappi er sakaður um að hafa myrt kærustuna sína, kyrkt hana og látið hunda éta líkið. Þetta kemur fram í frétt BBC. 10.7.2010 22:30
Yfir hundrað látnir í Pakistan Tala látinna í sjálfsmorðsprengjuárás í Pakistan á föstudaginn er komin yfir 100 manns. Samkvæmt Reuters er nú talið að 102 hafi látist í árásinni sem hreyfing Talíbana í Pakistan hefur lýst á hendur sér. 10.7.2010 21:30
Almenningur fær orðið um framtíð Þingvalla Almenningur verður kallaður til ráðgjafar um hvaða starfsemi eigi að fara fram á Þingvöllum en í dag er eitt ár liðið frá því hótel Valhöll brann þar til kaldra kola. Þjóðgarðsvörður segir þingvallanefnd vera að skoða allt skipulag þjóðgarðsins. 10.7.2010 19:02
Nýr Landspítali eins og Land Cruiser Tillaga að nýjum Landspítala sem kynnt var í gær er miklu ódýrari en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir og sparar ríkissjóði 20 milljarða króna án þess að þjónusta skerðist, segir formaður verkefnastjórnar vegna byggingar spítalans. Hann lýsir þessu þannig að keyptur hafi verið ódýrari bíll sem rúmi jafn marga farþega og sinni sama hlutverki. 10.7.2010 18:39
Boðar lagafrumvarp vegna Magma Energy Umhverfisráðherra segir augljóst að farið hafi verið á svig við lög þegar Magma Energy eignaðist HS orku og vill að fram fari opinber rannsókn á kaupferlinu. Ráðherra boðar lagafrumvarp sem girðir fyrir að aðilar utan evrópska efnahagssvæðisins geti eignast auðlindir landsins. 10.7.2010 18:31
Mengunarslys í Eskifirði: Ekki of seint brugðist við Bæjaryfirvöld í Fjarðarbyggð segja ekki hafa verið brugðist of seint við mengunarslysi sem varð á sunnudaginn fyrir viku þegar löndunarvökvi úr skipi blandaðist drykkjarvatni bæjarbúa. Bréf var sent til bæjarbúa í gær vegna málsins. 10.7.2010 17:51
Umboðsmenn yfirgefa Mel Gibson Enn sígur á ógæfuhliðina hjá stórleikaranum Mel Gibson. Upptaka af samtali Mel Gibson við fyrrverandi kærustu sína, Oksana Grigorieva, láku á netið í vikunni en í samtalinu kallar hann stúlkuna öllum illum nöfnum. Mel Gibson er sökkvandi skip og nú hefur umboðsskrifstofan hans látið hann fara. 10.7.2010 17:21
Bjóða matarþurfa fólki súpu og brauð Starfsmenn veitingahússins Nítjándu í Turninum Kópavogi hafa ákveðið að leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem eru matarþurfi nú í sumarleyfum hjálparstofnana. Starfsmennirnir ætla að bjóða upp á súpu, brauð og drykkjarföng alla mánudaga í júlí á milli klukkan fimm og sjö. Starfsfólk leitaði til Vífilfells og annarra birgja, sem ákváðu að taka þátt. 10.7.2010 17:09
Maðurinn fundinn heill á húfi Leitarmenn hafa fundið manninn sem lýst hefur verið eftir í fjölmiðlum í dag. Hann fannst á göngu í Fossvogsdalnum heill á húfi. 10.7.2010 16:50
Jón Ásgeir fékk ekki samþykkta frávísunarbeiðni Jón Ásgeir Jóhannesson segir að eignir sínar séu samtals einnar milljónar punda virði. Breskur dómstóll féllst ekki á það en dómari í kyrrsetningarmáli sem slitastjórn Glitnis hefur höfðað á hendur honum í Lundúnum féllst ekki á kröfu Jóns Ásgeirs um frávísun. 10.7.2010 11:56
Njósnaraskipti í skjóli nætur Njósnaraskipti í anda kalda stríðsins fóru fram á flugvellinum í Vínarborg í gær, þegar Rússar og Bandaríkjamenn skiptust á fjórtán njósnurum. 10.7.2010 11:53
Lögreglan hætt rannsókn Lögregla hefur hætt rannsókn á skemmdum sem aðgerðasinnar unnu á byggræktun nýsköpunarfyrirtækisins ORF Líftækni í Gunnarsholti. Skemmdirnar hljóðuðu upp á tugi milljóna króna, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir það halda ótrautt áfram þrátt fyrir áfallið. 10.7.2010 11:50
Íslendingar reknir úr EES verði aðildarumsókn dregin til baka Íslendingum verður væntanlega kastað út af Evrópska efnhagssvæðinu verði aðildarumsókn að Evrópusambandinu dregin til baka. Þetta er mat Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðings. Hann segir að best væri fyrir Íslendinga að segja upp EES samningnum ef umsóknin verður dregin til baka. 10.7.2010 11:46
Davíð Oddsson: Landsfundur eins og „vorútsala Blómavals“ „Forystumenn Sjálfstæðisflokksins teygðu sig ótrúlega langt á síðasta landsfundi flokksins til að koma til móts við sérsjónarmið fámenns en ágengs hóps í Evrópumálum," segir Davíð Oddsson, annar tveggja ritstjóra Morgunblaðsins, í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins með Sunnudagsmogganum, en með Reykjavíkurbréfinu sem skrifað er undir fyrirsögninni „Það rofar til í Evrópumálum" birtast stórar myndir af Davíð ásamt gömlum evrópskum leiðtogum eins og Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara Þýskalands og Jacques Delors, fyrrum fjármálaráðherra Frakka og forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 10.7.2010 10:31
Lögreglan „skaut skjólshúsi" yfir ógæfumenn í nótt Fimm gistu fangageymslur í Reykjavík í nótt; tveir vegna ölvunarástands auk þriggja útigangsmanna sem þurftu aðstoðar við. Að sögn vakthafandi lögreglumanns þarf lögreglan reglulega að „aðstoða menn sem þurfi að hýsa, ekki síst skömmu eftir mánaðarmót," og á þar við að lögreglan leyfi útigangsmönnum að sofa úr sér í fangageymslum. 10.7.2010 10:04
Leðurblökukona gefur Bandaríkjamönnum íslenskar pylsur Bandarískur ferðalangur sem elskar Ísland mun halda fyrirlestur um Ísland þann 17. júlí næstkomandi í Connecticut. Konan, sem heitir Gerri Griswold, hefur ferðast reglulega til Íslands í áratug. Á kynningunni mun hún meðal annars gefa fólki sýnishorn af íslenskum pylsum og sýna myndir úr ferðum sínum. 10.7.2010 09:33
Reykvískir víkingar ósáttir Forsvarsmenn Víkingahátíðar í Reykjavík, sem halda á í fyrsta skipti á Klambratúni næsta sumar, eru mjög óánægðir við nafnbreytinguna á túninu en nafni þess var breytt úr Miklatúni í Klambratún í vikunni. 10.7.2010 07:00
Skar framan af fingri manns Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði á skilorði, fyrir að stinga annan mann með dúkahnífi í lærið og skera framan af fingrinum á honum. Maðurinn fékk djúpan sex sentimetra langan skurð á lærið. 10.7.2010 07:00
Páll Baldvin hættir störfum Páll Baldvin Baldvinsson, fulltrúi ritstjóra, er hættur störfum á Fréttablaðinu. Páll Baldvin hefur starfað á Fréttablaðinu síðan árið 2006 en var þar áður ritstjóri DV. 10.7.2010 05:30
Leitað að manni í Fossvoginum Lögreglan, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar, leita nú að manni sem hvarf frá heimili sínu í Fossvoginum seint í nótt. Maðurinn er af erlendu bergi brotinn en hefur búið og starfað á Íslandi. 10.7.2010 14:47
Umhverfisráðherra vill rannsókn á Magma Energy Sweden Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, vill láta rannsaka starfsemi Magma Energy Sweden fyrirtækisins í ljósi upplýsinga sem hún segir varpa nýju ljósi á málið. Hún hefur rætt við viðskiptaráðherra um að málið verið tekið upp að nýju. Pistlahöfundarnir Teitur Atlason og Lára Hanna Einarsdóttir hafa síðustu daga skrifað um Magma Energy Sweden AB. Í pistlum sínum halda þau því fram að fyrirtækið sé eitt allsherjar sjónarspil. 10.7.2010 12:11
Breski morðinginn svipti sig lífi Maður sem lögreglan á Bretlandi hefur leitað að dögum saman svifti sig lífi eftir að lögregla króaði hann af um sex leytið í gærdag. Raoul Moat hafði verið á flótta undan lögreglunni í viku eftir að hann skaut og særði fyrrverandi eiginkonu sína og myrti elskhuga hennar. Þá skaut hann einnig lögregluþjón og særði illa í andliti. Lögregla króaði Moat af þar sem hann var í stóru afrennslisröri. Eftir að hafa reynt að tala hann til í nokkrar klukkustundir heyrðist skothvellur um miðnætti í nótt. Fannst Moat særður inni í rörinu og var hann fluttur á sjúkrahús en hann var látinn þegar þangað var komið. Moat hafi skilið eftir bréf til lögreglunnar þar sem sagðist vera brjálður morðingi og hann myndi skjóta eins marga lögregluþjóna og hann gæti. 10.7.2010 10:51
Ætla að koma í veg fyrir lekann Vélmennakafbátar munu fjarlægja loku sem sett var á olíuborholuna í Mexíkó flóa í nótt og því mun olía flæða án fyrirstöðu í flóann næstu tvo daga. Ástæðan er sú að koma á nýrri og betri loku fyrir sem að sama skapi mun hjálpa olíuhreinsunarskipum sem hreinsa linnulaust upp olíuna á svæðinu. 10.7.2010 23:30
Kafarar og hundar notaðir við leitina Maðurinn sem lögreglan og björgunarsveitir leita nú að víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu heitir Karolis Kievisas og er 28 ára gamall. Um 70 björgunarsveitarmenn taka þátt í leitinni að manninum sem hvarf sporlaust í nótt. Notast er við báta og fjórhjól í leitinni auk þess sem gengið er eftir strandlínum með leitarhunda og kafarar leita við bryggjur. 10.7.2010 15:49
Skandinavar vilja ekki stjórna Danir hafa miklu minni áhuga á því að verða stjórnendur en fólk í öðrum löndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. 10.7.2010 07:00
Reykjavíkurborg þarf að binda 12 milljarða Reykjavíkurborg þarf að leggja 10 til 12 milljarða króna til hliðar til að sýna fram á fjárhagslegan styrk sinn sem bakhjarl Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Borgin hefur sett á laggir áhættustýringarhóp og ákveðið að vinna markvisst að því að auka trúverðugleika borgarinnar sem ábyrgðaraðila á lánamörkuðum. 10.7.2010 06:00
Fresta ráðningu um óákveðinn tíma Stjórn Íbúðalánasjóðs frestaði á fundi í fyrrakvöld ráðningu nýs forstjóra í stað Guðmundar Bjarnasonar sem lét af störfum um síðustu mánaðamót. 10.7.2010 05:00
„Við getum orðið stórfyrirtæki“ „Við getum orðið stórfyrirtæki á íslenskan mælikvarða innan skamms tíma,“ segir Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni. „Við erum að fara inn á lyfjaþróunarmarkaðinn. Þar erum við í viðræðum við indverska fjárfesta um að fara með okkur í stórt verkefni.“ 10.7.2010 05:00
Flóknum spurningum ósvarað Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri segir að breytingar á frumvarpi iðnaðarráðherra um verndar- og nýtingaráætlun kalli á að svarað verði spurningum um stöðu Torfajökulssvæðisins og einstakra svæða á Reykjanesi og í Krýsuvík. 10.7.2010 04:00
Áhrif olíulekans vanmetin Áhrif olíulekans í Mexíkóflóa gætu haft mun skaðlegri áhrif fyrir vistkerfið á svæðinu en hingað til hefur verið talið. Hópur vísindamanna frá Imperial College í London hefur sýnt fram á að olía veldur arseník-eitrun sem til lengri tíma getur komist inn í fæðukeðjuna og valdið skaða á gróðri og dýrum. 10.7.2010 03:00
Kviknaði í potti á Þórsgötu Slökkviliðið var kallað að Þórsgötu í Reykjavík nú fyrir stundu. Mikinn reyk leggur frá húsinu en að sögn lögreglunnar í Reykjavík er talið að hann komi út frá potti sem er í húsinu. 9.7.2010 23:24
Mótmæltu ákærum nímenninganna í Barcelona Á hádegi í gær hittust um tuttugu manns við íslensku ræðismannaskrifstofuna í Barcelona til að sýna reiði sína í garð íslenska ríkisins vegna réttarhaldanna sem fara fram yfir nímenningunum svokölluðu. Þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi í desember 2008. 9.7.2010 23:04
Ætlar að synda yfir Hafnarfjarðarhöfn til styrktar UNICEF Stefán Helgi Waagfjörð, 23 ára gamall Hafnfirðingur, ætlar að synda yfir Hafnarfjarðarhöfn á morgun klukkan þrjú. Hann gerir þetta til að styrkja UNICEF á Íslandi. 9.7.2010 22:21