Innlent

Umhverfisráðherra vill rannsókn á Magma Energy Sweden

SB skrifar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, vill láta rannsaka starfsemi Magma Energy Sweden fyrirtækisins í ljósi upplýsinga sem hún segir varpa nýju ljósi á málið. Hún hefur rætt við viðskiptaráðherra um að málið verið tekið upp að nýju. Pistlahöfundarnir Teitur Atlason og Lára Hanna Einarsdóttir hafa síðustu daga skrifað um Magma Energy Sweden AB. Í pistlum sínum halda þau því fram að fyrirtækið sé eitt allsherjar sjónarspil.

„Þarna er um ákveðna afhjúpun að ræða og ég sé ekki betur en það þurfi að fara fram rannsókn á þessu," segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.„Þau aufhjúpa þessa starfsemi með mjög afgerandi hætti. Þetta er eitthvað sem ekki er hægt að horfa í gegnum fingur sér með."

Í pistlum Láru Hönnu, sem skrifar á Eyjunni.is, og Teits Atlasonar kemur fram að Magma Energy Sweden sé skúffufyrirtæki, höfuðstöðvarnar séu lögfræðifyrirtæki í Svíþjóð sem hafi aðeins sinnt ráðgjafavinnu fyrir Magma, og það sé gagngert stofnað til að fara í kringum íslensk lög um fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi.

Teitur Atlason, sem búsettur í Gautaborg og bloggar á DV.is, heimsótti hinar meintu höfuðstöðvar, ræddi við lögfræðing sem sagði þetta ekki skrifstofu Magma heldur hefði lögfræðistofan veitt Magma lögfræðilega aðstoð. Þá tók Teitur myndir af húsinu þar sem fram kemur að hvergi er nafn Magma Energy eða eitthvað annað sem bendir til þess að fyrirtækið sé þar til húsa.

Lára Hanna bendir einnig á að á heimasíðu Magma Energy í Kanada sé hvergi minnst á dótturfyrirtækið í Svíþjóð.

Svandís hefur rætt við viðskiptaráðherra vegna málsins. „Ég heyrði í viðskiptaráðherra eftir hádegi í dag og nefndi það við hann að það væri rétt að slík rannsókn færi fram."

Svandís segir að í ljósi þess að nefndin um erlendar fjárfestingar kláraði vinnu sína í Magma málinu á fimmtudaginn, en hinar nýju upplýsingar frá Láru Hönnu og Teiti Atlasyni komi fram eftir það - „þá tel ég einboðið að nefndin fari aftur í málið þar sem upplýsingar sem hún byggði niðurstöður sínar á voru sannarlega ekki fullnægjandi."

Fjölmiðlar hafa greint frá því að Magma Energy Sweden AB sé dótturfyrirtæki Magma Energy í Kanada - þannig hafi fyrirtækinu tekist að fara á svig við íslenskar reglur um fjárfestingu erlendra aðila á Ísland. Með því að staðsetja fyrirtækið innan EES var Magma Energy í Kanada gert kleyft að fjárfesta á íslenskum markaði. Þær upplýsingar sem koma fram í skrifum Teits og Láru Hönnu benda hins vegar til þess að Magma Energy Sweden sé ekki dótturfyrirtæki heldur einfaldlega skúffufyritæki með póstfang í Gautaborg.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×