Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skaftárhlaup í hámarki í dag Hlaupið í Skaftá, sem reynst hefur stærra en talið var í fyrstu, virðist hafa náð hámarki í dag. Verulegar líkur eru taldar á öðru hlaupi innan fárra mánaða. 23.6.2010 18:49
Helgi Hjörvar: Höfum ekki náð lokapunkti í að leysa skuldamálin Allt bendir til að margir lántakendur sem tóku erlend myntkörfulán sjái fram á lækkun á höfuðstól á næstunni. Hins vegar eru 75-80% lántakenda bankanna með venjuleg verðtryggð lán. En er von á lausn fyrir þann hóp? 23.6.2010 18:45
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í dag. Vinningurinn verður því tvöfaldur í næstu viku. Tölurnar voru 21, 24, 36, 38, 45 og 48. Bónustölurnar voru 12 og 37. Ofurtalan var 10. 23.6.2010 18:44
Frumvarp um gjaldþrotaskipti frestast Frumvörp um greiðsluaðlögun, tímabundin úrræði fyrir þá sem eiga tvær fasteignir og umboðsmann skuldara verða afgreidd á Alþingi á morgun, á síðasta þingfundi fyrir sumarfrí. Þá verður einnig afgreitt frumvarp um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda. 23.6.2010 18:05
Icelandair segir upp 54 flugmönnum Icelandair hefur sagt upp 54 flugmönnum í júní. Í byrjun mánaðarins fengu 26 flugmenn flugfélagsins uppsagnarbréf sem tekur gildi 1. september. Í dag var haldinn flugmannafundur hjá félaginu þar sem tilkynnt var um 28 uppsagnir í viðbót. 23.6.2010 17:55
Stjórnin hefur ekkert með ákvörðun Páls að gera Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að stjórn Ríkisútvarpsins muni væntanlega ræða þá ákvörðun hans að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur sem dagskrástjóra á fundi sínum á þriðjudag. Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið hefur stjórnin ekkert með, þá ákvörðun hans um að ráða Sigrúnu, að gera. 23.6.2010 16:52
Þorsteinn J.: Vill bara bestu sérfræðingana „Kjarni málsins er að ég, sem ritstjóri þáttarins, vill fá bestu sérfræðingana til þess að tala um leikina og mín skoðun er sú að Hjörvar, Pétur og Auðunn eru þeir bestu,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem sér um HM þættina á Ríkisútvarpinu en framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu, Kristín Ástgeirsdóttir, segir að á undanförnum dögum hafi borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður-Afríku. 23.6.2010 16:47
Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningu Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár. 23.6.2010 16:07
Ísland á öruggustu vatnsbirgðir jarðar Ný skýrsla leiðir í ljós að Ísland á öruggustu vatnsbirgðir heimsins. Sómalía er hinsvegar í mestum vandræðum og þar á eftir koma Afríkuríkin Mauritanía, Súdan og Níger. 23.6.2010 15:50
Tveir friðargæsluliðar til Kabúl Tveir friðargæsluliðar á vegum Íslensku friðargæslunnar, Þorbjörn Jónsson, sendiráðunautur í utanríkisþjónustunni, og Guðrún S. Þorgeirsdóttir, sérfræðingur frá Varnarmálastofun, eru í þann mund að hefja störf hjá fjölþjóðaliðinu (ISAF) í Kabúl í Afganistan. 23.6.2010 14:32
Íslenskar löggur fræðast um smyglleiðir og framleiðslu fíkniefna Anton Kohut fulltrúi frá bandarísku fíkniefnalögreglunni, DEA, heimsótti Ísland á dögunum og hélt fræðsluerindi í Lögregluskólanum. Hann fór ítarlega yfir stöðu og þróun mála í mjög áhugaverðu erindi og fjallaði meðal annars um framleiðslu kókaíns og einnig helstu smyglleiðir inn í Evrópu. 23.6.2010 14:24
Strandveiðimönnum er heimilt að veiða makríl Strandveiðimönnum er heimilt að veiða makríl en í frétt á Vísi fyrr í dag var því haldið fram að þeir mættu ekki hirða fiskinn og ekki heldur henda honum. Ari Matthíasson, upplýsingafulltrúi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins, segir þetta ekki rétt. Strandveiðibátum er heimilt að veiða 650 þorskígildi í hverjum túr og gildir þá einu hvers kyns afla er um að ræða. Ari bendir á að stuðullinn fyrir makríl sé 0,13 og því gæti strandveiðibátur veitt fimm tonn af makríl ef ekkert annað kæmi á krókinn. 23.6.2010 14:21
53 sækja um starf bæjarstjóra á Akureyri Alls sóttu 53 um starf bæjarstjóra Akureyrar. L-listinn fékk hreinan meirihluta eftir kosningarnar í vor og var eitt af stefnumálum flokksins að ráða bæjarstjórann faglega. 23.6.2010 13:55
Prestar fá nýtt hjónavígsluform Nýtt hjónavígluform, sem tekur mið af nýjum hjúskaparlögum, verður sent til presta Þjóðkirkjunnar fyrir helgi. Verkefnisstjóra Biskupsstofu er kunnugt um að samkynhneigt par verði gift strax á sunnudag þegar lögin taka gildi á alþjóðlegum baráttudegi hinsegin fólks. 23.6.2010 12:32
Frumvörp um fyrningarfrest og hópmálsóknir enn í nefnd Allsherjarnefnd hittist á fundi fyrir hádegið í dag þar sem fjallað var um gjaldþrotaskipti og fyrningu kröfuréttar eð fyrningarfrest annarsvegar og meðferð einkamála, eða hópmálsókn, hins vegar. 23.6.2010 12:26
Dr. Gunni verður ekki formaður strætó Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, mun ekki verða formaður Strætó BS. eins og kom fram eftir að nýr meirihluti tók við í Reykjavík 15. júní síðastliðinn. Ástæðan er sú að hann er varaborgarfulltrúi og má því ekki taka starfið að sér. Aðeins borgarfulltrúar mega gegna starfinu. Þetta segir Dr. Gunni á heimasíðu sinni. 23.6.2010 12:14
Fundi með lánafyrirtækjum lauk án niðurstöðu Engin niðurstaða fékkst á sameiginlegum fundi efnahags- og skattanefndar og viðskiptanefndar Alþingis sem hófst klukkan tíu í morgun og lauk fyrir stundu. 23.6.2010 12:07
Sagði blaðamanni að matreiða viðtalið eins og hann vildi Blaðamaður Fréttablaðsins, Klemens Ó. Þrastarson, sem ræddi og skrifaði viðtal við Pétur Blöndal þingmann, í Fréttablaðinu í gær, segir viðbrögð Péturs koma honum á óvart. Pétur sagði í viðtali á Bylgjunni í gær að hann hefði ekki vitað að hann hefði verið í viðtali við Fréttablaðið þegar ummælin voru eftir honum höfð. 23.6.2010 11:51
Útséð um sátt á ársfundi hvalveiðiráðsins Tilraunir til þess að koma á sátt í Alþjóðahvalveiðiráðinu hafa mistekist. Á ársfundi ráðsins sem nú stendur yfir var reynt að komast að samkomulagi um málamiðlun sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. BBC greindi hinsvegar frá því í dag að viðræðurnar hafi farið út um þúfur og að eftir tveggja daga fundarhöld sé ljóst að ekkert samkomulag mun nást. 23.6.2010 11:39
Jafnréttisstofa spyr hvar konurnar séu á HM Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir að á undanförnum dögum hafi borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður-Afríku. 23.6.2010 11:08
Sýknaður af kynferðisbroti Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir kynferðisbrot gegn átta ára gamalli frænku sinni. Stúlkan er dóttir systur mannsins en það var faðir stúlkunnar sem kærði. Þau stóðu í skilnaði á sama tíma. 23.6.2010 10:55
Makríllinn setur strandveiðimenn í bobba Strandveiðisjómenn eru komnir í þá klípu að mega hvorki hirða né henda þeim makríl, sem óhjákvæmilega slæðist á öngla þeirra við veiðar á öðrum tegundum. Þeir eru lögbrjótar, hvað sem þeir gera. 23.6.2010 10:50
Skattaflótti til Mónakó stöðvaður Norðurlöndin, auk sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands og Færeyja, undirrituðu samning í dag um skipti á upplýsingum við Mónakó. Samningurinn er árangur umfangsmikils starfs sem unnið er innan Norrænu ráðherranefndarinnar og felst í því að stöðva skattaundanskot. Hann mun veita norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla sem reyna að komast hjá því að greiða tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. 23.6.2010 10:39
ASÍ: Lítið bólar á verðlækkunum á matvöru Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum að sögn ASÍ. Í frétt á heimasíðu sambandsins segir að forsvarsmenn verslunarinnar hafi fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar og að það ráðist einkum af veltuhraða hversu hratt styrking á gengi krónunnar gæti í vöruverði. 23.6.2010 10:37
Skotveiðimenn mótmæla takmörkunum í þjóðgarði Íslenskir skotveiðimenn mótmæla því harðlega að takmarka eigi veiðar í Vatnajökulsþjóðgarði, eins og ert er ráð fyrir í verndaráætlun fyrir garðinn. 23.6.2010 07:37
Fátækt eykst í Evrópu Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segjast einn af hverjum sex íbúum sambandsins eiga í erfiðleikum með að láta enda ná saman um hver mánaðarmót. 23.6.2010 07:32
Bengal tígurinn og kameldýrin tvö fundin Búið er að finna Bengal tígurinn og kameldýrin tvö sem rænt var í síðustu viku í Kanada. 23.6.2010 07:30
Fíkniefnakóngurinn Dudus Coke handtekinn Lögreglan á Jamaíka hefur handtekið fíkniefnakónginn Christoper Dudus Coke. 23.6.2010 07:28
Kvótinn ekki innkallaður á næsta fiskveiðiári Ekkert verður úr þeirri fyrirætlan stjórnvalda að fara að innkalla fiskveiðikvóta í áföngum af kvótahöfum á næsta fiskveiðiári, sem hefst fyrsta september. 23.6.2010 07:25
Dani tekinn fyrir peningaþvætti fyrir Hells Angels Danskur viðskiptamaður hefur verið handtekinn sakaður um peningaþvætti fyrir mótorhjólagengið Hells Angels í Danmörku. 23.6.2010 07:23
Fjármálaráðherra líst vel á bankaskatt „Ég held að þetta sé að mörgu leyti rétt hugsun og mér fellur hún vel. Að til viðbótar innlánstryggingakerfi sem á að fjármagna sig sjálft með iðgjöldum innlánsstofnana, sé lagt í einhvern stöðugleikasjóð. Þannig er kerfið sjálft látið bera hluta kostnaðarins sem áföll í fjármálakerfinu hafa þegar valdið. Þannig að þetta verður örugglega skoðað hér, allavega stendur minn hugur til þess," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, spurður um hugmyndir sem settar hafa verið fram um sértækan tekjuskatt á banka. 23.6.2010 06:30
Litlar líkur á sátt í hvalveiðiráðinu Innbyrðis deilur andstæðinga hvalveiða á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins virðast ætla að koma í veg fyrir að samkomulag takist um málamiðlun, sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. Andrúmsloft innan ráðsins hefur þó batnað. 23.6.2010 06:00
Kveikti eld í íbúðarhúsnæði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir íkveikju. Manninum er gefið að sök að hafa í janúar á síðasta ári hellt bensíni inn í stigagang húss við Tryggvagötu í Reykjavík og kveikt síðan í. 23.6.2010 05:45
Mótmælir umfjöllun um laun lækna Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir í grein í Fréttablaðinu í dag neikvæðar og villandi upplýsingar einkenna umræðu um laun lækna í fjölmiðlum undanfarið. 23.6.2010 05:30
Koma til móts við atvinnulaus ungmenni Hitt húsið stendur fyrir þríliða sumardagskrá fyrir ungt fólk í júní og júlí með það að markmiði að virkja ungt fólk félagslega og þjálfa það í að setja sér markmið. 23.6.2010 05:30
Kýldu mann og brutu tennur Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákært tvo menn fyrir grófa líkamsárás. Þeim er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst 2009, á Þórshöfn, slegið mann hnefahöggum og sparkað í hann liggjandi. Tennur brotnuðu í fórnarlambinu, það fékk glóðarauga og áverka á hnakka. 23.6.2010 05:00
Nágrannavarsla í Reykjanesbæ Íbúar við Kjarrmóa í Reykjanesbæ hafa bundist samtökum um nágrannavörslu í samstarfi við bæjarfélagið. Munu íbúarnir fylgjast með húsum nágranna sinna þegar þeir eru að heiman og gæta eigna. 23.6.2010 04:45
Safna 15 milljónum fyrir barnaheimili Styrktarfélagið Sóley og félagar stendur um helgina fyrir sölu á tauboltum, en ágóðinn mun fara í byggingu nýs heimilis fyrir um 100 börn í Tógó. 23.6.2010 04:30
Jón Gnarr: So far so good „Ég geri mitt besta. Ég veit að ég get ekki gert alla glaða þótt ég glaður vildi. Tek eitt í einu,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri, í dagbókarfærslu á samskiptavefnum Facebook í kvöld. 22.6.2010 23:06
Hershöfðingi fær hugsanlega að fjúka vegna ummæla um Obama Stanley McChrystal, æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í Afganistan, var kallaður á teppið í Hvíta húsinu dag vegna ummæla sem hann lét falla um stjórn Barack Obama, Bandaríkjaforseta, í tímaritinu Rolling Stone. 22.6.2010 22:00
Ók ölvaður á kyrrstæðan bíl Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Á níunda tímanum barst tilkynning um að bifreið hefði verið ekið á kyrrstæða bifreið á Laugarnesvegi. Ökumaðurinn ók í burtu en lögreglumenn höfðu hendur í hári hans skömmu síðar. Ökumaðurinn er talinn hafa ekið undir áhrifum áfengis. 22.6.2010 22:48
Myrti félaga sinn eftir skeytasendingar á Facebook 16 ára gamall breskur drengur var í dag dæmdur í fangelsi fyrir að stinga 18 ára félaga sinn til bana. Drengirnir höfðu skipst á skeytasendingum á samskiptasíðunni Facebook þar sem sá eldri kallaði hinn yngri meðal annars aumingja. 22.6.2010 21:15
Kviknaði í grillinu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan sjö í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í gasgrilli á svölum í Búðagerði. Varðstjóri segir að húsráðendum hafi tekist að ráða niðurlögum eldsins áður en að slökkvilið kom á staðinn og því var dælubíl snúið við. Óverulegar skemmdir hlutust af eldinum. 22.6.2010 21:14
Um sextíu létust í lestarslysi Rúmlega sextíu létust í lestarslysi í suðurhluta Kongó í dag. Forsvarsmaður lestarfyrirtækisins segir að lestin hafi verið á leiðinni milli Bilinga og Tchitondi þegar hún fór út af sporinu. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að járnbrautateinarnir hafi verið lagðir á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar og að viðhaldi hafi ekki verið sinnt sem skyldi. 22.6.2010 20:40
Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins. Hann telur að Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefði þess í stað átt að líta til þeirra sem sóttu um stöðuna í mars. 22.6.2010 20:15