Innlent

Kveikti eld í íbúðarhúsnæði

Mynd/Stefán Karlsson

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir íkveikju. Manninum er gefið að sök að hafa í janúar á síðasta ári hellt bensíni inn í stigagang húss við Tryggvagötu í Reykjavík og kveikt síðan í.

Eldurinn breiddist út og varð húsið alelda áður en yfir lauk. Íbúi hússins flýði úr húsinu og komst út heill á húfi.

Með íkveikjunni olli ákærði eignatjóni á báðum hæðum hússins og hættu á frekara eignatjóni.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×