Erlent

Bengal tígurinn og kameldýrin tvö fundin

Búið er að finna Bengal tígurinn og kameldýrin tvö sem rænt var í síðustu viku í Kanada.

Þjófar stálu flutningabíl sem var að flytja dýrin í dýragarð í Nova Scotia. Dýrin fundust heil á húfi við vegkant fyrir utan borgina Quebec. Samkvæmt lögreglunni í Quebec virðist sem vel hafi verið séð um dýrin á þeim tíma sem leit stóð yfir að þeim.

Talið er að þjófarnir sem stálu flutningabílnum með dýrunum hafi ekki vitað hver farmur bílsins var.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×