Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ingólfur og Steingrímur komnir á lögreglustöð Þeir Steingrímur Kárason og Ingólfur Helgason hafa báðir niður á lögreglustöð við Hverfisgötu eftir að hafa verið við yfirheyrslur í húsnæði sérstaks saksóknara í dag. 11.5.2010 20:35
Ragnar Axelsson er heiðurslistamaður Kópavogs Ragnar Axelsson ljósmyndari var í kvöld útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2010. Í umsögn lista-og menningarráðs Kópavogs segir meðal annars að Ragnar, eða Raxi eins og hann er kallaður, hafi fyrir löngu fest sig í sessi sem einn fremsti fréttaljósmyndari Íslands. Tengsl 11.5.2010 21:52
Brown sagði af sér embætti Gordon Brown sagði af sér embætti forsætisráðherra Bretlands og sem leiðtogi Verkamannaflokksins nú skömmu fyrir fréttir. Hann sagðist þegar ætla að tilkynna Elísabetu drottningu þetta og mæla með því að stjórnarandstaðan myndaði nýja ríkisstjórn. 11.5.2010 17:40
Bifhjól og bíll rákust saman Bifhjól og bíll rákust saman á gatnamótum Skipholts og Háaleitisbrautar á fimmta tímanum í dag. Tveir voru á hjólinu. Ekki liggur ljóst fyrir hvort nokkur hafi slasast í árekstrinum. 11.5.2010 16:48
Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir Keflavíkurhrottum Gæsluvarðhald rann út í dag yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa ráðist á 64 ára gamlan mann, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí síðastliðinn. 11.5.2010 16:42
Grunaður um kerfisbundin og skipulögð efnahagsbrot Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Haviland bankans, er grunaður um markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi samkvæmt greinagerð sérstaks saksóknara og var lögð fyrir Héraðsdóms Reykjavíkur þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir honum fyrir helgi. 11.5.2010 16:09
Bretar að missa þolinmæðina Farið er að gæta gremju í garð Frjálslyndra demókrata í Bretlandi en þeir eru samtímis í stjórnarmyndunarviðræðum við bæði Íhaldsflokkinn og Verkamannaflokkinn. 11.5.2010 15:35
Umfangsmikil kannabisræktun í miðborginni stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 100 kannabisplöntur. Karl um fertugt hefur játað aðild að málinu. 11.5.2010 15:34
„Mótmælendur skirrðust ekki við að beita líkamlegu valdi“ Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, svaraði fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, á Alþingi í dag um aðkomu Alþingis að málarekstri gegn nímenningum sem hafa verið ákærðir fyrir að ryðjast inn á Alþingi. 11.5.2010 15:32
Himneskt dæmt til þess að greiða 50 þúsund í dagsektir Himneskt ehf. hefur verið gert að greiða fimmtíu þúsund krónur í dagsektir fyrir að nota lénið himneskt.is. 11.5.2010 14:56
Obama vill kreista olíufélag Barack Obama vill margfalda þær bætur sem hægt er að krefja breska olíufélagið BP um vegna olíulekans á Mexíkóflóa. 11.5.2010 14:24
Tollarar vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara Samninganefnd Tollvarðafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við ríkið til Ríkissáttasemjara samkvæmt frétt á vef BSRB. Í frétt á heimasíðu TFÍ kemur fram að á undanförnum mánuðum hafi ekki verið að finna mikinn samningsvilja að hálfu SNR og því hafi deilan staðið í stað. 11.5.2010 13:54
Ingólfur færður til yfirheyrslu eftir næturvist hjá lögreglunni Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hefur verið færður til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. 11.5.2010 13:45
Jörðin og tunglið séð frá Mars Bandaríska geimferðastofnunin hefur sent frá sér þessa einstöku mynd af jörðinni og tungli hennar efst til hægri. 11.5.2010 13:28
Rökstuddur grunur um fjölda afbrota Hreiðars Más „Samkvæmt gögnum málsins er varnaraðili (Hreiðar Már Sigurðsson innsk. blm.) undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölmörg brot er fangelsisrefsing liggur við," segir í úrskurði Hæstaréttar þar sem rétturinn staðfestir gæsluvarðhaldið yfir Hreiðari Má. Visir.is hefur úrskurðinn undir höndum. 11.5.2010 12:46
Fleiri Kaupþingsmenn handteknir Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, og Steingrímur Kárason, framkvæmdastjóri áhættustýringar bankans, voru handteknir við komuna til landsins í nótt. Þeir voru yfirheyrðir snemma í morgun og í framhaldinu færðir í fangaklefa. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 11.5.2010 12:22
Embætti sérstaks saksóknara þögult sem gröfin Björn Þorvaldsson, fulltrúi sérstaks saksóknara, segist ekki staðfesta neitt varðandi handtökur Ingólfs Helgasonar, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi og Steingríms Kárason, framkvæmdastjóra áhættustýringar bankans. 11.5.2010 12:21
Framburður Hreiðars Más stangast á við aðra Framburður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, stangaðist á við framburð annarra einstaklinga sem hafa gefið skýrslu í rannsókn sérstaks saksóknara samkvæmt fréttavef Viðskiptablaðsins sem hefur úrskurð Hæstaréttar undir höndum. 11.5.2010 12:19
Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað bréfum dómstólaráðs Formaður dómstólaráðs hefur í fjórgang spurst fyrir um breytingar á reglum um endurrit dómsgerða hjá dómsmálaráðuneytinu, en ekki fengið svör. Hæstiréttur hefur fallist á að breyta reglunum, en fyrst þarf að tryggja ríkissaksóknara fjármagn. Hann segir málið hafa verið í sjálfheldu síðasta hálfa árið. 11.5.2010 12:17
Komu strandaglópum á lekum bát til aðstoðar Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hafnarfirði og Reykjavík voru kölluð út að beiðni Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum þegar leki kom að bát á Faxaflóa, um 12 sjómílur NV af Gróttu. Einnig voru tveir hraðskreiðir, harðbotna bátar sendir á staðinn. 11.5.2010 12:09
Flestar líkamsárásir á Suðurnesjum Flestar líkamsárásir eiga sér stað á Suðurnesjum miðað við íbúafjölda en þeim hefur þó fækkað milli ára. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði nokkurra lögregluembætta fyrir síðustu þrjú ár. 11.5.2010 12:09
Ég er engin senditík Sýslumaðurinn í Reykjavík átti í töluverðum erfiðleikum með að ná í lögmann Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Gest Jónsson, til að tilkynna fyrirtöku á kyrrsetningarbeiðninni á eignum Jóns. Honum reyndist ekki unnt að fá farsímanúmer Gests uppgefið og vildi lögmaður sem starfar með Gesti ekki koma boðunum áfram, þar sem hann væri engin senditík fyrir sýslumann eins og samstarfsmaðurinn orðaði það. 11.5.2010 11:59
Yfirlýsing frá starfsfólki Stöðvar 2 og Vísis Fréttamenn og aðrir starfsmenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis harma uppsögn Óskar Hrafns Þorvaldssonar úr starfi fréttastjóra. Undir stjórn hans hefur fréttastofan sýnt djörfung og ábyrgð á erfiðum tímum í þjóðfélaginu. Óskar Hrafn hefur staðið heill á bakvið fréttamenn Stöðvar 2 og Vísis þegar sótt hefur verið að fréttastofunni úr ýmsum áttum og aldrei látið annað en fréttamat og kröfuna um miðlun upplýsinga til almennings ráða ferðinni í störfum sínum. 11.5.2010 11:49
Freyr Einarsson fréttastjóri Stöðvar 2 Freyr Einarsson, ristjóri Íslands í dag, mun taka við starfi Óskars Hrafns Þorvaldssonar, sem sagði upp sem fréttastjóri Stöðvar 2 í dag. 11.5.2010 11:29
Grjóthrunið í Bjarnarey - myndir Talið er að allt að þúsundir tonna hafi hrunið úr Bjarnarey um fjögur leitið í nótt og er ásýnd eyjarinnar gjörbreytt eftir hamfarirnar. Óskar P. Friðriksson myndaði það sem fyrir augun bar í morgun. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. 11.5.2010 11:17
Þjófar handteknir á Akureyri Fjórir piltar á aldrinum 17 til 21 árs hafa játað fjölmörg innbrot og bensínsþjófnað á Akureyri. 11.5.2010 10:52
Heimsækja bæi á öskufallssvæðinu Skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli upp úr klukkan sex í morgun en skjálftarnir voru allir vægir, eða innan við tvo á Richter. Gosið hélt ámóta styrk í nótt og var í gærdag en vindur er hægur á slóðum gossins þannig að öskufall er mest í næsta nágrenni eldstöðvarinnar. 11.5.2010 10:37
Talinn líklegasti eftirmaður Browns David Miliband utanríkisráðherra Bretlands er talinn líklegastur til þess að taka við sem formaður Verkamannaflokksins nú þegar Gordon Brown hefur tilkynnt afsögn sína. 11.5.2010 10:36
Fundu 120 kannabisplöntur í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 120 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig var lagt hald á 70 kannabisfræ og eitthvað af marijúana. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 11.5.2010 10:06
Dánartíðni hækkar örlítið á Íslandi milli ára Árið 2009 dóu 2.002 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.033 karlar og 969 konur. Dánartíðni var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa. Hún hækkaði um 0,1 frá árinu 2008. 11.5.2010 09:50
Stal sólpalli frá nágranna sínum Í vikunni var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt um að sólpallur hefði verið tekinn ófrjálsri hendi. 11.5.2010 09:38
Fréttastjóri Stöðvar 2 segir upp Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis, hefur sagt upp störfum og tekur uppsögnin þegar gildi. 11.5.2010 09:15
Aska lokar flugvöllum á Spáni Sjö flugvöllum hefur verið lokað á Spáni í morgun vegna ösku sem borist hefur úr Eyjafjallajökli til Vestur-Evrópu. Um er að ræða þrjá flugvelli í suðurhluta meginlandsins og fjóra á Kanarí. Því er ljóst að eldgosið á Eyjafjallajökli mun áfram hafa áhrif á ferðalög þúsundir manna. Um nýliðna helgi þurfti að loka 19 flugvöllum á Spáni líkt og víða annars staðar í Evrópu. 11.5.2010 08:53
BP greiði hærri skaðabætur vegna olíulekans Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að breska olíufélagið BP verði látið axla ábyrgð á olíulekanum á Mexíkóflóa. Hann hyggst hækka skaðabæturnar sem félagið þarf að borga. 11.5.2010 08:33
Táragasi beitt fyrir utan forsetahöllina á Haítí Lögreglumenn þurftu að beita táragasi til að dreifa mótmælendum fyrir utan forsetahöllina í höfuðborg Haítí í nótt. Mótmælendurnir kröfðust afsagnar forsetans. 11.5.2010 08:30
Stjórnmálaforingi segir af sér vegna kynlífsmyndbands Deniz Baykal, formaður stærsta stjórnarandstöðuflokks Tyrklands, hefur sagt af sér vegna kynlífsmyndbands sem sýnir hann í ástarlotum með stjórnmálakonu úr flokki hans var birt í síðustu viku. Baykal sem er 71 árs er harðgiftur maður og hefur verið formaður CHP-flokksins í 18 ár. 11.5.2010 08:23
Kona í annarlegu ástandi handtekin Kona í annarlegu ástandi var handtekin i austurborginni í Reykjavík í nótt, eftir að vitni höfðu séð hana vera að sniglast í húsagörðum og skima inn í bíla á götum úti. 11.5.2010 08:16
Fluttur með þyrlu eftir fjórhjólaslys Karlmaður, sem var á fjórhjóli í grennd við Hvammstanga í gærkvöldi, slasaðist þegar hann féll á hjólinu. Læknir sem kom á vettvang mat ástand hans svo að hann þyrfti hið bráðasta að komast á hátæknisjúkrahús og var því kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sótti hann og flutti á Landsspítalann. Ekki er vitað um tildrög slyssins. 11.5.2010 08:13
Gríðarleg sjósókn á fyrsta degi strandveiða Gríðarleg sjósókn var í gær á fyrsta degi strandveiða smábáta hér við land í ár. Þrátt fyrir að margur sjómaðurinn væri óvanur og margar trillur hafi staðið lengi ónotaðar, er ekki vitað nema um eitt tilvik, þar sem draga þurfti bát að landi vegna bilunar.Veður var enda gott og víða mjög góð veiði. Í þeim tilvikum voru veiðiferðir stuttar, því hámark er sett á dagsafla hvers báts í þessu veiðikerfi. 11.5.2010 08:09
Kona í barnsnauð flutt með björgunarskipi frá Eyjum Björgunarskip Björgunarfélags Vestmannaeyja flutti í nótt konu í barnsnauð frá Vestmannaeyjum til nýju Landeyjarhafnarinnar, þar sem sjúkrabíll með ljósmóður frá Selfossi beið hennar og var hún flutt á fæðingadeild Landsspítalans í Reykjavík. 11.5.2010 08:03
Fjöldagröf finnst í Serbíu Fjöldagröf fannst nýverið í Serbíu skammt frá landamærunum að Kosovo. Talið er að í gröfinni séu líkamsleifar um 250 Kosovo-Albana sem leitað hefur verið í tæp 12 ár. 11.5.2010 08:02
Flugliðar BA boða til 20 daga verkfalls Flugliðar hjá British Airways hafa ákveðið að leggja niður störf í samtals 20 daga. Starfsmennirnir hafa undanfarna mánuði átt í hörðum deilum við stjórnendur flugfélagsins og gagnrýnt harðlega niðurskurðaráætlanir þeirra. 11.5.2010 07:57
Gríðarmikið hrun varð úr Bjarnarey Gríðarmikið hrun varð úr Bjarnarey, austan við Heimaey, þegar að minnstakosti hundruð tonna féllu úr bjarginu í sjó fram um fjögur leitið í nótt. Það var sjómaður á trillu sem sá þetta tilsýndar og var engin nær vettvangi þegar þetta gerðist. Vatnssúla steig hátt til himins enda var skákin sem hrundi frá sjólínu og alveg upp úr mjög stór úr hundrað metra háu bjarginu. Nú er þar grýtt fjara, þar sem sjórinn féll alveg að eynni áður. 11.5.2010 07:06
Hreiðar er grunaður um fleiri brot en Magnús Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni. Ástæða þess að farið var fram á lengra gæsluvarðhald yfir Hreiðari en Magnúsi er sú að Hreiðar er grunaður um fleiri brot en Magnús, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 11.5.2010 06:45
Sjálfstæðisflokkur heldur meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum en heldur hreinum meirihluta bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. 11.5.2010 06:30