Ragnar Axelsson er heiðurslistamaður Kópavogs Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. maí 2010 21:52 Ragnar Axelsson tekur á móti verðlaununum.
Ragnar Axelsson ljósmyndari var í kvöld útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar fyrir árið 2010. Í umsögn lista-og menningarráðs Kópavogs segir meðal annars að Ragnar, eða Raxi eins og hann er kallaður, hafi fyrir löngu fest sig í sessi sem einn fremsti fréttaljósmyndari Íslands. Tengsl mannsins við náttúruna séu honum einkar hugleikin og myndir hans sýni gjarnan sambandið milli manna og dýra í baráttu við náttúruöflin. Þá nái hann með svarthvítum myndum sínum að fanga andrúmsloft aðstæðna á einkar svipmikinn og persónulegan hátt. Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður lista-og menningarráðs Kópavogs, tilkynnti um útnefninguna við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi en bærinn fagnar 55 ára afmæli sínu í dag. Sigurrós fór yfir feril Raxa og sagði meðal annars að hann hefði hvarvetna fengið mikið lof fyrir verk sín. Að því búnu afhenti Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, Raxa viðurkenninguna. Raxi fæddist á Nýbýlaveginum í Kópavogi 6. mars 1958 og hefur búið í bænum í áratugi. Hann lærði ljósmyndun hjá Ingibjörgu Kaldal, Mary Ellen Mark og Ólafi K. Magnússyni og hefur verið ljósmyndari á Morgunblaðinu frá árinu 1976, eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira