Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslensk kona sýnir listaverk á Louvre-safninu „Verkin verða hengd upp í píramídanum þar sem inngangurinn er," segir listakonan Þóra Einarsdóttir sem heldur samsýningu á Louvre-safninu. Að vísu verða verkin hennar ekki samsíða hinni ódauðlegu Monu Lisu eftir Da Vinci en verkin hennar verða það fyrsta sem gestir safnsins sjá. 29.5.2010 10:22
Danir púa pípur mest allra Danir reykja álíka mikið og aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins. En þegar kemur að pípureykingum kemst engin með tærnar þar sem þeir hafa hælana. 29.5.2010 10:18
Dagur B.: Stjórnmálin eru á vegamótum „Stjórnmálin almennt eru á vegamótum, það hefur fallið mikið á traustið og það verður geysimikið verkefni að endurvinna það,“ sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í viðtali við Þorgeir Ástvaldsson og Sólveigu Bergman á Bylgjunni fyrir utan Ráðhúsið í morgun. 29.5.2010 09:58
Erill hjá lögreglunni í nótt Það var talsverður erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um innbrot í nótt en þjófurinn braust inn á heimili í Hafnarfirði klukkan hálf tvö eftir miðnætti. Þjófurinn stal verðmætum að sögn lögreglunnar og komst undan. Málið er í rannsókn. 29.5.2010 09:38
Fáar skoðanakannanir fyrir kosningarnar í dag Hversu nærri úrslitunum fóru skoðanakannanir sem gerðar voru fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2006? 29.5.2010 09:00
Hanna Birna vinnur á meðal kvenna Talsvert fleiri segjast nú vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, verði borgarstjóri en fyrir viku, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. 29.5.2010 08:30
Ný framboð skapa óvissu Fólk vill breytingar í kosningunum, ný framboð skapa óvissu og forspárgildi skoðanakannanna er lítið að mati stjórnmálafræðinga. 29.5.2010 08:00
Vilja sjónarmið nítján ráðherra frá 2007 Allir ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn frá 1. janúar fram að hruni hafa fengið bréf frá þingmannanefnd um rannsóknarskýrsluna. Þar er þeim gefinn kostur á því að útskýra sitt sjónarmið varðandi aðkomu þeirra að hruninu eða aðgerðaleysi. 29.5.2010 07:00
Vara við rangfærslum og hræðsluáróðri Evrópusamtökin mótmæla í yfirlýsingu auglýsingum Samtaka ungra bænda, sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í gær. Samtökin segja umræðu um málefni Evrópusambandsins verða að vera málefnalega, ekki byggða á rangfærslum og hræðsluáróðri. 29.5.2010 06:00
Vorhátíð í dag á 80 ára afmæli Vorhátíð Austurbæjarskóla verður haldin í dag klukkan tíu stundvíslega. 29.5.2010 06:00
Gjóska 30 til 40 metrar á þykkt Gjóskan á börmum austurgíganna í Eyjafjallajökli mældist í fyrradag 30 til 40 metra þykk. Þá tóku starfsmenn Jarðvísindastofnunar Háskólans stöðu á gosinu. 29.5.2010 04:00
Kvenfélög vilja verja orlofsfé húsmæðra Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, segir sambandið leggjast gegn frumvarpi um afnám húsmæðraorlofs. 29.5.2010 02:30
Ástralir í mál við Japana Áströlsk stjórnvöld undirbúa málsókn gegn Japan vegna hvalveiða þeirra í Suðurhöfum. Rökin fyrir málsókninni eru að veiðarnar gangi gegn alþjóðabanni við veiðum í atvinnuskyni en Japanar halda því fram að um vísindaveiðar sé að ræða. . 29.5.2010 02:00
Eins og komið sé í land dauðans „Þar sem þetta er verst er eins og verið sé að koma inn í land dauðans,“ segir Ólafía Aðalsteinsdóttir, starfsmaður útibúaþjónustu Landsbankans, um þær aðstæður sem mættu sjálfboðaliðum í hreinsunarstarfi undir Eyjafjöllum í vikunni. Hún segir að víða megi sjá gras og annan gróður stinga sér upp úr öskunni, en annars staðar sé stemningin eins og eftir kjarnorkusprengingu. Ekki sjáist annað en svart og grátt í umhverfinu. 29.5.2010 02:00
Tugir myrtir í árás á moskur Minnst 80 manns létust og fjöldi særðist í árás á tvær moskur Ahmati múslíma í borginni Lahore í Pakistan í gær. Í gærkvöldi var ekki vitað hverjir stóðu fyrir ódæðinu eða hversu margir árásar-mennirnir voru. Þeir beittu bæði hríðskotarifflum og handsprengjum áður en þrír þeirra sprengdu sprengjur sem þeir báru innanklæða. 29.5.2010 01:30
Rektor sækir kínverja heim Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tekur ásamt rektorum 25 norrænna háskóla, þátt í stefnumóti við Fudan háskóla í Shanghaí í tilefni 15 ára afmælis Norræns seturs við skólann. 29.5.2010 01:00
Fáir hryðjuverkaleiðtogar í Guantanamo Um tíu prósent þeirra 240 fanga sem enn voru í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu þegar Barack Obama tók við embætti forseta eru taldir hafa verið hátt settir menn í hryðjuverkasamtökum sem ætluðu að ráðast gegn Bandaríkjunum. Hinir eru taldir hafa verið lágt settir fylgismenn. Þetta kemur fram í skýrslu sem gerð var af ríkisstjórn Bandaríkjanna en hefur aldrei verið gerð opinber. Bandaríska dagblaðið The Washington Post hefur skýrsluna nú undir höndum og hefur birt útdrætti úr henni. Fimm prósent fanganna var ekki hægt að tengja við hryðjuverk með nokkrum hætti. 28.5.2010 22:10
Ráðuneytinu skylt að miða við hærri bindingu Sjávarútvegs- og Landbúnaðaráðuneytið gerir athugasemdir við málflutning Samtaka verslunar og þjónustu upp á síðkastið þar sem spurt er hvort hvort auglýsingar á tollkvótum fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir séu löglegar eftir að farið var að miða við verðtoll í stað magntolls áður. 28.5.2010 20:38
Leiðrétting: Framsóknarflokkurinn á heiðurinn að frístundakortunum Í frétt á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um kosningaloforð flokkanna fyrir síðustu kosningar og orð og efndir í þeim efnum, varð fréttakonu á að eigna Sjálfstæðisflokknum heiðurinn að frístundakortum fyrir börn í borginni. 28.5.2010 21:21
Gary Coleman látinn Barnastjarnan fyrrverandi, Gary Coleman, er látinn, 42 ára að aldri. Coleman sló í gegn í bandarísku sjónvarpi í þáttunum „Diff'rent Strokes“ en varð frægðinni að bráð eins og svo margar barnastjörnur. Hann stríddi við sjúkdóm sem leiddi til þess að hann var alla tíð mjög lágvaxinn og var hann oft skotspónn grínara vegna þess. 28.5.2010 21:30
Frambjóðendur tókust á í beinni Fulltrúar þeirra framboða í Reykjavík sem hafa verið að mælast með mann inni í könnunum fyrir komandi kosningar á morgun hittust í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þar var farið yfir helstu áherslur flokkanna og spáð í spilin um mögulegt samstarf að kosningum loknum. 28.5.2010 19:32
Veðja á Jón Gnarr Jón Gnarr verður næsti borgarstjóri í Reykjavík ef marka má spár þeirra sem veðja á vefsíðunni Betsson. Næstlíklegust þykja þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson. Þá eru einhverjir sem spá því að næsti borgarstjóri komi ekki úr hópi þeirra sem bjóða sig fram til borgarstjórnar en langólíklegast þykir að Sóley Tómasdóttir verði borgarstjóri. 28.5.2010 18:28
Segir skemmdarvarga tengda Samfylkingunni Mikil harka er hlaupin í kosningabaráttuna í Kópavogi. Kosningastjóri framsóknarflokksins sakar aðila tengda frambjóðanda Samfylkingarinnar um að hafa skemmt fjölda kosningaskilta á vegum flokksins í bænum. Frambjóðandinn segir ásakanirnar fásinnu. 28.5.2010 18:44
Aðeins 30% upp í Icesave ef kröfuhafar vinna mál gegn slitastjórn Alþjóðlegir bankar hafa borið ágreining við slitastjórn Landsbankans undir dómstóla til að hnekkja því að innstæður séu forgangskröfur. Ef þeir vinna málið fæst aðeins 30 prósent upp í Icesave af eignum Landsbankans. 28.5.2010 18:30
Besti flokkurinn dalar - Sjálfstæðismenn í sókn Besti flokkurinn fær sex borgarfulltrúa ef kosningar á morgun verða í samræmi við nýja könnun sem Capacent gerði fyrir RÚV og sagt var frá í sexfréttum. 28.5.2010 18:17
Fjórir handteknir vegna innbrota í 38 sumarbústaði Fjórir ungir karlmenn voru í dag handteknir á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fjölda innbrota í sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Að sögn lögreglu er yngsti maðurinn 15 ára og sá elsti 18 ára. Sá hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðald. Þess sama verður krafist á tvo til viðbótar. Yngsti meðlimurinn verður að tilstuðlan barnaverndaryfirvalda vistaður á Stuðlum. 28.5.2010 17:51
Markaðsátak þegar farið að skila sér Vísbendingar eru um að markaðsátakið „Inspired by Iceland" sem unnið er í samvinnu iðnaðarráðuneytisins og Reykjavíkurborgar við aðila ferðaþjónustunnar sé þegar farið að skila árangri, segir Katrín Júlíusdóttir 28.5.2010 16:11
Eignarhald á auðlindum rætt á ríkisstjórnarfundi Það er full ástæða til þess að hefja vinnu að breytingum á lagaumhverfi um eignarhald á náttúruauðlindum til samræmis við það sem er gert til dæmis í Noregi, segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún fór yfir málið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. 28.5.2010 15:35
Fyrrum Kaupþingsstjórar frjálsir ferða sinna Kaupþingsmennirnir fjórir sem úrskurðaðir voru í farbann vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintum brotum Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins 2008 eru frjálsir ferða sinna. 28.5.2010 14:33
Sóttvarnarlæknir rannsakar áhrif eldgossins á heilsu Sóttvarnarlæknir mun hefja rannsókn á heilsufarslegum afleiðingum ösku og annarra efna frá eldgosinu í Eyjafjallajökli næsta mánudag. 28.5.2010 14:04
Kanna möguleika á barnaþingi í Reykjavík Á fundi Mannréttindaráðs í morgun var samþykkt að komið verði á fót starfshóp sem kanna á möguleikann á því að haldið verði barnaþing í Reykjavík í haust í samstarfi vð félagasamtök sem vinna að velferð og hagsmunum barna. 28.5.2010 13:59
Reykjavíkurframboðið kærir Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar Reykjavíkurframboðið hefur lagt fram kæru á Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar vegna brots á 9. grein útvarpslaga. Krafist er tafarlausrar úrlausnar útvarpsréttarnefndar með tilliti til sveitarstjórnarkosninganna á laugardaginn. 28.5.2010 13:42
Geimrusl ógnar fjarskiptum Það er orðið svo mikið af rusli í geimnum að það stefnir fjarskiptum á jörðu í verulega hættu. 28.5.2010 13:39
Ekkert heyrst frá Guðlaugi Fréttastofa hefur frá því í morgun reynt að ná tali af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur það ekki borið árangur. Guðlaugur hefur hvorki svarað í síma né tölvupósti. 28.5.2010 13:15
Einn almannatengill á hvern fréttamann Um einn almannatengill er á hvern fréttamann á Íslandi, en fréttamönnum hefur fækkað um þriðjung á nokkrum árum. 28.5.2010 12:50
Svandís ekki með frumvarp um eignarhald í smíðum Umhverfisráðherra er ekki með frumvarp í smíðum um að eignarhald á orkufyrirtækjum verði breytt þannig að einkaaðilar megi ekki eiga meira en þriðjung í orkufyrirtækjum eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum í vikunni. Þetta segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. 28.5.2010 12:44
Auðir seðlar flokkaðir sérstaklega Búist er við að einhverjir óánægðir kjósendur sýni þann hug í verki með auðum kjörseðli á morgun. Formaður yfirkjörstjórnar segir að auðir seðlar verði sérstaklega flokkaðir og taldir. 28.5.2010 12:31
Hasar í Kópavogi - Framsóknarskiltin eyðilögð Auglýsingaskilti Framsóknarflokksins í Kópvogi sem komið hafði verið fyrir víðsvegar um bæjarfélagið voru eyðilögð í nótt. Kosningastjóri framsóknarmanna segir að málið verði tilkynnt til lögreglu. Hann segir rangt að bæjarfulltrúi flokksins hafi misnotað aðstöðu sína. 28.5.2010 12:26
Oddviti Framsóknar lánaði sjálfum sér auglýsingaskilti „Sem vallarstjóri tekur hann og notar eigur bæjarins í sína prívat þágu," segir Lára Jóna Þorsteinsdóttir, kosningastjóri VG í Kópavogi, sem er allt annað enn sátt við Ómar Stefánsson, oddvita framsóknarmanna í Kópavogi. Hún segir að Ómar hafi tekið svokallaða búkka sem eru í eigu Kópavogsvallar og komið fyrir víðsvegar um bæinn með auglýsingum frá Framsóknarflokknum. Lára Jóna bendir á öðrum framboðum hafi ekki staðið slíkt til boða. Þetta hafi auk þess verið gert í trássi við ákvörðun byggingarfulltrúa bæjarfélagsins. 28.5.2010 11:32
Hvalveiðar fyrir Alþjóðadómstólinn Ástralska ríkisstjórnin hefur ákveðið að draga Japan fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag vegna hvalveiða þeirra. 28.5.2010 11:06
Rúmlega 107 þúsund nemar á Íslandi Heildarfjöldi nemenda á öllu landinu skólaárið 2009-2010 er 107.012. Þeim hefur fjölgað um 1529 frá árinu áður eða um 1,4%. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar. 28.5.2010 10:46
Aldrei jafn margar árásartilraunir Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna segir að á síðustu níu mánuðum hafi verið gerðar fleiri tilraunir til hryðjuverkaárása á landið en nokkru sinni fyrr á eins árs tímabili. 28.5.2010 10:34
Lögmanni gert að greiða félögum sínum milljónir Hæstiréttur dæmdi í gær Þórarin V. Þórarinsson til að greiða þremur meðeigendum sínum í lögmannsstofu og innheimtufyrirtæki rúmar 22 milljónir króna. 28.5.2010 10:13
Helmingur oddvitanna í Reykjavík hefur reykt hass Fjórir af átta oddvitum framboðanna sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík hafa reykt hass. Einn þeirra hefur auk þess prófað kókaín. Þetta kemur fram í DV í dag. 28.5.2010 09:30
Fleiri handteknir í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa handtekið sex menn til viðbótar sem grunaðir eru um að tengjast hinu misheppnaða sprengjutilræði í New York 1. maí þegar sprengju var komið fyrir í jeppa á Times Square. Fimm menn höfðu áður verið handteknir í Pakistan í tengslum við málið. 28.5.2010 08:53