Ráðuneytinu skylt að miða við hærri bindingu 28. maí 2010 20:38 Jón Bjarnason, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra.
Sjávarútvegs- og Landbúnaðaráðuneytið gerir athugasemdir við málflutning Samtaka verslunar og þjónustu upp á síðkastið þar sem spurt er hvort hvort auglýsingar á tollkvótum fyrir ýmsar landbúnaðarafurðir séu löglegar eftir að farið var að miða við verðtoll í stað magntolls áður. „Í umfjölluninni er því einnig haldið fram að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vilji koma í veg fyrir góðan hag íslenskra neytenda þannig að þeir fái ekki notið þeirra afurða sem þeir eiga rétta á skv. skuldbindingum okkar gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Loks er tiltekið að samtökin segjast hafa sent erindi til utanríkisráðuneytisins vegna þessa og óskað eftir því að það kanni hvort þessi aðferð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins standist skuldbindingar okkar gagnvart WTO og segja að svars utanríkisráðuneytisins sé að vænta á næstu dögum," segir ennfremur. „Ýmislegt er við þessa umfjöllun Samtaka verslunar og þjónustu að athuga þó stutt sé," segir svo. „Hér skal í fyrsta lagi bent á 4. gr. laga nr. 87/1995 um breytingar á lögum vegna aðildar Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Þar stendur í 3. mgr. "Tollur á vörur frá aðildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar má eigi vera hærri en þær tollabindingar sem tilgreindar eru í viðaukum IIA og IIB með lögum þessum. Miðist tollabinding bæði við verð og magn skal hámarkstollur miðast við þá bindingu sem hærri álagningu leyfir." Ljóst er skv. þessu að ráðuneytinu er beinlínis skylt með lögum að miða við þá bindingu sem hærri er," segir í tilkynningunni. Þá er bent á að tiltekið sé í sömu lögum að hið íslenska stjórnvald sem fer með framkvæmd og úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur er landbúnaðarráðherra en ekki utanríkisráðherra. „Skýrt er kveðið á um meðferð mála gagnvart stjórnsýslunni í stjórnsýslulögum. Má vera að Samtök verslunar og þjónustu þurfi að kynna sér það efni betur. Að lokum er því alfarið hafnað að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið láti sér ekki annt um hag íslenskra neytenda þótt það hvetji umfram annað nú til notkunar á íslenskrar framleiðslu á sem flestum sviðum, sem er í senn atvinnuskapandi og sparar gjaldeyri."
Tengdar fréttir Vilja úrskurð um lögmæti auglýsinga ráðherra Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa farið fram á það við utanríkisráðuneytið að það kanni hvort auglýsingar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um tollkvóta standist lög. Ráðherrann breytti fyrirkomulagi þessara auglýsinga er hann tók við embætti og nú er svo komið að fáir vilja bjóða í þá tollkvóta sem eru í boði. 28. maí 2010 14:22 Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira
Vilja úrskurð um lögmæti auglýsinga ráðherra Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa farið fram á það við utanríkisráðuneytið að það kanni hvort auglýsingar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um tollkvóta standist lög. Ráðherrann breytti fyrirkomulagi þessara auglýsinga er hann tók við embætti og nú er svo komið að fáir vilja bjóða í þá tollkvóta sem eru í boði. 28. maí 2010 14:22