Fleiri fréttir

Kröfufundur á Austuvelli

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýja Ísland blása til kröfufundar á Austurvelli í dag. Þar verður tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna mótmælt.

Ráðuneyti undrast fréttaflutning

Félags- og tryggingamálaráðuneytið lýsir undrun á fjölmiðlaumfjöllun um andstöðu við áform stjórnvalda um að flytja þjónustu á hjúkrunarheimilum frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Umrædd breyting hafi átt sér stað fyrir tveimur árum með lagabreytingu sem gerð hafi verið eftir víðtækt samráð við hagsmunaaðila.

Skjálftar suðvestur af Reykjanesi

Jarðskjálftahrina hófst við Geirfugladrang suðvestur af Reykjanesi um áttaleytið í morgun. Sex skjálftar yfir tvö stig mældust þar á níunda tímanum í morgun, þar af þrír skjálftar yfir þrjú stig, sá öflugasti 3,2 stig. Veðurstofan segir ekki ástæðu til að kippa sér upp við þetta.

Þingfundur í dag

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um umhverfis- og auðlindaskatt verður væntanlega afgreitt sem lög frá Alþingi í dag. Frumvarpið gerir meðal annars ráð fyrir því að sérstakt kolefnisgjald verði lagt á bensín og olíu og skattur lagður á sölu á rafmagni og heitu vatni. Skatturinn á að skila ríkissjóði um 5 milljörðum á ári. Alls eru átta önnur mál á dagskrá Alþingis í dag en þingfundi lauk klukkan rúmlega níu í gærkvöldi.

Teflt í Ráðhúsinu

Ríflega 320 skákmenn eru skráðir til leiks á Jólapakkamóti Hellis sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Mótið hefst klukkan eitt og er aðgangur ókeypis.

Ekki bindandi samkomulag

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, náði í gærkvöldi samningi við leiðtoga Kína, Indlands, Brasilíu og Suður-Afríku um tillögur og áherslur í loftslagsmálum. Samkvæmt því er stefnt að því að hitahækkun verði að jafnaði innan við 2 stig.

Haldið sofandi

Manninum sem lenti í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í gær er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega höfuðáverka. Tveir létust þegar bílar skullu saman í slysinu.

Hálka og éljagangur

Vetrarfæri er nú á þjóðvegum norðaustanlands og á Austurlandi og hálka og éljagangur á flestum leiðum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Þá er auk þess snjókoma á Öxnadalsheiði og skafrenningur í Ljósavatnsskarði, og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Ók á ljósastaur og skildi bílinn eftir

Nóttin virðist víðast hvar hafa verið róleg hjá lögreglumönnum. Lögregla þurfti að hafa lítil afskipti af fólki í miðbæ Reykjavíkur en sinnti nokkrum hávaðaútköllum víðsvegar um borgina.

Fyrri rannsókn FME bundin við haustið

Rannsókn Fjármálaeftirlitsins (FME) á meintum innherjasvikum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, einskorðaðist í upphafi við atburði í september í fyrra. Við endurupptöku málsins síðasta sumar, í kjölfar ábendinga, beindist rannsóknin að atburðum sem gerst höfðu fyrir september.

Ekkert verið talað við okkur

„Ég sem kennari vil koma því skýrt á framfæri að forysta Kennarasambandsins hefur ekkert rætt það við hinn almenna félagsmann hvernig hann vill bregðast við fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Afstaða forystunnar er alfarið á hennar ábyrgð og ég veit ekki til að hún sé bökkuð upp af félagsmönnum,“ segir Sigtryggur Arason, kennari á Akranesi.

Von lifir í vonbrigðunum

„Hlýnun loftslags af mannavöldum er staðreynd, engin bábilja.“ Þessi yfirlýsing sýnir öðrum fremur hve langt loftlagsmál hafa færst á undanförnum árum. Það að forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, fullyrði á þennan veg og aðrir þjóðarleiðtogar taki í sama streng, sýnir okkur að búið er að viðurkenna vandamálið. Og það er alltaf fyrsta skrefið í átt að lausn. Sú lausn fæddist ekki hér í Kaupmannahöfn, þrátt fyrir að bjartsýnustu menn hefðu vonast eftir því. Kannski var það of mikil bjartsýni, margir tala þannig nú.

Meintur ritstuldur á Bifröst í rannsókn

Yfirstjórn Háskólans á Bifröst rannsakar nú meintan ritstuld lögfræðings sem útskrifaðist frá skólanum árið 2008. Maðurinn er grunaður um að hafa stolið lokaritgerð í lögfræði við háskólann.

Talin tilraun til manndráps

Gæsluvarðhald var í gær framlengt til 15. janúar í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir manninum sem skaut með haglabyssu á útidyrahurð íbúðarhúss í Seljahverfi. Krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um framlengingu byggir á almannahagsmunum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er litið á atvikið sem tilraun til manndráps.

Styttir bið eftir öðru barni

Bið kjörforeldra eftir því að ættleiða öðru sinni styttist um sex mánuði með nýrri reglugerð dómsmálaráðherra.

Hægt að fletta upp kennitölu

Bætt hefur verið inn möguleika á að fletta upp kennitölum til að kanna hvort þær hafi verið skráðar á vefsíðu InDefence-hópsins.

Talsvert tjón af völdum reyks

Talsverðar skemmdir urðu á báðum íbúðum í tvíbýlishúsi í Vestmannaeyjum aðfaranótt föstudags eftir að húsráðandi í kjallara sofnaði út frá eldamennsku.

Samkomutjaldið féll að lögreglu ásjáandi

„Hver vill bera ábyrgð á óhappi og manntjóni? Það getur hæglega orðið hér eins og erlendis,“ segir Magnús Sædal byggingarfulltrúi, sem í gær lét fella stórt samkomutjald í garðinum við Hressingarskálann í Austurstræti.

Skert kennsla krefst sannfærandi raka

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að mjög sannfærandi rök þurfi að koma til ef stytta eigi kennslutíma nemenda í grunnskólum landsins. Hún hefur kallað eftir greiningu á tíu milljarða króna kostnaðarauka innan grunnskólans á undanförnum árum.

Færeyingar fá meiri jólahjálp

Hjálparstofnanir í Færeyjum segja að þörf Færeyinga á aðstoð fyrir jólahátíðina sé meiri í ár en í fyrra.

Yfirlýsing Jónasar Fr. Jónssonar

„Þegar undirritaður lét af störfum forstjóra FME var rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar ekki komin á það stig að vera á borði forstjóra. Fundargerðir svonefnds samráðshóps voru fyrirliggjandi í skjalavörslu FME og það kunnugt viðeigandi starfsmönnum. Jafnframt benti undirritaður rannsakendum á að kynna sér fundargerðir samráðshópsins. Það er annarra að svara fyrir framkvæmd og ákvarðanatöku við rannsókn sem átti sér stað í tæpa 4 mánuði eftir að ég vék úr starfi, og lauk þá án frekari aðgerða.“

Skoðar málið aftur að ári

Íbúðalánasjóður er hættur við útgáfu á nýjum flokki íbúðabréfa á þessu ári og fyrri hluta næsta árs. Gert var ráð fyrir því að flokkurinn yrði til lengri tíma en nú er.

Stærri jólatrén ódýrust í Blómavali

Tæplega tveggja metra normannsþinur er ódýrastur í Blómavali en ekki í Byko eins og misritaðist í grein um verð á jólatrjám í fimmtudagsblaði Fréttablaðsins.

Vildi sviptingu dýrahalds

„Ég hefði viljað sjá koma fram kröfu frá ákæruvaldinu þess efnis að viðkomandi bóndi yrði sviptur leyfi til dýrahalds. Og ég hefði viljað sjá dómstólinn staðfesta hana.“

Flestar kröfur hjá Kaupþingi

Tólf þúsund kröfum hefur verið lýst í bú Kaupþings og er gert ráð fyrir að lánardrottnar bankans verði í hópi helstu kröfuhafa auk þeirra fjárfestingarsjóða sem umsvifamestir hafa verið í kaupum á kröfum gömlu bankanna. Gera má ráð fyrir að kröfum í bú Kaupþings muni fjölga verulega en í tilviki Glitnis og Landsbankans skilaði meirihluti þeirra sér á síðustu dögunum áður en kröfulýsingarfrestur rann út.

Óttast fækkun lögreglumanna

Stjórn Lögreglu­félags Suðurlands óttast afleiðingar mikils niðurskurðar og fækkunar lögreglumanna sem boðuð er í umdæminu á næsta ári. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórnarfundi á miðvikudag.

Landið verður eitt skattumdæmi

Frumvarp um sameiningu níu skattumdæma og ríkisskattstjóra í eitt embætti varð að lögum í gær. Tekur nýtt fyrirkomulag gildi um áramót. Ríkisskattstjóri fer með öll skattamál í landinu og starfrækir eina skattstofu í hverjum landsfjórðungi.

Landsnet sendir ekki jólakort

Landsnet hf. styrkir þrjú líknarfélög fyrir jólin. Krabbameinsfélag Íslands fær styrk til rannsókna á blöðruhálskrabbameini í körlum. Einnig er styrktur Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þá fær Maríta styrk, en það félag annast forvarnir og fræðslu um skaðsemi vímuefna.

Steypustöðin gefur fátækum

Steypustöðin ehf. hefur fært Fjölskylduhjálp Íslands peningagjöf í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort eða glaðning.

Fjármagnseigendur hagnast

Ekki er líðandi að fjármagnseigendur hagnist á neyðaraðgerðum ríkisstjórnarinnar, en það gerist vegna beinna tengsla skatta- og verðlagsbreytinga við þróun höfuðstólshækkana húsnæðislána, sem birtast sem verðbætur.

Sorpa styrkir ýmis samtök

Sorpa bs. varði tíu milljónum til góðgerðamála í gær. „Hjálpum fólki til sjálfshjálpar“ var yfirskrift styrkjanna, en með þeim var leitast við að styðja efnaminni börn og ungmenni.

Ísland nær sextánda sætinu

Fimmtán þjóðir veiddu meiri fisk en Íslendingar á árinu 2007. Kína er langsamlega stærsta fiskveiðiþjóðin, en í næstu sætum eru Perú, Indónesía og Bandaríkin, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Við erum baráttumenn

Fulltrúum Venesúela, Kúbu og Bólivíu lá mikið á hjarta á blaðamannafundi í dag og létu sér fátt um finnast þegar skipuleggjendur bentu þeim á að fundartíminn væri liðinn.

Vilja forðast verðhjöðnun

Bankastjórn japanska seðlabankans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,1 prósenti. Vaxtastig í landinu hefur haldist óbreytt í eitt ár.

Klúður í Kaupmannahöfn

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn virðist hafa mistekist að flestu leyti.

Hrekkjusvín biðst afsökunar á fölskum tilkynningum

„Ég verð víst að biðja alla afsökunar sem urðu mínum hrekk að bráð. En klukkan 18:00 kem ég til með að tilkynnar öllum á facebook að þetta var víst ég,“ skrifar maður sem kallar sig Ingimund en hann sendi fréttastofu póst eftir að Vísir sagði frá ósmekklegum hrekki þar sem fólki var tilkynnt að þeir hefðu unnið í lukkuhjólsleik flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og Iceland Express.

Lýst eftir pilti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sextán ára pilti Hann fór frá heimili sínu síðastliðinn mánudag og hefur ekki sést síðan.

Haldið sofandi á gjörgæslu

Manninum sem lenti í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í morgun er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega höfuðáverka og fór hann strax í aðgerð við komuna á spítalann. Tveir létust þegar bílar skullu saman í Garðabæ við Arnarnes.

Hrekkja þátttakendur í jólaleik

Nokkrum þátttakendum í lukkuhjólsleik flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og Iceland Express, sem víða er að finna á vefnum, hafa borist falsaðar tilkynningar um vinning sem sendar er frá netfanginu kefairport@gmail.com.

Gagnrýna hugtakamisnotkun fjármálaráðherra

Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna þá hugtakamisnotkun sem felst í framlögðu frumvarpi fjármálaráðherra um umhverfis- og auðlindaskatta. Með frumvarpinu er lagt til að innheimtur verið skattur á sölu á raforku og heitu vatni auk skatts á tilgreinda flokka á fljótandi jarðefnaeldsneyti. Tilgangurinn er að afla aukinna tekna fyrir ríkissjóð sem nemur 4,7 milljörðum kr.

Sjá næstu 50 fréttir