Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Draumur vinstrimanna að hækka loksins skatta „Það getur vel verið að þetta sé hinn tæri draumur vinstrimanna að komast núna loksins í það að hækka almennilega skatta. Stóra einstaka málið er þó það sem ég bið stjórnarmenn að hugsa að hér um að ræða málfrelsi í þinginu,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um störf Alþingis í dag. 12.11.2009 11:15
Sjálfstæðismenn farnir að spyrja alvöru spurninga Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í dag ánægjulegt að sjálfstæðismenn væru farnir að spyrja alvöru spurninga varðandi ráðningar hjá hinu opinbera. Í umræðum um ráðningar í ráðuneytin án auglýsingar sagði Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, flokk sinn og aðra flokka sem sátu í ríkisstjórn á árum áður ekki hafa verið til fyrirmyndar í þessum efnum. 12.11.2009 10:54
Segir hugsanlegt fósturforeldri lofa hvolpi „Hún er búin að lofa honum hvolpi,“ segir Helga Elísdóttir, amma níu ára drengs sem átti að senda í fóstur á föstudaginn af Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Lögfræðingur Helgu, Dögg Pálsdóttir, kvartaði hinsvegar undan málsmeðferðinni og því hefur verið frestað að senda drenginn í fóstur. Að sögn Helgu þá er drengurinn núna í neyðarvistun í Reykjavík. Sjálf fær hún aðeins að umgangast hann í einn og hálfan tíma. 12.11.2009 10:49
Réttað yfir sjóðsstjóra og miðlara Aðalmeðferð er hafin í máli Ríkislögreglustjóra gegn sjóðstjórnanum Daníels Þórðarsonar og verðbréfamiðlaranum Stefni Inga Agnarssonar fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir störfuðu fyrir Kaupþing. Þeir hafa verið ákærðir fyrir að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. 12.11.2009 10:01
Fjárhagsstaða dómstóla rædd á þingi Fjárhagsstaða dómstóla verður rædd í umræðu utan dagskrár á Alþingi í dag að beiðni Ólafar Nordal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Til andsvara verður Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra. Umræðan hefst klukkan 13:30. 12.11.2009 09:57
Tyson handtekinn enn á ný Hnefaleikameistarinn fyrrverandi, Mike Tyson, var handtekinn á flugvellinum í Los Angeles í gær eftir að til átaka kom milli hans og ljósmyndara. 12.11.2009 08:58
Sonur Escobars biðst afsökunar Sonur kókaínbarónsins Pablo Escobar segist harma afbrot föður síns. 12.11.2009 08:53
Kínverjar reka ólögleg fangelsi Kínverjar reka fjölda ólöglegra fangelsa í hótelum, hjúkrunarheimilum og geðsjúkrahúsum í ríkiseigu. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch greina frá þessu og byggja upplýsingarnar á viðtölum við 38 manns sem verið hafa í haldi í slíkum fangelsum. 12.11.2009 08:51
Skátaforingi hafði mök við barn Danskur fyrrverandi skátaforingi á fertugsaldri hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa kynmök við skátastúlku undir lögaldri en brotin áttu sér stað frá því að stúlkan var 13 ára og þar til hún varð 15 ára. 12.11.2009 08:45
Vafasamur ljósmyndari í Bretlandi Breskur dómstóll hefur bannað þrítugum manni að bera myndavél á almannafæri í tvö ár auk þess sem honum er gert að sinna samfélagsþjónustu í eitt ár. 12.11.2009 08:41
Afhentu Svandísi hvirfilbyl Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Undirskriftunum hafði verið safnað á íspinnaprik við ýmsa gjörninga og atburði í sumar og haust og úr þeim var byggður hvirfilbylur sem er táknrænn fyrir þann vanda sem steðjar að jörðinni, verði ekkert að gert. 12.11.2009 08:23
Milljarðar í bónusa í varnarmálaráðuneyti Starfsfólk breska varnarmálaráðuneytisins hefur fengið 47 milljónir punda, jafnvirði tæpra tíu milljarða króna, í bónusgreiðslur það sem af er yfirstandandi fjárhagsári. 12.11.2009 08:21
Flughált á Fjarðarheiði Á Austurlandi, er flughált á Fjarðarheiði og víða hálka eða hálkublettir inn til landsins þótt autt sé með ströndinni. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og í Miðdölum en hálkublettir víðar. 12.11.2009 08:19
Ræður Obama frá því að auka við herliðið í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Kabúl hefur skrifað Bandaríkjaforseta bréf þar sem lagst er gegn því að auka við liðssöfnuð bandaríska hersins í Afganistan. Bréfinu hefur verið lekið til fjölmiðla en sendiherrann, Karl Eikenberry lýsir einnig efasemdum sínum um að Hamid Karzai forseti landsins og ríkisstjórn hans séu hæf til starfans. 12.11.2009 08:16
Oftar verði gripið til brottvísunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Útlendingastofnun hafa stillt saman strengi og sameinast um skilning á þeim ákvæðum laga um útlendinga sem snúa að heimildum til að vísa fólki úr landi leiki grunur á að það hafi í hyggju að fremja lögbrot. 12.11.2009 06:30
Þekktir fyrir ofbeldisverk hér á landi Menn í hópi fimm Litháa sem enn sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér, þar á meðal mansali, eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Fimmmenningarnir voru í gær úrskurðaðir í Héraðsdómi Reykjaness í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. desember eða í þrjár vikur til viðbótar, að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. 12.11.2009 06:00
Stillti saman strengi Samninganefnd Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið kom saman til síns fyrsta fundar í Þjóðmenningarhúsinu í gær. 12.11.2009 06:00
Nýtir skinn sem hefði annars verið fargað Skinn af lömbum sem drepast við burð eða drepast áður en þau eru rekin á fjall eru nú nýtt í nýrri fatalínu Eggerts Jóhannssonar feldskera. 12.11.2009 06:00
Geta greitt tæp tíu prósent Skilanefnd Landsbankans hefur stefnt eignarhaldsfélaginu Gift vegna skulda félagsins við bankann. Viðræður hafa átt sér stað um skuldina. Fyrirtaka fór fram í málinu í gær en var frestað fram í næsta mánuð. 12.11.2009 05:00
Ný þjófafæla er nú fáanleg „Þjófafælurnar eru farnar að tínast út,“ segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri verslunarinnar Glóeyjar sem selur nú nýtt tæki í baráttunni við innbrotsþjófa. Þetta er svokölluð FakeTV þjófafæla, sem gefur frá sér sams konar flöktandi birtu og sjónvarpstæki. 12.11.2009 04:00
Réðust á tvo lögreglumenn Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að skalla lögreglumann, sem var við skyldustörf í Bankastræti, í ennið. Maðurinn játaði sök fyrir dómara í gær. Annar maður var einnig ákærður fyrir ofbeldi gegn lögreglumanni við skyldustörf. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. 12.11.2009 04:00
Slysum hefur fækkað um 34 prósent Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 34 prósent milli áranna 2007 og 2009. Á fyrstu sjö mánuðum fyrrnefnda ársins urðu 343 slys í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu en á sama tímabili í ár urðu 228 slys. Frá þessu er greint í frétt lögreglunnar. 12.11.2009 04:00
Sjómannaafslátturinn ekki til tals við fjárlagagerðina Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, segir að afnám sjómannaafsláttar hafi ekki komið til umræðu í fjárlagavinnu fyrir árið 2010. 12.11.2009 03:45
Dópsalar földu hátt í milljón Fíkniefni, nær milljón í peningum og vopn fundust við húsleit í íbúð í Reykjavík síðdegis í fyrradag. Um var að ræða um fjörutíu grömm af hreinu amfetamíni, tíu grömm af hassi, þó nokkuð af sterum, marijúana og e-töflur 12.11.2009 03:15
Framsóknarmenn tryggja kynjakvóta Framsóknarmenn í Reykjavík munu halda sérstakan kjörfund laugardaginn 28. nóvember nk. þar sem kosið verður á milli frambjóðenda sem gefa kost á sér í sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí 2010 samkvæmt kjörnefnd Framsóknar í Reykjavík. 11.11.2009 16:00
Þriðjungur allra flugslysa í Afríku Flugferðir yfir Aríku eru aðeins lítið brot af allri flugumferð í heiminum, telur um 4%, en hins vegar verður þriðjungur allra flugslysa í heiminum í Afríku, að því er fram kom á þriggja daga fundi um flugöryggismál í höfuðborg Tógó og greint er frá í tímariti Þróunarsamvinnustofnunar. 11.11.2009 14:32
Leggur til að Náttúruminjasafnið fái inn í Þjóðmenningahúsið Þingmaður Framsóknarflokksins, Siv Friðleifsdóttir, lagði til á þingi fyrir stundu að Náttúruminjasafn Íslands fengi inn í Þjóðmenningarhúsið. Tilurð umræðunnar var húsnæðisleysi safnsins. Siv sagði það jafnframt fráleitt að Íslendingar ættu ekkert náttúruminjasafn. 11.11.2009 14:29
Hrotti játar að hafa ráðist á lögreglumann Hinn tuttugu og sex ára gamli Björgvin Þór Kristjánsson játaði fyrir dómara í morgun að hafa brotið gegn valdstjórninni með því að hafa þann 1. apríl skallað lögreglumann á ennið þegar hann var við skyldustörf. Árásin átti sér stað fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur, en þar inni játaði Björgvin brot sín í morgun. 11.11.2009 14:17
Loftbyssa, sveðja og hnífar gerðir upptækir hjá fíkniefnasala Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Reykjavík síðdegis í gær. Um var að ræða amfetamín, hass, marijúana, e-töflur og stera. 11.11.2009 13:54
Starfsmaður Fóðurblöndunnar dæmdur Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í dag í fyrir þjófnaðarbrot og tvö fjárdráttarbrot þegar hann starfaði hjá Fóðurblöndunni. Hann var upphaflega ákærður fyrir sex hegningalagabrot en var sakfelldur fyrir þrjú. 11.11.2009 13:42
Eiginkona bæjarstjórans íhugar framboð á Ísafirði Sagnfræðingurinn Guðfinna Hreiðarsdóttir íhugar að gefa kost á sér í fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði samkvæmt vefnum Bæjarins bestu. Athygli vekur að Guðfinna er eiginkona Halldórs Halldórssonar sem hefur lýst því yfir að hann muni ekki gefa kost á sér fyrir næstu sveitastjórnakosningar. 11.11.2009 13:22
Hjálparsveit skáta gagnrýnd vegna myndatexta „Við erum búnir að biðja um breytingu á þessu,“ segir Hlynur Pálsson, starfsmaður Hjálparsveitar skáta í Reykjavík en myndatextar inn á síðu félagsins fóru fyrir brjóstið á lesendum. Þar stóð meðal annars undir mynd af hjálparsveitarkonu ásamt leitarhundi: Neyðarkelling og neyðartík (hvor er hvor?). 11.11.2009 13:04
Mansalsmálið: Íslendingurinn látinn laus Íslendingur sem verið hefur í haldi vegna gruns um að hann tengist umfangsmiklu mansalsmáli verður látinn laus í dag. Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að fara fram á að gæsluvarðhaldinu yfir honum verði framlengt. 11.11.2009 11:45
Ljósabekkir verði bannaðir innan átján Geislavarnastofnanir á Norðurlöndunum vilja að sett verði 18 ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja. Þetta kemur fram á heimasíðu Geislavarna ríkisins. Þar segir að Norrænar geislavarnastofnanir hafi ráðlagt árið 2005, fólki undir 18 ára aldri og fólki með ljósa húð að nota ekki ljósabekki. Í nýrri sameiginlegri yfirlýsingu fjögurra geislavarnastofnana Finnlands, Svíþjóðar, Íslands og Noregs hafi hinsvegar verið gengið skrefi lengra og er nú lagt til að 18 ára aldursmark verði sett á notkun ljósabekkja. 11.11.2009 11:29
Tvö umferðaróhöpp í hálkunni Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Um áttaleytið valt jepplingur á Reykjanesbraut í Kópavogi. Ekki er ljóst hvað olli því en óhappið er hvorki rakið til hálku né hraðaksturs. 11.11.2009 11:17
Helmingur ók of hratt Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í gær af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 11.11.2009 10:54
Haförn í Hvalfjarðarsveit Í síðustu viku sást til hafarnar norðan við Laxá í Hvalfjarðarsveit ofan við Stóra Lambhaga samkvæmt vef Hvalfjarðarsveitar. 11.11.2009 10:37
Brotist inn í fyrirtæki og bíla í nótt Nokkrar tilkynningar hafa borist til lögreglu vegna innbrota sem framin voru í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Farið var inn í bíl á Suðurlandsbraut og þar tók þjófurinn sig til og spennti upp hurð bílsins til þess að komast inn. 11.11.2009 09:40
Að gera sem minnst í vinnunni Bandarískur rithöfundur segir fólk enn þá geta komist upp með að gera sem minnst í vinnunni, hvað sem kreppuástandi líður. 11.11.2009 08:45
Forseti ESB útnefndur í næstu viku Forseti Evrópusambandsins verður kosinn á fimmtudaginn í næstu viku, þann 19. nóvember að því er breska blaðið Financial Times hefur eftir Frederik Reinfreldt, forsætisráðherra Svíþjóðar. Kjörið fer fram á sérstökum aukafundi á meðal leiðtoga ríkja innan ESB og þykir líklegt að Herman van Rompuy forsætisráðherra Belga verði fyrir valinu. 11.11.2009 08:21
Varað við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli hálku víðast hvar í borginni. Að sögn varðstjóra er ástandið mjög varhugavert og brýnir hann fyrir ökumönnum að fara varlega á leið til vinnu sinnar. 11.11.2009 07:57
Ástralar hækka viðbúnaðarstig vegna hákarla Sumarið er fram undan í Ástralíu og miklar varúðarráðstafanir verða gerðar á baðströndum vegna tíðra hákarlaárása á þessu ári. 11.11.2009 07:18
Ölvaður flugstjóri handtekinn Lögregla á Heathrow-flugvellinum í London handtók bandarískan flugstjóra Boeing 767-farþegaþotu á mánudaginn, rétt fyrir fyrirhugað flugtak, en maðurinn, sem er á sextugsaldri, var undir töluverðum áfengisáhrifum. 11.11.2009 07:15
Muhammad tekinn af lífi í nótt John Allen Muhammad, maðurinn sem myrti tíu manns úr launsátri í úthverfum Washington borgar í Bandaríkjunum árið 2002 var tekinn af lífi í Virginíu í nótt. Aftakan fór fram með eitursprautu en verjendur Muhammads höfðu reynt allt til þess að fá aftökunni frestað. 11.11.2009 07:10
Rafmagnslaust í Brasilíu og Paraguay í gær Rafmagn fór af stórum hlutum Brasilíu og Paraguay í gærkvöldi, meðal annars voru stórborgirnar Rio de Janeiro og Sao Paulo rafmagnslausar. 11.11.2009 07:10