Fleiri fréttir

Orku- og umhverfisskattar verði 7,5 milljarðar króna

Ríkisstjórnin er tilbúin að lækka þá upphæð sem umhverfis-, orku- og auðlinda­gjöld skila í ríkiskassann á næsta ári úr 16 milljörðum króna í 7,5 milljarða. Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa mótmælt þessum gjöldum og er þetta tillaga til sáttar. Orkugjaldið verður, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, tólf aurar á kílóvattstund, ekki ein króna eins og lagt var til í fjárlagafrumvarpinu.

Átta mánuði tók að svara tölvupósti

Átta mánuðir liðu frá því að eftirlitssviði Lyfjastofnunar var send fyrirspurn í tölvupósti seint á árinu 2008 og þar til svar barst nú í sumar. Stofnun­in hefur ekki enn skilað greinargerð vegna úttektar sem gerð var á ónefndu apóteki um mitt ár 2008.

Björgólfur Thor á húsin í Gjábakka

Björgólfur Thor Björg­ólfsson og Kristín Ólafsdóttir, kona hans, eiga sumarbústaðina þrjá í Gjábakka í Þingvallaþjóðgarðinum sem sagt var frá í Fréttablaðinu á mánudag. Upplýsingar úr þjóðskrá að Ólafur H. Jónsson, faðir Kristínar, væri eigandi tveggja einkahlutafélaga sem eiga sumarhúsin reyndust ekki vera réttar.

Norrænn loftslagsdagur í dag

Í dag er haldinn hátíðlegur norrænn loftslagsdagur, en hann er hluti af undirbúningi fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember.

Öll gögn verði opin almenningi

Forsætisráðherra á að lýsa því yfir hið fyrsta að öll gögn í umsjá opinberra aðila verði hér eftir opin og aðgengileg almenningi, nema brýnar ástæður séu til annars. Þetta segja tólf þingmenn úr öllum flokkum í nýlegri þingsályktunartillögu um opin gögn og rafrænan aðgang að þeim.

Með nýtt frumvarp í smíðum

Silvio Berlusconi forsætisráðherra og félagar hans á Ítalíuþingi ætla að leggja fram frumvarp sem myndi losa hann úr snöru réttarkerfisins vegna spillingarmála sem hann er ákærður fyrir.

Seinkun og minna magn

Afhendingu bóluefnis gegn svínainflúensu hingað til lands hefur seinkað í þessari viku og auk þess kemur minna magn en gert hafði verið ráð fyrir, að því er fram kemur á heimasíðu landlæknisembættisins.

Lögmenn kanna leiðir til sátta

Lögmenn taka sér þrjár vikur til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir sáttum í fimm af sex skuldamálum sem gamli Landsbankinn hefur höfðað á hendur eignarhaldsfélaginu Imoni. Málflutningur vegna frávísunarkröfu sjötta og stærsta málsins fer fram um miðjan janúar.

Vill takmarka vöxt bankanna

Aðgerðir ríkisstjórna víða um heim til bjargar fjármálageiranum kunna að leiða af sér fákeppni og markaðsmisnotkun á bankamarkaði. Svo mælir Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands.

Ríkið selji kvótann á 120 krónur kílóið

Ríkið mun selja viðbótar­kvóta á skötusel á 120 krónur hvert kíló og afla sér þannig 240 milljóna króna tekna næstu tvö ár ef frumvarp sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra lagði fyrir Alþingi í gær verður að lögum. „Þetta er mjög sérstakt,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Þarna er bara verið að fara fyrningarleiðina með eina fisktegund.“

Lögreglan noti ekki rafbyssur

Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingunni hvatti í gær dómsmálaráðherra til að koma í veg fyrir að lögregla beri rafbyssur. Ríkislögreglustjóri vill að sérsveitarmenn beri slík vopn en endanleg ákvörðun þar um hefur ekki verið tekin.

Hart deilt enn á ný um fóstureyðingar

Deilur um fóstureyðingar eru orðnar háværar enn á ný í Bandaríkjunum eftir að fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti að framlengja bann við því að ríkið taki þátt í að greiða kostnað við fóstureyðingar.

Veiða síld í kapp við sýkilinn

Síldarkvóti, sem sjávarútvegsráðherra gaf út í dag á sýktu síldina, gæti skilað allt að fjögurra milljarða króna gjaldeyristekjum. Vinnslustöðar telja síldina hæfa til frystingar ef flotanum tekst að veiða hana nógu fljótt áður en sýkingin breiðist út í holdið.

Ríkið byrjar að selja kvóta - sáttarrof segir LíÚ

Ríkið ætlar að selja viðbótarkvóta í skötusel til ágóða fyrir ríkissjóð, en ekki að úthluta til þeirra sem hafa aflareynslu, samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra lagði fram á Alþingi í dag. Sáttarrof, segir talsmaður útvegsmanna.

Súludansmeyjar yfirheyrðar vegna mansalsmáls

Lögreglan á Suðurnesjum hefur yfirheyrt erlendar dansmeyjar af súlustöðum hér á landi í tengslum við mansalsmálið sem kom upp um miðjan október. Málið er umfangsmikið og hafa fimm Litháar og einn íslendingur setið í gæsluvarðhaldi sem rennur út á morgun.

Fullur vildi lengri opnunartíma

Á miðvikudaginn var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Akranesi vegna karlmanns sem var ölvaður og mjög æstur fyrir utan Vínbúðina rétt eftir lokun. Var hann mjög reiður starfsfólki Vínbúðarinnar en hann taldi að starfsmenn hefðu lokað of snemma. Samkvæmt lögreglunni liggja ekki fyrir upplýsingar um hvort sé réttara, klukka Vínbúðarinnar eða úr karlmannsins.

Skattamál komin á dagskrá Alþingis

Á fundi forseta Alþingis með þingflokksformönnum, sem er nýlokið, var ákveðið að efna til umræðu utan dagskrár næstkomandi föstudag, 13. nóvember, um skattamál, að viðstöddum fjármálaráðherra.

Breiðavíkursamtökin fordæma forsjársviptingu

Breiðavíkursamtökin fordæma Barnavernd Reykjavíkur vegna málsins þar sem Helga Elísdóttir hefur verið svipt umsjá annars dóttursinar síns, án undangengins dómsúrskurðar, og ætlar að senda í fóstur út á land. Þetta kemur fram í ályktun samtakanna sem þau sendu fjölmiðlum.

Segist hafa fengið gúmmítékka frá Sun Life

Kennarinn og tónlistarmaðurinn Kári Friðriksson segist hafa fengið gúmmítékka frá séreignalífeyrissparnaðinum Sun Life eftir að hann var ofrukkaður af fyrirtækinu. Sjálfur tók hann út sparnaðinn sinn í apríl-maí á síðasta ári en átta mánuðum síðar fór Sun Life að taka aftur greiðslur út af greiðslukortinu hans.

Hafnfirskir pörupiltar stálu bensíni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip tvo pilta um tvítugt glóðvolga í Hafnarfirði um miðnætti í gær þar sem þeir voru að stela bensíni af bíl.

Ekið á litla stúlku

Ekið var á 10 ára stúlku í miðborginni í gærmorgun. Betur fór þó en á horfðist því hún slapp með minniháttar áverka.

Fyrsti fundur samninganefndar ESB á morgun

Fyrsti fundur samninganefndar Íslands í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB verður haldinn á morgun, miðvikudag klukkan tvö í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.

Sjálfstæðismenn yfirgáfu þingsal og fengu þá orðið

Upphlaup varð á Alþingi fyrir stuttu þar sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, leyfði ekki Sjálfstæðismönnum sem báðu um orðið, að ræða fundarstjórn forsetans undir liðnum Dagskrá þingsins.

Sex stútar stöðvaðir

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 16-26 ára og tvær konur, 20 og 26 ára.

Sautján ára dæmd fyrir þjófnað

Sautján ára stúlka var dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir meðal annars að stela tvívegis hamborgarhrygg auk gallabuxna og snyrtivara. Þá var hún einnig svipt ökuréttindum í ár eftir að hún ók undir áhrifum fíkniefna í apríl á síðasta ári. Þjófnaðurinn átti sér stað frá júlí á síðasta ári og fram eftir árinu.

Annasamt í Vestmannaeyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið meðal annars við að aðstoða einstaklinga og að koma fólki til síns heima sökum ölvunarástands þess í tengslum við skemmtanahald helgarinnar.

Skattamálin ekki komin á hreint

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekki enn liggja fyrir hvort ríkisstjórnin leggi til að farið verði í fjölþrepa tekjuskattskerfi, til að afla ríkissjóði rúmlega fimmtíu milljarða sem þurfi til að vinna á halla á fjárlögum.

Piparkökulög sett á Frístundaheimili

Nemendur 3.bekkjar á Frístundaheimilinu Hlíðaskjól hafa sett piparkökulög sem samþykkt voru með fjórtán atkvæðum gegn þremur. Piparkökulögin kveða á um hvernig staðið skuli að piparkökubakstri á Íslandi.

Áfram leyft að leysa út viðbótarsparnað

Ríkisstjórnin áformar að heimila fólki að leysa út eina milljón af viðbótarlífeyrissparnaði sínum á næsta ári, eins og leyft var á þessu ári, til að auka eftirspurn í hagkerfinu.

Kampavínsmálið: Mál eins manns breytir engu um styrki til KSÍ

Forsvarsmaður eins stærsta styrktaraðila KSÍ segir að mál eins manns breyti ekki afstöðu fyrirtækisins til sambandsins. Styrktarsamningurinn sé fyrir íslensk knattspyrnu, íslensk ungmenni og íslensku landsliðin. Menntamálaráðherra telur þetta mál ekki vera íþróttahreyfingunni til framdráttar.

Vilja upplýsingar um 24 milljarða leynilán til Fons

„Ég vil fá upplýsingar um 24 milljarða króna útlán Glitnis til Fons sem var án veða,“ segir Vilhjálmur Bjarnason sem hefur stefnt Glitni og þrotabúi Fons en málflutningur fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Stakk kærastann í munninn

Sextán ára gömul stúlka er í gæsluvarðhaldi í bænum Fredericia í Danmörku grunuð um að hafa reynt að ráða kærasta sínum bana. Stúlkan lenti í miklu rifrildi við kærasta sinn sem er 34 ára gamall og lauk átökunum með því að stúlkan rak hníf upp í munn mannsins. Hann var fluttur á sjúkrahús í skyndi en mun vera úr lífshættu. Stúlkan verður yfirheyrð síðar í dag en hún hefur samkvæmt dönskum miðlum komið áður við sögu lögreglu.

Ók dráttarvél á lögreglubíl

Lögregluþjónar áttu fótum fjör að launa þegar dráttarvél var ekið á fullri ferð á lögreglubíl þeirra þar sem þeir höfðu stillt honum upp sem vegartálma á vegi í Sønderjylland.

Kóresk skip skiptust á skotum

Suðurkóreskt herskip skaut á skip frá Norður-Kóreu sem siglt hafði inn fyrir landhelgislínu Suður-Kóreu við vesturströnd Kóreuskagans í morgun.

Teknir með þýfi í Vatnagörðum

Lögregla stöðvaði mann í Vatnagörðum í gærkvöldi sem grunaður var um fíkniefnakstur. Tveir menn voru í bílnum og þegar betur var að gáð kom í ljós að þeir voru með þýfi meðferðis.

Ný eftirlitslöggjöf þykir róttæk

Hvert einasta símtal, SMS-skilaboð, tölvupóstur og vefsíðuheimsókn í Bretlandi verður geymt í eitt ár þegar ný lög um rétt til rannsóknar taka gildi. Með lögunum munu 653 opinberir aðilar öðlast rétt til að fletta upp í þeim mikla gagnagrunni sem við þetta verður til og það án heimildar dómara.

Vatn flæddi um kjallara

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kallað út í gærkvöldi og í nótt vegna vatnsleka. Holræsi stíflaðist í Lálandi í Fossvogi sem varð þess valdandi að vatn flæddi inn í kjallara einbýlishúss.

Skorar á forseta ASÍ að hætta

„Hér með lýsi ég yfir vantrausti á Gylfa Arnbjörnsson og skora á hann að segja af sér án tafar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í Verslunarmanna­félagi Reykjavíkur, á bloggi sínu um aðkomu forseta Alþýðusambands Íslands að kjaraviðræðum.

Stjórnvöld skoða að hækka persónuafslátt

Stjórnvöld ræða nú um að hækka persónuafslátt í samræmi við vísitölu neysluverðs, líkt og kveðið er á um í lögum. Hann gæti þó orðið mishár eftir tekjum.

Gloppótt frásögn af árásinni

Bjarki Freyr Sigurgeirsson hefur játað að hafa barið Braga Friðþjófsson í hel í í Hafnarfirði 17. ágúst síðastliðinn. Árásin var gerð í ölæði og undir áhrifum sjóveikitaflna. Bjarki man óljóst eftir atburðum. Sérfræðingur lögreglu í blóðferlarannsóknum ra

Sjá næstu 50 fréttir