Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ömurleg umgengni útrásavíkings á Þingvöllum Eitt brýnasta verkefni Þingvallanefndar í friðlandi þjóðgarðsins, er að taka á ömurlegri umgengni við hálfkarað sumarhús Ágústs Guðmundssonar, Bakkavararbróður, segir formaður nefndarinnar. Ruslið verður ekki fjarlægt í vetur. 5.11.2009 19:28
Dómsgerð nauðgarans skilar sér á morgun Héraðsdómur Reykjavíkur ætlar í fyrramálið að senda gögn vegna nauðgunarmáls til ríkissaksóknara. Skortur á þeim varð til þess að dæmdum nauðgara og hrotta var sleppt úr varðhaldi í gær. Konan sem varð fyrir árás mannsins lifir í ótta um að rekast á hann á götu. 5.11.2009 18:46
Líf flutti tvo á spítala Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 18:58 beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs bílslyss í Langadal í Húnavatnssýslu samkvæmt tilkynningu. 5.11.2009 21:45
12 látnir - 31 særðir eftir skotárás í Bandaríkjunum 12 einstaklingar eru látnir og 31 er slasaður eftir skotárásirnar sem átti sér stað í Fort Hood klukkan 13:30 að staðartíma. Einn árásarmannanna hefur verið skotinn til bana og búið er að handtaka tvo aðra menn. 5.11.2009 21:23
Sigrún Elsa: Ég er ekki að misskilja neitt „Það er einfaldlega ekki rétt sem stjórnarformaðurinn heldur fram að rekja megi hluta kostnaðaraukans vegna tafa á álveri í Helguvík til aðgerða ríkistjórnarinnar,“ segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, en stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrr í dag að Sigrún Elsa væri að misskilja. 5.11.2009 19:46
Laxveiðiferðir heita ráðgjafaþjónusta á bankamáli Laxveiðiferðir bankamanna virðast síður en svo liðnar undir lok. Fullyrt er að sá háttur sé hafður á að reikningar fyrir veiðferðir séu skráðir sem sérfræðiráðgjöf í bókhaldi ríkisbankanna. 5.11.2009 18:50
Könnun: ESB yrði kolfellt í kosningum Íslendingar myndu kolfella tillögu um inngöngu að Evrópusambandinu yrði kosið um það nú. Innan við þriðjungur þjóðarinnar er hlynntur aðild. 5.11.2009 18:41
Stjórnarformaður OR: Sigrún er að misskilja Guðlaugur Sverrisson formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur telur að ákveðins misskilnings gæti hjá Sigrúnu Elsu Smáradóttur fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. 5.11.2009 17:23
Borginni gert að greiða milljónir í bætur Reykjavíkurborg þarf að greiða karlmanni rúmlega 55 milljónir auk dráttarvaxta í bætur eftir að framkvæmdir við söluskála í Reykjavík voru stöðvaðar eftir að ágreiningur um framkvæmdina kom upp við íbúa í ´nágrenninu. Áður hafði maðurinn fengið byggingarleyfi hjá borginni. 5.11.2009 17:02
Kengúrur kvelja Ástrala Það hefur ekki rignt í vesturhluta Queensland í marga mánuði og gróður er allur skrælnaður. Banhungruð kengúrugreyin flykkjast því inn í bæi á nóttunni þar sem þær nærast í görðum og á umferðareyjum og hvar sem er stingandi strá að finna. 5.11.2009 16:44
Nóróveirusýkingin í rénun Nóróveirusýkingin sem kom upp í Nýja Kaupþing banka og tengdum félögum í Reykjavík í liðinni viku er í rénun. Alls er talið að um 250 manns hafi veikst af veirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóttvarnalækni, Matvælaeftirliti - Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Matvælastofnun. 5.11.2009 16:42
Abbas vill hætta -mikið áfall Mahmoud Abbas forseti palestínumanna mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningum sem haldnar verða í janúar næstkomandi, að sögn aðstoðarmanna. 5.11.2009 15:46
Íslandsstofu ætlað að efla ímynd og orðspor Íslands Markmið nýrrar stofnunnar, Íslandstofu, sem sett verður á laggirnar á grunni Útflutningsráðs Íslands er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Stjórnarfrumvarpi um hina nýju stofnun var dreift á Alþingi í dag. 5.11.2009 15:44
Vilja svarta kassa í bíla Evrópusambandið íhugar að setja reglur um að svokallaðir svartir kassar skuli settir í bíla. Þeir myndu gegna svipuðu hlutverki og flugritar í flugvélum en þaðan er nafnið svarti kassinn komið. 5.11.2009 15:30
Linda skildi marga eftir fjárhagslega og tilfinningalega gjaldþrota Linda Björk Magnúsdóttir, sem situr í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að vera ólöglegur innflytjandi þar í landi er fyrrverandi forstöðumaður í sértrúarsöfnuði. Söfnuðurinn hét Frelsið, kristileg miðstöð, og var starfræktur á árunum 1995 – 2001. 5.11.2009 15:26
Rússneskt hlerunardufl rak á land Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var í gær kölluð út til að kanna dufl sem barst á land í Skarðfjöru í grennd við Kirkjubæjarklaustur. Við nánari athugun reyndist um að ræða rússneskt hlerunardufl en einnig fannst í fjörunni rússnesk siglingabauja ásamt hita- og seltumælir úr kafbát sem notaður er til að mæla seltu- og hljóðhraða í sjónum. Fram kemur ávef Landhelgisgæslunnar að sjófarendum hafi ekki stafað hætta af hlutunum. Hvorki er vitað um aldur hlerunarduflsins né mælisins. 5.11.2009 15:17
Fækkar á Landspítalanum vegna svínaflensu Í dag liggja 29 sjúklingar á Landspítala með svínaflensu eða H1N1 inflúensuna. Þar af átta sem haldið er á gjörgæslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans. Síðasta sólarhringinn hafa sex sjúklingar verið útskrifaðir af Landspítalanum en á móti kemur hafa tveir hafa verið lagðir inn. 5.11.2009 14:57
Fjöldamorðingi fær ekki lausn gegn tryggingu Bandaríski fjöldamorðinginn Anthony Sowell fær ekki að ganga laus gegn tryggingu þartil réttarhöldin yfir honum hefjast. 5.11.2009 14:45
Eitt land ver meira fé til menntamála en Ísland Einungis eitt land í Evrópu ver meiru fé en Ísland til menntamála miðað við verga landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ritinu Key Data on Education in Europe 2009 sem er nýkomið út. 5.11.2009 14:40
Var Lenín framsóknarmaður? Iðnaðarráðherra segir að það sé skýr vilji ríkisstjórnarinnar að ráðast í stófellda í atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur ekki mikið fyrir þau orð og telur brýnt að nýir flokkar taki sæti í ríkisstjórn til að auka vægi atvinnusköpunar á landinu. Þetta var meðal þess sem kom fram í umræðu utan dagskrár á þingfundi í dag um álversuppbyggingu á Bakka við Húsavík. Í umræðunum velti þingmaður VG upp þeirri spurningu hvort Vladimir Lenín hafi verið framsóknarmaður. 5.11.2009 14:31
Dómsmálaráðherra vill aukafjárveitingu vegna hrunsins Dómsmálaráðherra fer fram á 106 milljóna króna aukafjárveitingu til dómstóla til að mæta auknu álagi vegna bankahrunsins. Ráðherra kynnti málið á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag. 5.11.2009 14:12
Vill búa í Boeing breiðþotu Norskur flugstjóri hefur sótt um lóð fyrir fjögurra hreyfla Boeing 747 breiðþotu í smábænum Farsund á suðurströnd Noregs. 5.11.2009 14:04
Slökkvilið kallað að Hofsvallagötu Slökkviliðið var kallað að húsi við Hofsvallagötu í Reykjavík um hálftvö í dag þegar kveikt var í blaðabunka þar inni. Húsráðandi taldi sig ekki geta ráðið við eldinn einsamall og kallaði því á aðstoð slökkviliðsins. Engu að síður tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en slökkviliðið kom á staðinn. 5.11.2009 13:50
Vatn komið á í Stykkishólmi Vatn rennur nú að nýju í vatnsveitu Stykkishólms. Í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur kemur fram að mestur hluti bæjarins hafi vatn, en búast má við truflunum fram eftir degi. Vatnið fór af í gær þegar unnið var að viðgerð á aðveituæðinni frá vatnsbóli veitunnar í Svelgsárhrauni, um 13 kílómetrum frá bænum. Mun lengri tíma tók að ná upp þrýstingi en ætlað hafði verið og hefur verið unnið að viðgerð í alla nótt. 5.11.2009 12:57
Furðar sig á yfirlýsingum Guðlaugs Ár er síðan Orkuveitan samdi um eins milljarðs króna skaðabætur við Mitzubishi vegna tafa á túrbínum og það komi einhverjum línulögnum ekki nokkrum sköpuðum hlut við Sigrún Elsa Smáradóttir, segir fulltrúi Samfylkingarinnar, í stjórn Orkuveitunnar sem furðar sig á yfirlýsingum stjórnarformanns Orkuveitunnar. Hún segir kostnaðarauka Orkuveitunnar frekar skýrast af því að framkvæmdir hafi verið fjármagnaðar á yfirdrætti undanfarið ár. 5.11.2009 12:42
Hallinn eykur þrýsting á aukinn niðurskurð Hallinn á ríkissjóði á þessu ári verður 30 milljörðum meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir þrátt fyrir að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða í sumar sem minnka áttu hallann um 20 milljarða. Þetta eykur þrýsting á aukinn sparnað, niðurskurð og skattheimtu á næsta ári. 5.11.2009 12:29
Pylsuvagn datt af króki bifreiðar Pylsuvagn datt af króki bifreiðar sem átti að flytja hann á milli staða um hádegið í dag. Vagninn tafði umferð og því þurfti lögreglan að hafa afskipti af málinu eins og sést á meðfylgjandi mynd. 5.11.2009 12:19
Magnús Þór: Hefur áhyggjur af dóttur sinni Magnús Þór Sigmundsson, tónlistarmaður, er faðir Lindu Bjarkar, konunnar sem nú er í haldi lögreglu í Bandaríkjunum. Linda Björk var stöðvuð á landamærum Bandaríkjanna og Kanada en hún hafði ekki tilskylda pappíra til þess að komast inn í landið. Áður en hún var leidd fyrir dómara tókst henni að sleppa úr varðhaldi og upphófst mikil leit að henni. Hún var aftur handtekin í morgun og situr nú í fangelsi í Clinton sýslu í New York ríki. 5.11.2009 12:03
Sigmundur Davíð: Jóhanna veit ekki hvað felst í frumvarpinu Formaður Framsóknarflokksins sagði í umræðum á Alþingi í dag að forsætisráðherra hafi ekki hugmynd hvað felist í lagafrumvarpinu um Icesave samkomulagið. Forsætisráðherra vísaði þeim orðum á bug. Þá sagðist ráðherrann eiga von á því að svar myndi berast frá forsætisráðherrum Breta og Hollendinga vegna bréfs sem sent voru í lok ágúst. 5.11.2009 11:30
Búið að handtaka íslensku konuna í Bandaríkjunum Linda Björk Magnúsdóttir, konan sem lögreglan í Bandaríkjunum leitaði í nótt, náðist í morgun og er nú í haldi lögreglunnar. Konan slapp úr varðhaldi lögreglu á meðan hún beið þess að vera leidd fyrir dómara. 5.11.2009 11:16
Á batavegi eftir vinnuslys í Krónunni Konan sem slasaðist í vinnuslysi við kjötborð í Krónunni í gær er á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá Ólafi R. Þórhallssyni, verslunarstjóra hjá Krónunni í Lindarhverfi. 5.11.2009 11:10
Al Gore að verða kolefnis-milljarðamæringur Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna gæti orðið fyrsti græni milljarðamæringur heimsins. Hann hefur fjárfest vel í fyrirtækjum sem teljast græn og það er að skila sér margfallt aftur. 5.11.2009 11:00
Óvíst hvort persónuafsláttur hækki Óvíst er hvort að persónuafsláttur hækki um næstu áramót líkt og kveðið er á um í samningum. Til greina kemur að setja á legg margþrepa skattkerfi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á þingfundi í dag. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á málinu og sagði stöðugleikasáttmálanum haldið í öndunarvél. Eitt stærsta atriðið í honum væri hækkun persónuafsláttar og að hækkun hans skipti gríðarlega miklu máli fyrir láglaunafólk. 5.11.2009 10:57
Ræða meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar Kirkjuþing hefst laugardaginn 7. nóvember með helgistund klukkan níu í Grensáskirkju. 5.11.2009 10:33
Ræða álversuppbyggingu á Bakka Eftir hádegi fer fram umræða utan dagskrár um álversuppbyggingu á Bakka við Húsavík. Málshefjandi er Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, en til andsvara verður Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra. Umræðan hefst klukkan 13:30 og stendur í hálfa klukkustund. 5.11.2009 10:33
Bilaður ljósleiðari á Austurlandi Bilun hefur komið upp í ljósleiðara Mílu á Austurlandi, þar sem ljósleiðari hefur slitnað á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða. Ekki liggur fyrir hvað olli slitinu, en bilanagreining stendur yfir að því er fram kemur í tilkynningu frá Mílu. Viðgerðamenn eru lagðir af stað á staðinn til að skoða aðstæður og verða frekari upplýsingar gefnar þegar þær liggja fyrir. 5.11.2009 10:29
Talibanar í afgönsku lögreglunni Breskir hermenn sem hafa gegnt herþjónustu í Afganistan segja ófagrar sögur af afgönskum lögreglumönnum. 5.11.2009 10:27
Útlendingastofnun ekki að standa sig Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, heldur því fram að Útlendingastofnun sé ekki að beita þeim úrræðum sem hún hefur til að sporna gegn komu útlendra glæpamanna sem koma hingað gagngert til að fremja glæpi. Hann telur að þá eigi að senda umsvifalaust úr landi. Stefán var gestur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. 5.11.2009 10:08
Milljónir skoða myndband af Madeleine Fjórar milljónir manna skoða dag hvern einnar mínútu myndband af bresku telpunni Madeleine McCann, sem sett var á netið fyrr í vikunni. 5.11.2009 09:36
Ákvörðun Seðlabankans mjög jákvæð Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vera mjög jákvæða. Stýrivextir lækka í dag um eitt prósentustig og verða 11%. 5.11.2009 09:13
Jesú-kynskiptingur vekur bræði í Glasgow Leikrit sem nú er sýnt í Glasgow og sýnir Jesú sem kynskipting hefur vakið reiðiöldu. 5.11.2009 08:43
Magn geimrusls stefnir í óefni Vísindamenn hafa töluverðar áhyggjur af auknu magni alls konar rusls í geimnum og áhrifum þess á geimferðir framtíðarinnar. 5.11.2009 07:18
Hitabeltisstormurinn Ída geisar í Nicaragua Mikil rigning er nú í Nicaragua í Mið-Ameríku vegna hitabeltisstormsins Ídu sem þar geisar. Viðvörun hefur verið gefin út vegna hættu á aurskriðum og talin er nokkur hætta á að Ída þróist yfir í fellibyl á næstu 36 klukkustundum. 5.11.2009 07:16
SÞ flytja 600 manns tímabundið frá Afganistan Sameinuðu þjóðirnar hyggjast flytja hluta af starfsmönnum sínum í Afganistan, 600 í allt, frá landinu á meðan gerðar eru ráðstafanir til að auka öryggi á dvalarstöðum þeirra. 5.11.2009 07:13
Sviðsetti mannrán í kúgunarskyni Auðug húsmóðir í Flórída hefur verið ákærð fyrir að sviðsetja mannrán með það fyrir augum að kúga fé út úr vellauðugum eiginmanni sínum. 5.11.2009 07:11