Innlent

Rússneskt hlerunardufl rak á land

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Hlerunarduflið barst á land í Skarðfjöru í grennd við Kirkjubæjarklaustur. Mynd/Landhelgisgæslan
Hlerunarduflið barst á land í Skarðfjöru í grennd við Kirkjubæjarklaustur. Mynd/Landhelgisgæslan
Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var í gær kölluð út til að kanna dufl sem barst á land í Skarðfjöru í grennd við Kirkjubæjarklaustur. Við nánari athugun reyndist um að ræða rússneskt hlerunardufl en einnig fannst í fjörunni rússnesk siglingabauja ásamt hita- og seltumælir úr kafbát sem notaður er til að mæla seltu- og hljóðhraða í sjónum. Fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar að sjófarendum hafi ekki stafað hætta af hlutunum. Hvorki er vitað um aldur hlerunarduflsins né mælisins.

Sprengjudeildin var einnig kölluð út fyrr í vikunni þegar torkennilegur hlutur fannst á Reykjanesi. Við nánari athugun reyndist hluturinn vera óvirk sprengja frá seinni heimstyrjöldinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×