Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gatnamót lokuð í nótt Í nótt verða gatnamót Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar lokuð, nema að því leyti að akreinar fyrir hægri beygju verða opnar. Áætlað er að gatnamótin verði opnuð að nýju fyrir klukkan sex í fyrramálið. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi lokun kann að valda. 4.11.2009 13:31
Komu saman við Vogaafleggjara Undirbúningshópur Keflavíkurgöngunnar 2009 kom saman við Vogaafleggjara í hádeginu ásamt bæjarstjórum og oddvitum í bæjarmálunum af svæðinu. Undirbúningshópurinn saman stendur af hópi Suðurnesjamanna með ólíkar stjórnmálaskoðanir. Ætlunin er að vekja athygli á atvinnumálum á Suðurnesjum. 4.11.2009 13:05
Vopnaflutningaskip hertekið Ísraelski flotinn hefur hertekið vopnaflutningaskip um 160 kílómetra undan ströndum landsins. Það var dregið til hafnar í Ísrael. 4.11.2009 12:36
Íslenskir bændur eru heilsuhraustastir allra Bændur eru heilbrigðastir Íslendinga andlega og líkamlega samkvæmt tveimur rannsóknum sem birtast í nýjasta hefti Læknablaðsins. 4.11.2009 12:24
Auðveldar ríkjum að segja sig úr ESB Auðveldara verður fyrir ríki að segja sig úr Evrópusambandinu eftir að Lissbon-sáttmálinn tekur gildi, en síðustu hindrun í vegi gildistökunnar var rutt burt í gær þegar Tékkar staðfestu sáttmálann. Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjóra verða til með sáttmálanum. 4.11.2009 12:15
Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerkin í ár Steindir gluggar Bessastaðakirkju prýða jólafrímerki Íslandspósts í ár. Bessastaðakirkja er með elstu steinbyggingum landsins en hún var vígð árið 1796. Um miðja síðustu öld var svo sett steint gler í glugga kirkjunnar í tilefni af sextugsafmæli Ásgeirs Ásgeirssonar þáverandi forseta. Alls eru gluggarnir átta en á þeim er trúarsaga Íslendinga rakin. Frímerkin koma út á morgun. 4.11.2009 12:10
Gylfi: AGS stýrir ekki Íslandi Efnahags- og viðskiptaráðherra segir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki fara með stjórn efnahagsmála á Íslandi, eins og margir þingmenn og fleiri hafa gefið í skyn. Sjóðurinn sé í samstarfi við Íslendinga að beiðni íslenskra stjórnvalda. 4.11.2009 12:07
Mansalsmál: Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm Litháum og einum Íslendingi síðar í dag, en þeir hafa setið í varðhaldi í tengslum við rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi, meðal annars mansali og tryggingarsvikum. 4.11.2009 12:00
Grafarvogsbúar funduðu um framtíðina Samgöngumál og íþróttir og útivist voru íbúum Grafarvogs efst í huga á opnu húsi í Foldarskóla í gær um framtíðarskipulag hverfisins. Þetta var þriðja opna húsið af 10 sem Skipulags- og byggingarsvið efnir til í hverfum borgarinnar í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. 4.11.2009 11:36
Festi hendi í hakkavél Sjúkralið og lögregla voru kölluð að Krónunni í Lindahverfi í Kópavogi um tuttugu mínútur í tíu í morgun þegar starfsmaður festi hendi í hakkavél. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni varð slysið í kjötborði í versluninni. Vinnueftirlitið rannsakar nú málið. Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um líðan starfsmannsins. 4.11.2009 11:32
Barnaníðingur krossfestur Dómstóll í Saudi-Arabíu hefur staðfest þann dóm yfir barnaníðingi þar í landi að hann skuli krossfestur. 4.11.2009 10:56
Fimm breskir hermenn drepnir í Afganistan Afganskur lögreglumaður skaut fimm breska hermenn til bana í Helmand-héraðinu í Afganistan síðdegis í gær og hefur breska varnarmálaráðuneytið hafið rannsókn á málinu. Þar með hafa 94 breskir hermenn fallið á þessu ári sem er það mesta á einu ári síðan í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum þremur áratugum. Alls hafa 229 breskir hermenn nú látist í Afganistan frá því stríðið þar hófst árið 2001. 4.11.2009 10:49
Lætur kanna sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur falið samráðshópi að kanna til hlítar hagkvæmni þess að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. 4.11.2009 10:03
Þrefalda sekt fyrir vændiskaup Frá og með deginum í dag hækkar sekt fyrir að kaupa vændi í Osló upp í 546 þúsund íslenskar krónur. Það er nærri þreföldun. 4.11.2009 10:03
Bergur ráðinn til þingflokks VG Bergur Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hann tekur við starfinu af Drífu Snædal sem hefur frá síðustu kosningum haldið utan um störf þingflokksins auk þess að vera framkvæmdastýra flokksins. Bergur hóf störf síðustu mánaðamót. 4.11.2009 09:36
Á fjórða tug sagt upp í hópuppsögnum Vinnumálastofnun bárust 2 hópuppsagnir í oktobermánuði, þar sem sagt var upp 34 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og er ástæðan verkefnaskortur. 4.11.2009 09:32
Sósíalistar innan VG efna til fundar með Ögmundi Umræðuhópur sósíalista innan VG efnir til opins umræðufundar um verkalýðs- og kjaramál og stöðuna á vinnumarkaði í kvöld. 4.11.2009 09:31
John Howard verður fórnarlamb skóníðinga John Howard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, hefur nú bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem lenda í því að verða fyrir skókasti. 4.11.2009 08:43
Lítill þrýstingur á kalda vatninu í Stykkishólmi Vegna vinnu við aðveituæð kaldavatnsins í Stykkishjólmi má búast við lágum þrýstingi á kalda vatniunu fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 4.11.2009 07:55
Repúblikanar hrósa sigri Bandaríski Repúblikanaflokkurinn fagnar því ákaft að hafa unnið tvo stórsigra í ríkisstjórakosningum. 4.11.2009 07:16
Vilja fresta aftöku Muhammads Lögmenn Johns Allen Muhammad, sem dæmdur var til dauða fyrir þátt sinn í leyniskyttumorðunum í Maryland, Virginíu og Washington haustið 2002, hafa beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta aftökunni, sem er á dagskrá 10. nóvember, á þeirri forsendu að hann eigi við geðræn vandamál að stríða og hafi auk þess fengið ófullnægjandi vörn við réttarhöldin. 4.11.2009 07:14
Dómari sá aumur á kynskiptingi Breskur kynskiptingur á sextugsaldri slapp við fangelsisdóm eftir að dómari sá aumur á honum vegna erfiðrar ævi. Thea Cox, sem þó var fædd sem Timothy, gekkst undir kynskiptaaðgerð fyrir 26 árum. 4.11.2009 07:12
Fjögur lík í viðbót hjá Cleveland-morðingja Lögregla í Cleveland í Ohio hefur fundið fjögur lík til viðbótar á heimili Anthony Sowell, dæmds nauðgara og grunaðs fjöldamorðingja, en lík sex kvenna fundust þar í síðustu viku. 4.11.2009 07:08
Þrjú innbrot í nótt Brotist var inn í Sjónvarpsmiðstöðina í Síðumúla um klukkan tvö í nótt. Þjófurinn braut rúðu til að komast inn og var hann horfinn á braut áður en lögreglu bar að garði. Ekki er ljóst hvort hann hafi stolið einhverju en lögregla handtók mann skömmu síðar grunaðan um verknaðinn. Hann er nú í haldi og bíður yfirheyrslu. 4.11.2009 06:55
Sjö prósent beiðna hefur verið hafnað Af þeim 318 beiðnum sem dómstólum hafa borist um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar hafa 215 verið samþykktar, 14 verið hafnað og 12 verið afturkallaðar. 77 eru óafgreiddar. 4.11.2009 06:00
Fyrirtæki vega þungt í erlendum skuldum Erlendar skuldir þjóðarbúsins eru hærri en áður hafði verið talið en þó ekki úr takti við það sem gerist í öðrum þróuðum ríkjum. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og birt var í gær. Skuldabyrðin sem bæst hefur við frá síðasta mati nemur 92 prósentum af áætlaðri þjóðarframleiðslu þessa árs, eða sem nemur 10,9 milljörðum dollara, eða um 125 milljörðum króna. 4.11.2009 06:00
Skjálfandafljót verði friðlýst Sex þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Skjálfandafljóts. 4.11.2009 06:00
Samráð við UNESCO um Valhallarreitinn Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mun koma að ákvörðun um framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð á Þingvöllum. 4.11.2009 06:00
Værum berskjaldaðri án Schengen Með aðgangi að alþjóðlegum gagnabönkum í krafti Schengen-aðildar geta yfirvöld nálgast margvíslegar upplýsingar sem gagnast þeim í baráttunni við erlenda glæpahringi. 4.11.2009 06:00
Lonely Planet setur Ísland í toppsætið Lonely Planet, umsvifamesti útgefandi ferðabóka í heiminum, setur Ísland í efsta sæti á lista yfir þá staði sem hagkvæmast er að ferðast til á næsta ári. Þetta kemur fram í nýjustu ferðabók útgefandans, Best in Travel 2010. 4.11.2009 06:00
Stakk mann með hnífi Nær sextugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega árás. Hann stakk annan mann með hnífi ofarlega í framanverðan brjóstkassa. Fórnarlambið hlaut þriggja sentimetra langan skurð nokkru neðan við vinstra viðbein. Atvikið átti sér stað á Akureyri í júní. 4.11.2009 06:00
Ýmsar upplýsingar komnar fram Gert er ráð fyrir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum krefjist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm Litháum og einum Íslendingi, að sögn Jóhannesar Jenssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Suðurnesjum. Mennirnir hafa verið í einangrun vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi, þar á meðal meintu mansali og tryggingasvikum. 4.11.2009 06:00
Óvissu um Lissabonsáttmála ESB lokið Vaclav Klaus, forseti Tékklands, undirritaði í gær Lissabonsáttmála Evrópusambandsins, strax eftir að stjórnlagadómstóll Tékklands hafði komist að þeirri niðurstöðu að sáttmálinn bryti ekki í bága við stjórnarskrá landsins. Þar með hafa öll aðildarríki sambandsins staðfest sáttmálann og ekkert er því til fyrirstöðu lengur að hann taki gildi. 4.11.2009 05:45
Heilbrigðisþjónusta tryggð Þolendur mansals hafa ótvíræðan rétt til heilbrigðisþjónustu á Íslandi, eftir reglugerðarbreytingu Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra. 4.11.2009 05:30
Fjörutíu keppa í píanóleik Fjörutíu nemendur keppa í píanóleik í dag og á morgun í Salnum í Kópavogi. Það er Íslandsdeild Evrópusambands píanókennara, Epta, sem stendur fyrir keppninni. Keppt er í þremur flokkum, 1. flokkur eru nemendur fjórtán ára og yngri, 2. flokkur, eru nemendur átján ára og yngri og sá þriðji er flokkur nemenda yngri en 25 ára. 4.11.2009 05:00
Forsetinn heitir umbótum Hamid Karzai, forseti Afganistans, lofar umbótum á nýju kjörtímabili, en sagði þó ekkert um það í hverju þær umbætur yrðu fólgnar. 4.11.2009 04:30
Enn gangur í svínaflensunni Talsverður gangur er enn í svínaflensunni hér á landi að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Inniliggjandi á Landspítala af völdum hennar voru 35 manns fyrri hluta dags í gær. Þar af voru níu á gjörgæslu. Átta manns voru útskrifaðir og fjórir nýir komu inn. 4.11.2009 04:00
Engar skuldir afskrifaðar enn Engar skuldir hafa verið afskrifaðar hjá 1998 ehf. móðurfélagi Haga sem á Bónus. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi. Þar segir jafnframt að eigendur 1998, en félagið er að stærstum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, njóti engrar sérmeðferðar hjá bankanum. Þá hafi engin ákvörðun verið tekin um framtíðareignarhald félagsins. 4.11.2009 03:00
Tegundum í hættu fjölgar Í skógum Panama fannst fyrir tveimur árum sérkennileg frosktegund sem getur flogið. Þessir froskar eru í útrýmingarhættu, rétt eins og þúsundir annarra dýra- og jurtategunda jarðarinnar. 4.11.2009 02:45
Krakkar fagna nýrri skólalóð Ný skólalóð við Langholtsskóla í Reykjavík var tekin formlega í notkun í gær. Við sama tækifæri fékk skólinn alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann í þriðja sinn fyrir metnaðarfullt umhverfisstarf og að auki fengu nemendur grenndarskóg þar sem þeir geta stundað nám og ræktun. 4.11.2009 02:30
Ekki útséð með síldveiðar í ár Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar eru enn að fara yfir gögn til þess að geta metið stofnstærð og sýkingu í íslensku sumargotssíldinni. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafró, segist ekki geta svarað því hvenær þeirri vinnu ljúki en eftir það verður ljóst hvort og þá hversu mikið stofnunin mun leggja til að verði veitt. 4.11.2009 02:00
Stjórnvöld vara við mótmælum Byltingarverðir í Íran hafa varað mótmælahópa úr liði stjórnarandstöðunnar þar í landi, við að efna til mótmæla í tilefni af því að á morgun verða liðin þrjátíu ár frá því er sendiráð Bandaríkjanna í Íran var hertekið. 4.11.2009 01:15
Borgar tíund til kaupa á orgeli Halda á sérstaka orgelviku í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar frá og með næsta mánudegi að því er segir á fréttavefnum strandir.is. 4.11.2009 01:00
Kvartar undan mannréttabroti Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtogi Bosníu-Serba, mætti loks í gær til réttarhalda við stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag, þar sem hann hyggst sjálfur sjá um málsvörn sína. 4.11.2009 00:45
Sekt vegna krossa í skólum Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að krossar í ítölskum skólastofum stangist á við trúfrelsi og frelsi til menntunar. 4.11.2009 00:15