Fleiri fréttir

Ráðherra segir OR ekki bera meiri lán

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir fráleitt að láta sem úrskurður hennar um Suðvesturlínu standi álveri í Helguvík fyrir þrifum. Mun stærri ljón séu í veginum fyrir álversframkvæmdum en sá úrskurður sem þýði fárra vikna töf á línunni. Til að mynda sé spurningum ósvarað um orkuöflun.

Kona í dásvefni eignast barn

Fertug kona í Þýskalandi hefur fætt heilbrigt barn þrátt fyrir að hafa verið í dásvefni síðustu 22 vikur meðgöngunnar. Starfsfólk á háskólasjúkrahúsinu í Erlangen sagði aðstandendur konunnar hafa óskað eftir því að barnið yrði látið fæðast þrátt fyrir erfitt ástand móðurinnar, sem fékk hjartaáfall og hefur verið í dái síðan.

Fyrstu myndirnar sýndu lítið

Bandarískt geimfar brotlenti á suðurpól tunglsins í gær. Harkaleg lendingin var vel skipulögð og taldist vel heppnuð. Um borð í geimfarinu eru mælitæki sem ætlað er að finna ummerki vatns á tunglinu.

Svört spá um áhrif tafa á áætlun AGS

Töf á endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) mun draga úr tiltrú á efnahagsstefnu stjórnvalda heima og erlendis, seinka afnámi gjaldeyrishafta, auka líkur á lægra gengi en hærri verðbólgu, draga úr svigrúmi til vaxtalækkunar og auka líkur á vaxtahækkun. Lánshæfismat ríkissjóðs mun lækka í flokki ótryggra fjárfestinga, sem mun hafa slæm áhrif á endurfjármögnun skuldbindinga innlendra aðila.

Genapróf verði fyrir alla

Innan fárra ára munu genapróf kosta milli eitt og tíu prósent af því sem þau kosta í dag, enda verða verkfærin sífellt ódýrari, sem þarf til að gera þau. Svo segir Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar. „Ég er sannfærður um að nær allir Vesturlandabúar muni fara í slík próf innan nokkurra ára,“ sagði hann í gær á alþjóðlegri líftækniráðstefnu IJP-samtakanna í Heidelberg í Þýskalandi.

Sprotafrumvarp loksins fyrir Alþingi

Fjármálaráðherra kynnti í gær stjórnarfrumvarp fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki. Gangi það í gegn geta fyrirtækin fengið fimmtung rannsókna- og þróunarkostnaðar endurgreiddan og fjárfestar fengið ívilnanir vegna kaupa á hlutafé.

Vegagerðir: Færð á vegum

Þverárhlíðarvegur 522 er lokaður við bæinn Norðtungu vegna raflínu sem liggur á veginum.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki gert ráð fyrir að hægt verði að opna veginn aftur fyrr en á morgun.

Hátt í 80 útköll í dag - engin stórtjón

Lögregla og björgunarsveitir hafa þurft að sinna hátt í 80 útköllum í dag vegna óveðursins. Það er óheyrilega mikið eins og varðstjóri lögreglunnar orðaði það.

Viðhöfn í Viðey frestað

Búið er að fresta auglýstri dagskrá í Viðey vegna tendrun Friðarsúlunnar í kvöld samkvæmt tilkynningu. Þess í stað er stefnt á að halda viðhöfnin á morgun, 10. október.

Gömul refabú fjúka yfir Grundarhverfi

Skæðardrífa af þakjárni gekk yfir Brautarholt á Kjalarnesi, Grundarhverfi, fyrir skömmu og kom hún frá gömlu refahúsunum í Hjassa sem er utarlega á Kjalarnesi. Björgunarsveitamenn reyna nú að hemja fokið. Auk þeirra eru tvær dráttarvélar á leið á staðinn til aðstoðar.

Komin af gjörgæslu

Konan sem varð fyrir alvarlegri árás í Hörðalandi í Reykjavík í vikunni hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni.

Ástandið að batna í Zimbabwe

Morgan Tswangirai forsætisráðherra Zimbabwes segir að ástandið í mannréttindamálum hafi skánað mikið síðan flokkur hans myndaði þjóðstjórn með Robert Mugabe forseta.

Háspennulína laskaðist í Borgarfirði

132 kílóvolta háspennulína sem liggur um byggðir Borgarfjarðar er löskuð á móts við bæinn Norðtungu í Þverárhlíð í Borgarfirði. Leiðarar línunnar liggja yfir veg nr. T522 en vegurinn er lokaður. Aftakaveður er á staðnum. Enginn straumur er á línunni og er viðgerðarflokkur frá Landsneti á leið á staðinn að því er segir í tilkynningu.

Undrun yfir friðarverðlaunum Obamas

Áttatíu og tveggja ára gömul Bandarísk kona sagði þegar hún heyrði að Barack Obama hefði hlotið friðarverðlaun Nóbels; -Það er dásamlegt. Ég vildi bara að ég vissi af hverju.

Dæmdir fyrir kannabisræktun

Þrír menn voru dæmdir fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Tveir mannanna voru með kannabisplöntur í fórum sínum og hjá einum fannst haglabyssa undir rúmi. Tveir mannanna hlutu skilorðsbundinn dóm en sá þriðji var dæmdur í sekt.

Fráleitt að ráðherra hafi afþakkað milljarða

Fullyrðingar um að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afþakki 15 milljarða króna loftslagskvóta eru fráleitar og algerlega úr lausu lofti gripnar að sögn umverfisráðuneytisins. Vigdís Hauksdóttir þingkona Framsóknarflokksins hélt því fram á Alþingi á dögunum að með því að óska ekki eftir undanþágu frá Kyoto bókuninni svokölluðu hafi Svandís afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar einum fimmtán milljörðum króna.

Engin undanþága í boði fyrir Ísland

Frá og með árinu 2013 mun losun gróðurhúsalofttegunda vegna álframleiðslu falla undir tilskipun ESB um viðskipti með gróðurhúsalofttegundir. Sérstök undanþága fyrir Ísland verður því ekki í boði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn.

Vitlaust veður víða

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í 30 útköll það sem af er degi og fjölgar þeim ört. Útköllin eru víða um höfuðborgarsvæðið og á Kjalarnesi þar sem meðal annars. þak er að fjúka af kjúklingabúinu Móum. Fjölmennt lið var sent á staðinn en í ljós hefur komið að það dugar ekki til. Verið er að kalla út stórvirkar vinnuvélar til að fergja þakið.

Óljóst með fasteignalánin hjá Kaupþingi

Fólk með erlend fasteignalán hjá Landsbankanum getur fengið lækkun á höfuðstól við skuldbreytingu í óverðtryggð krónulán, líkt og hjá Íslandsbanka. Enn er óljóst hvort Kaupþing býður viðskiptavinum sínum upp á að leiðréttingu fasteignalána.

Vilja ekki olíuskip á hafíssvæðum

Landhelgisgæslan hefur óskað eftir því að olíuskip sem sigla frá Rússlandi til Bandaríkjanna, sigli ekki milli Íslands og Grænlands, vegna hafíss. Drekkhlaðið olíuskip fór vestur fyrir landið í vitlausu veðri á dögunum, en lét ekki vita um ferðir sínar.

Malarnáma formanns VG notuð við virkjanaframkvæmdir

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna er einn af eigendum jarðarinnar Miðhúsa í Gnúpverjahreppi. Þar fyrirhugar Vegagerðin námu í tengslum við virkjanaframkvæmdir í neðri Þjórsá. Vegagerðinni er heimilt að taka 12 þúsund rúmmetra í Miðhúsum en það telst lítil náma. Þar af leiðandi er framkvæmdin óháð umhverfismati.

Tóm steypa að Obama fái Nóbelinn

Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, er ekki hrifinn af þeirri ákvörðun að sæma Barack Obama friðarverðlaunum Nóbels en það var gert heyrinkunnugt í morgun. „Þetta er bara tóm steypa," segir Stefán.

Vilja fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 61

Allir þingmenn Hreyfingarinnar og Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsóknarflokksins hafa sameiginlega lagt fram frumvarp sem kveður á um að sveitastjórnarfulltrúum verði fjölgað umtalsvert. Verði frumvarpið að lögum mun borgarfulltrúum í Reykjavík fjölga úr 15 í 61.

Vara við SMS-lánum á Íslandi

Kredia, sem skilgreinir sig sem fyrirtæki á sviði smálána, sms-lána og örlána, hefur nýlega byrjað að bjóða upp á svokölluð smálán. Framkvæmdin virðist einföld, allt sem þarf er að skrá sig á netinu og senda svo sms þegar mann vantar pening. Neytendasamtökin vara fólk eindregið við töku þessara lána og hvetja yfirvöld jafnframt til aðgerað er sporni við slíkum lánveitingum. Lánin geta verið að upphæð 10.000, 20.000, 30.000 eða 40.000 kr. og þau þarf að greiða upp innan fimmtán daga.

Grill fauk á rúðu

Níu beiðnir um aðstoð hafa borist björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Sex hópar björgunarsveitamanna frá Ársæli í Reykjavík og Kili á Kjalarnesi sinna þeim.

McCann hjónin snúa aftur til Portúgals

Eftir miklar vangaveltur hefur Gerry McCann nú upplýst að hann muni snúa til Praia da Luz ásamt Kate eiginkonu sinni á þessu ári. Foreldrar hinnar horfnu Madeleine McCann dvelja nú á Spáni en Kate hefur ekki komið til staðarins þar sem dóttir þeirra hvarf í meira en tvö ár. Það hefur Gerry hinsvegar gert.

Mælir með því að foreldrar sæki börnin í skólann

Veðurhæðin er við það að ná hámarki og það verður býsna hvasst á sunnan- og vestanverðu landinu fram til þrjú eða fjögur, segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Hann mælir með því að foreldrar sæki börn sín í skólann í dag, einkum ef um er að ræða ung börn.

Rútuferðum frestað

Öllum áætlunarferðum Bíla og fólks - TREX, frá Reykjavík, Akureyri og Snæfellsnesi var frestað í morgun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að athugað verði í hádeginu hvort unnt verði að leggja af stað klukkan 13:00.

Segir Svandísi afþakka 15 milljarða

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti því yfir í morgun að hún ætlaði ekki að sækja um undanþágur frá Kyoto-bókuninni fyrir mengandi stóriðju. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þar með hafi umhverfisráðherra afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar fimmtán milljarða króna verðmætum.

Svínaflensusmit: Ástand sjúklings alvarlegt

Ástand karlmanns, sem liggur á gjörgæsludeild Landspítalans svínaflensu, er alvarlegt að sögn vakthafandi læknis. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Samkvæmt upplýsingum frá lækni er maðurinn á sjötugsaldri og með undirliggjandi sjúkdóma.

Þúsundir sjóðsfélaga eiga rétt á skaðabótum

Með nýuppkveðnum dómum Héraðsdóms Reykjavíkur í málum 18 sjóðsfélaga í peningamarkaðssjóði Landsbankans var fallist á sameiginlega bótaskyldu Landsbankans og Landsvaka vegna þess tjóns sem sjóðsfélagarnir urðu fyrir við slit sjóðsins. Eru þetta fyrstu dómarnir sem falla eftir bankahrunið þar sem einn af gömlu bönkunum er dæmdur bótaskyldur gagnvart viðskiptavinum sínum.

Barack Obama fær friðarverðlaun Nóbels

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Norska Nóbelnefndin sem úthlutar þessum verðlaunum tilkynnti um þetta í dag.

Óveðrið segir til sín í Reykjavík

Hvassviðrið hefur aukist í Reykjavík eftir því sem liðið hefur á morguninn og telur lögreglan líklegt að kalla verði eftir björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu þegar líður á daginn. Tjald sem staðsett var við Háskóla Íslands losnaði í morgun og fiskikör á Granda hafa fokið. Þá hafa vinnupallar hreyfst úr stað vegna óveðursins.

Ekkert ferðaveður í dag

Vegagerðin varar við stormi og slæmu ferðaveðri, sunnan og vestan til á landinu í dag. Vegfarendur eru beðnir um að kynna sér veðurspá og skilyrði til aksturs. Ekkert hefur verið flogið í dag samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands en athugað verður með flug klukkan hálfellefu. Þá sigldi Herjólfur ekki í morgun.

Samferðarmenn dauðans

Illa lyktandi, feitt og síhóstandi fólk eru verstu samferðarmenn í flugi sem fyrirfinnast. Að minnsta kosti ef eitthvað er að marka glænýja könnun vefsíðunnar Travelocity.

Barnabarn Stalíns stefnir dagblaði

Barnabarn rússneska einræðisherrans Josefs Stalin hefur höfðað mál gegn rússnesku dagblaði og fullyrðir að blaðið hafi lítilsvirt minningu hans.

Leysti þúsundir minka úr haldi

Það varð uppi fótur og fit í minkabúi í Fousing á Vestur-Jótlandi snemma í morgun þegar óþekktur aðili braust þar inn og hleypti minkunum út.

Tannfyllingar Hitlers úr gyðingum

Fyllingar í tönnum Adolfs Hitler, leiðtoga þýska nasistaflokksins á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, voru gerðar úr gulli sem fjarlægt hafði verið úr tönnum gyðinga í útrýmingarbúðum nasista.

Styttist í tunglárekstur

Núna eru örfáar klukkustundir í að tveggja tonna þungt toppstykki eldflaugar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA skelli á tunglinu á 9.000 kílómetra hraða á klukkustund og þyrli upp rykskýi sem geimfarið L-Cross, eða Lunar Crater Observation and Sensing Satellite, mun svo mynda rétt áður en það flýgur í gegnum skýið og skellur sjálft á yfirborði tunglsins, þó ekki með sama krafti og fyrra skeytið.

Ljómandi borg hefst í dag

Reykjavíkurborg hleypir af stokkunum verkefninu Ljómandi borg í dag. Á sama tíma og kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey fagnar Reykjavíkurborg vetrinum með því að kveikja hvít ljós víða um miðborgina og á samkomustöðum í hverfum borgarinnar.

Fjórðungur jarðarbúa er íslamstrúar

Nú er talið að allt að 1,8 milljarðar manna í heiminum játi íslamstrú. Það þýðir að um það bil einn af hverjum fjórum jarðarbúum sé þeirrar trúar.

Aftakaveður í Vestmannaeyjum

Mjög hvasst er í Vestmannaeyjum þessa stundina og svo hvasst hefur verið þar að í nótt fauk sendibíll á hliðina við Stóragerði í austurhluta bæjarins. Að sögn lögreglunnar var bíllinn, sem er um 2,4 tonn að eigin þyngd, mannlaus þegar að hann fauk á hliðina. Lögreglan býst ekki við að bíllinn verði reistur við fyrr en veðrið lægir. Þá vill lögreglan í Vestmannaeyjum koma því á framfæri að þar fellur niður öll kennsla í grunnskólum í dag vegna veðurs.

Sjá næstu 50 fréttir