Vilja ekki olíuskip á hafíssvæðum 9. október 2009 12:54
Landhelgisgæslan hefur óskað eftir því að olíuskip sem sigla frá Rússlandi til Bandaríkjanna, sigli ekki milli Íslands og Grænlands, vegna hafíss. Drekkhlaðið olíuskip fór vestur fyrir landið í vitlausu veðri á dögunum, en lét ekki vita um ferðir sínar. Eftirlitsflugvél gæslunnar kom auga á ísjaka út af vestfjörðum í vikunni; þeir voru næstir sjötíu og sjö sjómílur frá landi. Gæslan segir á vefsiðu sinni, að jakar sem skip hafi komið auga á undan Vestfjörðum hafi ekki komið fram á gervitunglamyndum, en geti engu að síður verið hættulegir skipum, þar sem einungis einn tíundi þeirra sé ofansjávar. Fáir dagar eru síðan Gæslan frétti af tveimur olíuskipum í efnahagslögsögunni, með óvenju stóran farm af hráolíu; eða tvisvar sinnum stærri en venjulega tíðkast. Skipin voru á leið frá Rússlandi til Bandaríkjanna. Annað þeirra valdi að sigla vestur fyrir land, í afleitu veðri, þar sem hætta var á hafís. Hvorugt skipið sá ástæðu til að tilkynna um ferðir sínar til vaktstöðvar siglinga. Í kjölfar þessa var óskað eftir því við siglingaumferðarmiðstöðina í Vardö í Noregi, að olíuskip færu ekki vestur fyrir og sendu auk þess tímanlega upplýsingar um siglingu inn í íslenska lögsögu.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Bein útsending: Kynntu nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Bein útsending: Kynna nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Sjá meira