Erlent

Barack Obama fær friðarverðlaun Nóbels

Óli Tynes skrifar

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Norska Nóbelnefndin sem úthlutar þessum verðlaunum tilkynnti um þetta í dag.

Í greinargerð nefndarinnar segir að Obama hljóti verðlaunin fyrir að berjast fyrir því að grynnkað verði á kjarnorkuvopnabúrum kjarnorkuveldanna og fyrir áherslur sínar á frið í heiminum.

Obama leggur til dæmis mikla áherlu á að knýja fram frið í Miðausturlöndum.

Verðlaunin nema tíu milljónum sænskra króna og verða afhent í Osló tíunda desember næstkomandi.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×