Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dauði Jacksons lífseigt umræðuefni Ekkert lát er á umræðum um dauða Michaels Jackson og nú stígur Deepak Chopra, andlegur ráðgjafi og sjálfshjálparmeistari ýmissa frægra einstaklinga, þar á meðal Jacksons, fram og ræðir málið við blaðamann Telegraph. 15.9.2009 08:25
Al Qaeda-liði drepinn í þyrluárás Sérsveitir Bandaríkjahers drápu al Qaeda-liðann Saleh Ali Saleh Nabhan í þyrluárás í Suður-Sómalíu í gær. 15.9.2009 08:18
John Gotti yngri ákærður í fjórða sinn John Gotti yngri, sonur og alnafni eins alræmdasta mafíuforingja Bandaríkjanna, er nú fyrir rétti í New York, ákærður fyrir fjárkúgun og svik af ýmsu tagi. 15.9.2009 08:10
Patrick Swayze er allur Bandaríski leikarinn Patrick Swayze er látinn, 57 ára að aldri, og var banamein hans krabbamein í brisi sem hann hafði glímt við síðan snemma árs í fyrra. 15.9.2009 08:08
Persónuvernd veiti leyfi Ríkisskattstjóri segir að mistök hafi valdið því að Jón Jósef Bjarnason tölvunarfræðingur fékk aðgang að fyrirtækjaskrá til þess að búa til gagnagrunn með myndrænum upplýsingum um tengsl manna í viðskiptalífinu. Persónuvernd hefur málið nú til meðferðar. 15.9.2009 08:00
Innbrotsþjófar á ferð í nótt Brotist var inn í Listaháskólann við Laugarnesveg og bílaumboð við Vagnhöfða undir morgun. 15.9.2009 07:23
Ölvaður ökumaður á Biskupstungnabraut Lögreglan á Selfossi stöðvaði mjög ölvaðan mann á bíl sínum á Biskupstungnabraut um eittleytið í nótt. 15.9.2009 07:20
Eldur gaus upp í leigubíl á ferð Nýlegur leigubíll stórskemmdist þegar eldur kviknaði í honum á ferð í gærkvöldi. Þegar ökumaðurinn ók eftir Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ heyrði hann skyndilega hvell og síðan gaus eldurinn upp. 15.9.2009 07:10
Hafa áhyggjur af yfirlýsingu Eltons John Alþjóðlegu barnahjálparsamtökin EveryChild hafa áhyggjur af því að yfirlýsing breska popparans Eltons John, þess efnis að hann og eiginmaður hans vilji ættleiða eins árs gamlan HIV-smitaðan dreng, geti leitt af sér að foreldrar yfirgefi börnin sín í meiri mæli. CNN greinir frá þessu. 15.9.2009 07:00
Flúðu húsið vegna GSM-sendibúnaðar Hjón á Egilsstöðum „krossleggja fingur“ sína og vona að ekki verði leyft að gangsetja að nýju GSM-sendi Vodafone ofan á tanki skammt frá heimili þeirra. 15.9.2009 06:00
Ríkisforstjórar enn á hærri launum en forsætisráðherra „Þetta tekur tíma og ég held að það verði ekkert að frétta í þessum mánuði,“ segir Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs, um það hvenær vænta megi niðurstöðu ráðsins varðandi ný launakjör hjá æðstu stjórnendum hjá ríkinu og ríkisfyrirtækjum. 15.9.2009 05:30
Fá milljóna bakreikninga vegna kaupréttarsamninga Ríkisskattstjóri endurskoðar nú álagningu opinberra gjalda á alla sölu- og kaupréttarsamninga sem gerðir hafa verið undanfarin ár. 15.9.2009 05:00
Pókerinn skilar 2,2 milljónum í ríkiskassann Heildarvinningsféð á Íslandsmótinu í póker, sem lauk um helgina, nam sex milljónum króna. Allir vinningar eru skattskyldir, sem þýðir að um 2,23 milljónir af vinningsfénu munu renna í ríkiskassann að því gefnu að allir standi skil á sínu. 15.9.2009 04:30
Endurgreiða með 15% álagi á bætur Þeir háskólastúdentar sem talið er að hafi vísvitandi svikið út atvinnuleysisbætur á síðasta skólaári verða krafðir um endurgreiðslu með fimmtán prósenta álagi. Þeim mun gefast kostur á að skrifa undir skuldabréf og dreifa greiðslum. Ekki er um refsiverð brot að ræða. 15.9.2009 04:00
Bloggskrif kennara valda fjaðrafoki „Málið verður tekið fyrir innan skólans. Það er spurning hversu vel þeir sem hafa þessar skoðanir eru til þess fallnir að vinna samkvæmt jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar, Hagaskóla eða annarra skóla,“ segir Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Bloggfærsla Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur, sem kennir heimilisfræði við skólann, um Pólverja vakti athygli í gær. 15.9.2009 03:30
Stoltenberg sigraði Þegar búið er að telja tæp 99% atkvæða í þingkosningunum í Noregi er ljóst að Verkamannaflokkurinn hefur bætt við sig þremur þingmönnum. Flokkurinn undir forystu Jens Stoltenberg heldur því velli en það hefur ekki gerst í landinu í 16 ár. 14.9.2009 23:13
Eldur kom upp í bifreið í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eld í bifreið í Mosfellsbæ um sjö leytið í kvöld. Þegar slökkvilið kom á staðinn höfðu vegfarendur náð að slökkva eldinn. 14.9.2009 22:00
Spyr stanslaust um föður sinn Prince Michael Jackson II, sjö ára gamall sonur Michael Jacksons á erfitt með að sætta sig við fráfall föður síns. Hann spyr stanslaust hvar faðir sinn sé á milli þess sem hann grætur inni í herbergi. 14.9.2009 22:08
Rannsaka hugsanlega hryðjuverkastarfsemi í New York Lögreglan í New York rannsakar nú hugsanlega hryðjuverkastarfsemi í Queenshverfinu þar í borg. Það var talsmaður lögreglunnar sem greindi frá þessu nú í kvöld. 14.9.2009 21:02
Segja minnisblað KPMG mistúlkað í borgarráði Í bréfi sem KPMG, endurskoðunarfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, hefur sent fyrirtækinu kemur fram að minnisblað KPMG, sem lagt var fram í borgarráði síðastliðinn fimmtudag, hafi verið mistúlkað. Gerir endurskoðunarskrifstofan athugasemdir við fullyrðingar þar sem vitnað er til upplýsinga frá henni. Minnisblaðið snerist um mat á tilboði Magma Energy í hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. 14.9.2009 20:17
Rukkað inn í grasagarð í Edinborg vegna Kaupthings Gestir The Royal Botanic Garden í Edinborg gætu þurft að greiða 4 punda aðgöngugjald í garðinn vegna falls íslensku bankanna. Garðurinn á í fjárhagslegum erfiðleikum en hann átti 1,09 milljón pund í Kaupthing Singer & Friedlander sem fór í greiðslustöðvun í október síðast liðnum. Þetta kemur fram í skoskum fjölmiðlum í dag. 14.9.2009 20:15
Guðlaugur samþykktur sem varamaður í borgarráð Samgönguráðuneytið hefur fallist á og staðfest nýjar samþykktir um stjórn og fundarsköp Reykjavíkurborgar. Þessi staðfesting ráðuneytisins eyðir öllum vafa um hæfi Guðlaugs Sverrissonar stjórnarformanns OR sem varamanns í borgarráði. 14.9.2009 19:57
Fundnir heilir á húfi Drengirnir, Elís og Tyler sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld, eru komnir fram heilir á húfi. 14.9.2009 19:15
Stjórnin heldur líklega velli Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar í landi. Samkvæmt kosningaspá sem norska ríkissjónvarpið birti nú í kvöld þegar kjörstöðum var lokað virðist stjórnin halda velli. Samkvæmt spánni fengu stjórnarflokkarnir 86 þingsæti og stjórnarandstaðan 83. 14.9.2009 19:09
Sala á áfengi dregst saman - fleiri brugga Sala á búnaði og efnum til bruggunar hefur aukist um allt að fimmtíu prósent á síðustu mánuðum. Í síðasta mánuði dróst sala á áfengi saman um tæplega þriðjung. 14.9.2009 18:45
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins fékk rjómatertu Forstjóri Samkeppniseftirlistins fékk rjómatertu að gjöf í dag í tilefni þess að það hefur tekið eftirlitið tvö ár að rannsaka meint samkeppnisbrot Lyf og Heilsu. Sá sem gaf tertuna segir ekki eðlilegt að bíða þurfi í tvö ár eftir úrskurði. 14.9.2009 18:38
Í ábyrgð fyrir hátt í fjögur þúsund milljörðum króna Íslenska ríkið er í ábyrgð fyrir hátt í fjögur þúsund milljörðum króna, ef tekið er tillit til Icesave og yfirlýsingar ríkisins um að tryggja innlendar innistæður í bönkum. Ábyrgðir ríkisins hafa margfaldast á síðustu árum. 14.9.2009 18:30
Nauðasamningi hafnað Kröfuhafar Milestone höfnuðu nauðasamningi sem lagður var fyrir þá á fundi í dag til samþykktar eða synjunar. Glitnir, langstærsti kröfuhafinn, studdi hins vegar nauðasamninginn. 14.9.2009 18:27
Hugsanleg sameining skoðuð af fullri einurð Erlendur Hjaltason formaður Viðskiptaráðs Íslands segir að beiðni Samtaka atvinnulífsins um viðræður um sameiningu samtakanna verði skoðuð af fullri einurð. Þetta kemur fram á heimasíðu Viðskiptaráðs en Vilmundur Jósefsson formaður SA sendi Viðskiptaráði formlegt bréf þessa efnis fyrr í dag. 14.9.2009 17:47
Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi Lögreglan í Borgarfirði og Dölum, LBD, lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi rétt norðan við Borgarnes rétt fyrir kl. 21:00 í gærkvöldi. 14.9.2009 17:35
SA vill sameinast Viðskiptaráði Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður Samtaka atvinnulífsins, sendi Viðskiptaráði Íslands bréf í dag þar sem þess er farið á leit fór þess á leit að teknar verði upp viðræður um sameiningu samtakanna. Í bréfinu kemur fram að markmið slíkra breytinga yrði að efla samtök atvinnurekenda, auka skilvirkni í rekstri og virkja betur kraft og frumkvæði atvinnurekenda til beinnar þátttöku í endurreisn atvinnulífsins. 14.9.2009 16:46
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðahald yfir Hosmany Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir brasilíska lýtalækninum Ramos Hosmany en hann kom hingað til lands í ágúst á vegabréfi bróður síns. Hann var að koma frá Noregi og á leiðinni til Kanada þegar tollgæslan stöðvaði för hans. Ramos var í kjölfarið dæmdur í 30 daga fangelsi hér á landi fyrir að framvísu vitlausu vegabréfi. 14.9.2009 16:40
Tilkynnt um fjögur innbrot í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tilkynningar um fjögur innbrot í dag. Tvö innbrot voru tilkynnt í austurborginni og tvö innbrot í vesturbænum. Þá var tilkynnt um eina innbrotstilraun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki víst að öll þessi innbrot hafi verið framin í dag. Möguleiki er á að einhver þeirra hafi verið framin um helgina. 14.9.2009 16:25
Ólöglegir mynddiskar haldlagðir í Hnífsdal Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á 1400 ólöglega DVD mynddiska á laugardaginn sem var verið að selja í Hnífsdal. Samkvæmt lögreglunni þá er málið í rannsókn. 14.9.2009 15:58
Minnihlutinn bíður enn eftir svörum varðandi Magma Samningur Magma Energy Sweden og Orkuveitu Reykjavíkur um sölu á hlut í Hs-Orku verður tekinn fyrir í borgarstjórn á morgun þriðjudag. Fulltrúar minnihlutans lögðu fram spurningar varðandi lögmæti málsins á borgarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag og var farið fram á að svör bærust fyrir borgarstjórnarfundinn á morgun. 14.9.2009 15:57
Ákærður fyrir að ráðast á par vopnaður kúbeini Karlmaður á fertugsaldri, Einar Örn Sigurðsson, hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Hann er sakaður um að hafa ruðst inn á heimili pars á þrítugsaldri í miðborg Reykjavíkur vopnaður kúbeini. 14.9.2009 15:39
Vill að Ísland fái flýtimeðferð inn í ESB Aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu ætti að fá sérstaka hraðmeðferð að mati Jean-Claude Juncker, fjármálaráðherra Lúxemborgar. Juncker, sem nú er í forsæti fyrir Eurogroup, hóp fjármálaráðherra á evrusvæðinu, lét þessi ummæli falla í samtali við Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar í dag. Svíar eru nú í forsæti Evrópusambandsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Wall Street Journal í dag. 14.9.2009 15:03
Kannabis í Grafarholti Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarholti síðdegis á föstudag samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða 100 grömm af kannabis. 14.9.2009 14:37
Vanhæfur til að gegna embætti sérstaks saksóknara Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður er vanhæfur til þess að gegna embætti sérstak saksóknara vegna bankahrunsins. 14.9.2009 14:16
Kjötiðnaðarmenn harma sleggjudóm Meistarafélag kjötiðnaðarmanna harmar það sem þeir kalla sleggjudóm frá bændum á Hálsi í Kjós, sem á dögunum fullyrtu að nautahakk væri stundum blandað með ýmsu öðru án þess að þess sé getið á umbúðum. „Þar er fullyrt án rökstuðnings að vörusvik fari fram á okkar neytendamarkaði,“ segja kjötiðnaðarmenn í ályktuninni. 14.9.2009 14:09
Fulltrúi orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna með fyrirlestur Mary Werner, yfirmaður hjá National Renewable Energy Laboratory (NREL) hjá orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna heldur fyrirlestur á ráðstefnunni Driving Sustainability sem nú stendur yfir í Reykjavík. Í fyrirlestrinum lýsir hún þeirri byltingu í orkunýtni og hreinni orku sem á sér nú stað vestanhafs leiddri af ríkisstjórn Barack Obama. 14.9.2009 14:00
Borgarfulltrúar VG vilja fresta sölu á hlut OR í HS orku Borgarfulltrúar Vinstri grænna krefjast þess að ákvörðun borgarstjórnar um sölu á hlut Orkuveitunnar í HS orku verði frestað þar til nefnd um erlendar fjárfestingar hefur fjallað um málið. 14.9.2009 14:00
Sektaður fyrir horaðar hryssur Bóndi í Bláskógabyggð var dæmdur til þess að greiða 200 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa vanrækt gróflega aðbúnað, umhirðu og fóðrun tveggja hrossa. Við skoðun kom í ljós að holdstig hestanna voru á kvarðanum 1,5 til 2. 14.9.2009 13:36
Sló lögreglumann í andlitið Tuttugu og tveggja ára gömul kona var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að slá lögreglumann við skyldustörf í andlitið. Atvikið átti sér stað í Austurstræti í ágúst í fyrra og játaði konan brot sitt. Fram kemur í dómnum, sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur, að konan hafi ekki gerst sek um refsivert brot áður og það hafi áhrif á ákvörðun um refsingu. 14.9.2009 13:19
Braust inn í húsnæði lögreglu og sjúkraflutningamanna Brotist var inn í húsnæði lögreglunnar og sjúkraflutningamanna á Selfossi síðdegis á föstudag. Samkvæmt heimildum Vísis fór maðurinn meðal annars inn í gamlan sjúkrabíl sem geymdur er í húsinu og rótaði í hillum í húsnæðinu. 14.9.2009 13:07