Í ábyrgð fyrir hátt í fjögur þúsund milljörðum króna 14. september 2009 18:30
Íslenska ríkið er í ábyrgð fyrir hátt í fjögur þúsund milljörðum króna, ef tekið er tillit til Icesave og yfirlýsingar ríkisins um að tryggja innlendar innistæður í bönkum. Ábyrgðir ríkisins hafa margfaldast á síðustu árum. Ríkið er í ábyrgð fyrir lánum ýmissa opinberra fyrirtækja og stofnana. Ábyrgðirnar hafa aukist jafnt og þétt frá árinu 2000. Ríkisábyrgðir námu 377 milljörðum árið 2009 og standa nú, samkvæmt yfirliti Seðlabankans, í tæpum þrettán hundruð milljörðum. Lánastofnanir eru fyrirferðarmestar, en þar er Íbúðalánasjóður langstærstur. Næst kemur Landsvirkjun, en skuldir þessara tveggja aðila hafa aukist svo um munar. Annað er fyrirferðarminna. Eins og áður sagði eru þetta samtals þrettán hundruð milljarðar. Hins vegar er ekki tekið tillit til tveggja veigamikilla þátta í þessum tölum. Í fyrsta lagi eru allar innistæður í bönkum ríkistryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands. Hér er um að ræða um 2 þúsund milljarða sem ríkið er í ábyrgð fyrir. Yfirlýsingin hefur ekki verið afturkölluð en hefur þó ekki heldur verið bundin í lög, og því væntanlega ekki talin með í þessum formlegu tölum. Icesave skuldbindingin er heldur ekki með í yfirliti Seðlabankans, þrátt fyrir samþykki Alþingis á ríkisábyrgð. Ómögulegt er að segja til um hvað fellur á íslenska ríkið vegna Icesave reikninga Landsbankans en ábyrgðin í heild er um 750 milljarðar króna. Ríkisábyrgðir nema því um fjögur þúsund milljörðum þegar allt er tekið með. Þess ber að geta að ef samkomulag við erlenda kröfuhafa um að þeir eignist Kaupþing og Íslandsbanka gengur í gegn og þegar bankakerfið kemst í eðlilegt horf á ný mun ríkið væntanlega falla frá ótakmarkaðri ríkisábyrgð á innlendum innistæðum.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira