Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Konan sem stakk aðra var á reynslulausn Konan, sem stakk aðra konu með eggvopni við Njálsgötu í Reykjavík á laugardagsmorgun, var á reynslulausn úr fangelsi, vegna fyrri afbrota, og er nú aftur komin í fangelsi til afplánunar síðasta dóms. 24.8.2009 08:51
Slapp við að vera hýdd fyrir bjórdrykkju Yfirvöld í Malasíu hafa óvænt ákveðið að láta lausa úr haldi fyrirsætuna Kartiku Shukarno sem á dögunum var dæmd til að hljóta sex vandarhögg fyrir að fá sér bjórglas á almannafæri. 24.8.2009 08:20
Hraðakstur í Hörgárdal Átta ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í Hörgárdal við Akureyri í gærkvöldi. Sá sem hraðast ók var á tæplega 130 kílómetra hraða og fær drjúga sekt. 24.8.2009 08:13
Fjárlaganefnd fundar um Icesave Fjárlaganefnd Alþingis kemur saman klukkan tíu til að ræða ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna. Nefndin er með málið til umfjöllunar eftir að breytingartillögur við frumvarpið, eða fyrirvarar, voru samþykktar eftir aðra umræðu í þinginu á fimmtudag í síðustu viku. 24.8.2009 08:12
Bíræfinn þjófur í Hveragerði Töluverðum verðmætum var stolið úr íbúðarhúsi í Hveragerði í nótt og er þjófurinn ófundinn. Fyrst braust hann inn í gærkvöldi og fór þjófavarnakerfi í gang, með tilheyrandi viðbrögðum öryggisfyrirtækisins. 24.8.2009 08:11
Hlekkjuðu sig aftur við grindverk og vinnuvélar - sex handteknir 12 manna hópur úr samtökunum Saving Iceland hlekkjaði sig við grindverk og vinnuvélar á athafnasvæði fyrirhugaðs álvers við Helguvík í Reykjanesbæ og reyndi að hefta för starfsmanna inn á svæðið. Sex voru handteknir af lögreglu í morgun. 24.8.2009 07:45
Hummer Björgólfs málaður rauður Skemmdarvargar herja enn á heimili og eigur manna úr viðskiptalífinu: 24.8.2009 06:00
Bankar mótmæla réttarbót Bankarnir hafa eindregið lagst gegn frumvarpi um bætta stöðu skuldara, að sögn Lilju Mósesdóttir, formanns félagsmálanefndar. Hún er fyrsti flutningsmaður frumvarps sem hún segir hafa þann tilgang að leysa fólk úr skuldafangelsi. 24.8.2009 06:00
Hringdi barnið inn veikt vegna fátæktar Foreldri sautján ára drengs, sem hefja átti nám í menntaskóla, hringdi hann inn veikan fyrsta daginn. Ekki voru til peningar til að kaupa námsbækur og skólavörur handa honum. 24.8.2009 05:00
Leyfisveiting tekin fyrir á miðvikudag Menntaráð Reykjavíkur tekur umsókn Menntaskólans um starfsleyfi til umsagnar á miðvikudaginn, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs. Eftir að ráðið hefur gefið umsögn fer umsóknin til menntamálaráðuneytisins, sem hefur endanlegt úrskurðarvald um hvort skólinn fái starfsleyfi eða ekki. Flestir grunnskólar Reykjavíkur hefja kennslu í dag. 24.8.2009 04:30
Leituðu til ráðherra til að sækja bráðkvaddan mann Björgunarsveitarmenn á Húsavík fullyrða að Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðni þeirra um að þyrla sækti lík manns sem lést í fjallgöngu á fjallið Herðubreið. Svæðisstjóri björgunarsveitarinnar leitaði til dómsmálaráðherra og var þyrla frá Norðurflugi leigð til að ná í lík mannsins. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að aldrei hafi annað staðið til en að sækja líkið en ódýrari kostur hafi verið valinn en að senda stóra björgunarþyrlu. 24.8.2009 04:00
Stefnan sett á að kljúfa hljóðmúrinn Hátt í hundrað manns fylgdust með þegar öflugustu eldflaug sem smíðuð hefur verið af Íslendingum var skotið á loft frá Höskuldarvöllum, nálægt fjallinu Keili, um klukkan hálfþrjú í gær. Eldflaugin, sem vó átta kíló, náði þúsund kílómetra hraða og 2.700 metra hæð á 25 sekúndum. Fallhlíf var í flauginni svo hún gæti svifið til jarðar. 24.8.2009 03:30
Tugir taldir vera í leynifangelsum Bandaríski herinn hefur byrjað að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga í leynifangelsum í Írak og Afganistan. Fangarnir eru allir grunaðir um að tengjast hryðjuverkasamtökum en Rauði krossinn hefur þrýst lengi á varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna um að fá þessar upplýsingar. 24.8.2009 03:00
Ernir farnir að verpa á Suðurlandi Arnarungar sem komust á legg í sumar voru 36 og hafa þeir ekki verið fleiri í manna minnum. Íslenski hafarnarstofninn telur nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í vor. Varp misfórst hjá 19, þar á meðal hjá parinu sem fylgst var með á vefmyndavél Arnarsetursins. 24.8.2009 03:00
Eystrasaltsríki fögnuðu upphafi sjálfstæðisbaráttu Mikil hátíðarhöld voru í Eystrasaltsríkjunum þremur um helgina. Tuttugu ár eru liðin í dag frá því að ótal Eistar, Lettar og Litháar tóku höndum saman og kröfðust með táknrænum hætti sjálfstæðis frá Sovétmönnum. 23.8.2009 21:45
Segja 100 uppreisnarmenn hafa fallið Jemenskir hermenn réðust gegn herskáum sjía múslimum í norðanverðu landinu í dag og reyndu að ná bænum Harf Sufyan aftur á sitt vald. Fullyrt er að þeir hafi fellt yfir hundrað bardagamenn, þar á meðal tvo leiðtoga úr röðum þeirra. 23.8.2009 21:00
Miðvikudagar verri en mánudagar Eftir að hafa rannsakað meira en 2,4 milljónir vefdagbóka, þar á meðal Twitter, hafa prófessorarnir Christopher Danforth og Peter Dodds við Vermont háskóla í Bandaríkjunum komist að því að miðvikudagur er versti dagur vikunnar. 23.8.2009 20:01
Fall krónunnar: Flugeldasýningin styttri en í fyrra Um eitt hundrað þúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Sýningin var þó styttri en í fyrra og kenna forsvarsmenn hátíðarinnar falli krónunnar um, því sömu krónutölu hafi verið varið til flugeldakaupa. 23.8.2009 19:09
Hafa flutt út 80 tonn af sælgæti frá áramótum Útflutningur á íslensku sælgæti hefur tekið kipp í efnahagskreppunni og er sælgætisgerðin Freyja komin í útrás. Fyrirtækið hefur sent út um 80 tonn af súkkulaði og öðru góðgæti frá áramótum. 23.8.2009 19:02
Íslensk áhöfn neyddist til að múta rússnesku strandgæslunni Áhöfnin á togaranum Málmey frá Sauðárkróki neyddist til að múta rússneskum strandgæslumönnum til að komast út úr rússneskri landhelgi fyrr í mánuðinum. 23.8.2009 18:41
Fólk greiði ekki meira af lánum en upphaflega greiðsluáætlun Hæstaréttarlögmaður hvetur fólk til þess að greiða eingöngu af lánum í samræmi við upphaflega greiðsluáætlun og ekki krónu meira. Hann segir efnhagshrunið og óðaverðbólgu hafa breytt öllum forsendum lána og ákvæði í lögum verndi fólk fyrir því. 23.8.2009 18:34
Lögregla rannsakar vettvang skemmdarverks Tæknideild lögreglu heimsótti hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, í dag til að rannsaka skemmdarverk sem unnin voru á húsi hans í nótt. 23.8.2009 17:21
Sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar mistókst Atburðarás reyndist of hröð og flókin til að sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar tækist að ná árangri og fá alla aðila til að ná sáttum, að því er kemur fram í tilkynningu sáttanefndarinnar til félagsmanna Borgarahreyfingarinnar. 23.8.2009 16:58
Týndi símanum og sogaðist inn í sakamál „Ég týndi símanum mínum í bænum. Svo fór fólk að fá einhver skringileg SMS úr símanum mínum. Á sunnudagsnóttina var síðan farið að áreita einhverja hátt setta menn," segir Gyða Björg Sigurðardóttir, tvítugur Reykvíkingur. 23.8.2009 16:24
Fjárlaganefnd fundar áfram um Icesave í fyrramálið Fjárlaganefnd hittist klukkan tíu í fyrramálið til áframhaldandi fundahalda um ríkisábyrgð á Icesave samningunum. 23.8.2009 15:27
ESB aðildarviðræður útheimta fjörutíu ársverk þýðenda Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir tíu þýðendum vegna þess að þýðingarmiðstöð ráðuneytisins hefur ekki annað verkefnum sínum. Fjölga þurfi þýðendum til að vinna upp uppsafnaðan hala. 23.8.2009 15:08
Hátt í hundrað áhorfendur fylgdust með eldflaugarskoti Öflugustu eldflaug, sem Íslendingar hafa smíðað til þessa, var skotið á loft frá Höskuldarvöllum nálægt fjallinu Keili laust fyrir klukkan hálfþrjú. Eldflaugarskotið heppnaðist vel, þrátt fyrir töluverðan vind, en hann varð til þess að flaugin fór ekki þráðbeint upp í loftið heldur sveigði hún talsvert undan vindinum. 23.8.2009 14:59
Skilaði sér ekki eftir göngu og reyndist snúinn á fæti Björgunarsveitinar Brimrún frá Eskifirði og Ársól frá Reyðarfirði voru kallaðar út klukkan 00:40 í nótt vegna manns sem hafði ekki skilað sér eftir göngu á Hólmatind. Ættingjar fóru að óttast um manninn þegar líða fór að miðnætti og báðu um aðstoð. 23.8.2009 14:50
Vill breyta Evróputilskipun um innistæðutryggingar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er í tölvupóstviðtali hjá bandaríska tímaritinu Forbes á föstudag undir liðnum Forbes Woman. 23.8.2009 14:03
Nokkrir hlauparar fengu Glitnismedalíur Einhverjir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fengu verðlaunapeninga merkta þrotabúi Glitnis, en ekki styrktaraðila hlaupsins, eftir hlaupin í gær. 23.8.2009 13:43
Tíu þúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi Fjölmörg heimili norðaustan Aþenu, höfuðborgar Grikklands, urðu skógareldum að bráð í nótt og í morgun. Illa gengur að ná tökum á eldunum. Grískt yfirvöld fyrirskipuðu í morgun að tíu þúsund manns skyldi flytja á brott frá heimilum sínum. 23.8.2009 12:50
Hús Sigurðar Einarssonar lakkað í nótt Skemmdarvargar sprautuðu hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, með rauðu lakki í nótt. Tilkynning um atvikið barst fjölmiðlum klukkan rúmlega tíu í morgun frá sömu aðilum og tilkynntu um skemmdarverk á bíl Björgólfs Thors í nótt. 23.8.2009 12:23
Geta ekki mætt í skóla vegna fátæktar foreldra „Það sem ýtti mér af stað er að foreldrar hafa verið að hringja í mig út af börnum sem mættu ekki í skólann fyrsta daginn, því þau hafa ekki getað keypt bækur," segir Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnarfjarðarkirkju, í samtali við fréttastofu. 23.8.2009 10:09
Bandaríkjaher gefur upp nöfn fanga í leynifangelsum Bandaríkjaher er byrjaður að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga sem herinn haldi í leynifangelsum í Afganistan og Írak. Þetta fullyrðir bandaríska blaðið New York Times í morgun og hefur eftir ónanfgreindum heimildarmönnum í bandaríska stjórnkerfinu. 23.8.2009 11:09
Ökumaður gripinn tvisvar á þrettán mínútum Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ökumanni á þrítugsaldri fyrir of hraðan akstur með þrettán mínútna millibili. 23.8.2009 09:34
Yfir 100 þúsund manns í bænum og allt fór vel fram Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór allt mjög vel fram í miðborginni í gær miðað við mannfjöldann sem þar var. Lögregla telur að um 100 til 110 þúsund manns hafi verið í miðborginni þegar mest var í kringum flugeldasýningu Menningarnætur í gær. 23.8.2009 09:26
Þöktu Hummer Björgólfs Thors með rauðri málningu Skemmdarvargar þöktu Hummer jeppa Björgólfs Thors Björgólfssonar rauðri málningu í nótt þar sem hann stóð á plani Háskólans í Reykjavík við Höfðabakka. 23.8.2009 09:20
Eldflaugarskot á Reykjanesskaga í dag Öflugustu eldflaug, sem Íslendingar hafa smíðað til þessa, verður skotið á loft á Reykjanesskaga eftir hádegi í dag. Eldflaugafélagið Amateur Icelandic Rocketry stendur fyrir eldflaugarskotinu, sem verður klukkan eitt á Höskuldarvöllum nálægt fjallinu Keili. 23.8.2009 10:25
Samdi konsert fyrir kött Nora, fimm ára gömul læða frá Fíladelfíufylki í Bandaríkjunum, er nú orðin fræg á internetinu eftir að litháiski hljómsveitarstjórinn Mindaugas Piecaitis samdi fyrir hana konsert. 23.8.2009 08:30
Þriggja daga þjóðarsorg í Taívan Þriggja daga þjóðarsorg hófst í Taívan í gær. Flaggað er í hálfa stöng til að minnast þeirra sem létu líf sitt í fellibylnum Morakot. 23.8.2009 08:00
Afhentu vopn í skiptum fyrir sakaruppgjöf Hundruð herskárra uppreisnarmanna í sunnanverðri Nígeríu létu vopn sín af hendi í dag við hátíðlega athöfn í Yenagoa. 22.8.2009 22:30
Heppinn ítali vann tugi milljarða í lottó Heppinn Ítali vann einar 146,9 milljónir evra í ofurlóttóinu Suprenalotto sem rekið er af ríkinu. Andvirði vinningsins er meira en 26 milljarðar íslenskra króna. 22.8.2009 21:00
50 milljarðar í eigu Tchenguiz frystir Skilanefnd Kaupþings hefur látið frysta um fimmtíu milljarða í eigu félaga sem tengjast írakska athafnamanninum Robert Tchenguiz á Tortola eyju, að því er fram kemur í fréttatíma Ríkissjónvarpsins. 22.8.2009 20:08
Leggur hangikjötslæri undir að ríkisstjórnin lifi kjörtímabilið Steingrímur J. Sigfússon er búinn að leggja hangikjötslæri undir að ríkisstjórnin lifi út kjörtímabilið. Þetta kom fram í viðtali sem hann veitti nýjum vefmiðli. 22.8.2009 19:05
Yfir fjögurhundruð menningarviðburðir í miðborginni Miðborg Reykjavíkur iðaði öll af lífi og menningu í dag þar sem rúmlega fjögur hundruð list- og menningarviðburðir fara fram. Forsvarsmenn segja sköpunargleðina blómstra í kreppunni. Búist er við um hundrað þúsund manns í miðbænum í kvöld. 22.8.2009 18:56