Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnkun jökla sést vel úr geimstöðinni Minnkun jökla og annarra ísi lagðra svæða á jörðinni sést greinilega frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Kanadíski geimfarinn Bob Thirsk, sem þar dvelur, sagði á blaðamannafundi, sem fór fram með aðstoð fjarskipta í gær, að hann sæi greinilegan mun á jöklunum frá því að hann dvaldi síðast í geimstöðinni fyrir 12 árum. 27.7.2009 07:34
Palin lét af embætti í gær Sarah Palin, ríkisstjóri Alaska og varaforsetaframbjóðandi Repúblikana fyrir síðustu forsetakosningar, lét af embætti sínu í gær og hefur Sean Parnell vararíkisstjóri nú tekið sæti hennar. 27.7.2009 07:32
Átta látnir eftir árekstur í New York Átta manns eru látnir, þar af fjögur börn, eftir árekstur þriggja bíla rétt norðan við New York-borg í gær. 27.7.2009 07:27
Kjör breskra ellilífeyrisþega með þeim verstu Næstum því þriðjungur breskra ellilífeyrisþega býr við kjör sem teljast undir fátæktarmörkum og er ástandið þar mun verra en það sem að meðaltali telst eðlilegt innan Evrópusambandsins. 27.7.2009 07:20
Fíkniefnaeftirlit þegar aukið í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur þegar aukið fíkniefnaeftirlit með gestum, sem eru að koma til eyjanna. Þetta er gert vegna þeirrar reynslu undanfarinna ára að fíkniefnasalar hafa reynt að koma sér til Eyja í tæka tíð, áður en aðalstraumurinn hefst og eftirlit nær hámarki. 27.7.2009 07:14
Rólegheit hjá lögreglu í nótt Óvenjurólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt eftir nokkuð erilsama helgi. Á sjöunda tímanum í morgun var ekki búið að tilkynna um neitt innbrot og ökumenn voru löghlýðnir í nótt. 27.7.2009 07:11
Góð síldveiði austur af landinu Góð síldveiði er nú úr norsk-íslenska síldarstofninum austur af landinu og hafa skipin fengið allt upp í 800 tonn eftir fimm til sex klukkustunda tog með flottrollum. 27.7.2009 07:09
Seinn í flug á tæplega 200 Tveir erlendir ferðamenn voru stöðvaðir á Reykjanesbraut í gær, eftir að lögregla hafði mælt bíl þeirra á miklum hraða. Annar mældist á tæplega 190 kílómetra hraða í gærdag og gaf þá skýringu að hann væri að missa af flugi, sem reyndin varð. 27.7.2009 07:06
Fjármálaráðherra: Við komumst betur út úr þessu en óttast var „Vélarnar eru í fullum gangi,“ er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni á vef breska blaðsins Telegraph. Telegraph segir raunar að hið sama eigi við um Steingrím J. Sigfússon sem hafi í síðustu viku komið á fót þremur nýjum bönkum í stað þeirra gömlu. Hagkerfið sé að komast í eðlilegt horf að nýju. 26.7.2009 22:00
Færð á vegum: Mótorhjólamenn beðnir að aka ekki um Þrengslin Vegna vegavinnu við Þrengslaveg eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og er vélhjólaökumönnum bent á að aka frekar veginn um Hellisheiði, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 26.7.2009 20:35
Ekki líklegt að skólum á Íslandi verði lokað vegna svínaflensu Sóttvarnarlæknir telur ólíklegt að skólum og stofnunum verði lokað í haust vegna svínaflensunnar, en segir embættið hins vegar búið undir þannig aðstæður. Engin fyrirmæli eru um samkomubann um verslunarmannahelgina, en þeim er ráðlagt að halda sig heima sem eru með inflúensulík einkenni. 26.7.2009 18:34
Segir þrjá ráðgjafa fjárlaganefndar vanhæfa Þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd segir þrjá ráðgjafa sem nefndin hafi kallað til sín fullkomlega vanhæfa og hlutdræga þar sem þeir sitji ýmist í samninganefndinni, sem gerði Icesave samkomulagið við Breta, eða komu að samningagerðinni. Í samningnum skuldbindi þeir sig til að fylgja því eftir að hann verði samþykktur á Alþingi. 26.7.2009 18:31
Harmar að nokkrir stjórnarmenn VR vilji úr ASÍ Forseti Alþýðusambands Íslands segist harma það að nokkrir stjórnamanna í VR vilji að félagið segi sig úr sambandinu. Hann segir samstöðu launþegahreyfingarinnar afar mikilvæga á þessum tímum. 26.7.2009 18:54
Ók á 188 á Reykjanesbraut Í hádeginu var ökumaður stöðvaður á Reykjanesbrautinni á 188 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraðinn er 90. Hann reyndist einnig vera ölvaður við aksturinn. Hann var færður á lögreglustöðina við Hringbraut þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. 26.7.2009 17:32
Sarkozy fluttur á sjúkrahús Nicholas Sarkozy, Frakklandsforseti hefur verið fluttur á spítala eftir að hann veiktist skyndilega í dag. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum var forsetinn að skokka hjá st frá París þegar hann fann fyrst fyrir vanlíðan. Hann var umsvifalaust sendur til læknis í skoðun og í kjölfarið var ákveðið að senda hann með þyrlu til Val de Grace hersjúkrahúsið. 26.7.2009 16:15
Sárnaði ummæli svila síns Eiginkona mannsins sem gekk berserksgang að Haukabergi á Barðaströnd í fyrrinótt, er afar ósátt við ummæli svila síns í garð eiginmanns hennar. Hún segir málið eiga sér lengri og flóknari sögu – ekkert réttlæti þó gjörðir eiginmannsins. Hún segir mann sinn barngóðan. 26.7.2009 15:27
Fyrsta aflanum landað í Bakkafjöruhöfn Fyrsta aflanum í nýrri Bakkafjöruhöfn var landað í gær. Rúm sextíu ár eru liðin frá því að síðasta afla var landað á Landeyjarsandi. Aflinn, þrír þorskar, liggur nú í nætursalti. 26.7.2009 13:53
Átta látist í eldum í Suður evrópu Átta hafa látist í miklum eldum sem geisað hafa í Suður Evrópu undanfarna daga. Hitabylgja og miklir vindar hafa hamlað slökkvistarfi. 26.7.2009 13:27
Sex létust í eldsvoða í Stokkhólmi Að minnsta kosti sex létust í eldsvoða sem braust út í íbúðarblokk í Rinkeby í vesturhluta Stokkhólms í nótt. Fimm þeirra sem létust voru börn og ungmenni. 26.7.2009 12:57
Erilsamt á Góðri stundu Töluverður erill var hjá lögreglunni á Grundarfirði í nótt vegna ölvunar og óspekta en þar stendur yfir bæjarhátíðin á Góðri stundu. Hátt í tvö þúsund manns eru í bænum vegna hennar. 26.7.2009 09:53
Mikil ölvun á Mærudögum Lögreglan á Húsavík hafði í nógu að snúast í nótt en um helgina hafa staðið yfir Mærudagar þar í bæ. Að sögn lögreglu er margt fólk í bænum í tengslum við hátíðina og var mikið um ölvun og smápústra í nótt. Enginn mun þó vera í haldi lögreglu eftir nóttina. 26.7.2009 09:49
Reynt að brjótast inn í Árbæjarkirkju Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og gistu ellefu manns fangageymslur. Töluverð ölvun var í miðbænum og voru fimm teknir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir fíkniefnaakstur. 26.7.2009 09:45
Útlendingar fá ekki að gefa blóð Útlendingar sem búsettir eru í Danmörku þurfa að hafa náð fullkomnu valdi á dönsku til þess að mega gefa blóð, samkvæmt nýjum reglum. Reglurnar hindra þar með þúsund borgara í að gefa blóð, segir danska blaðið Politiken. 26.7.2009 09:00
Bresk stjórnvöld gagnrýnd vegna svínaflensunnar Nefnd á vegum breska þingsins gagnrýnir stjórnvöld þar í landi harðlega fyrir viðbrögð við svínaflensunni í skýrslu sem kemur út í vikunni. 26.7.2009 08:00
Berserksgangur á Barðaströnd hluti af fjölskylduerjum - myndir Maðurinn sem handtekinn var af sérsveit lögreglunnar á Barðaströnd í fyrrinótt, rústaði hús sem er í eigu systra hans. Systurnar höfðu nýverið keypt húsið af móður sinni. Mágur mannsins segir börnin sín ekki lengur þora að koma með barnabörnin á staðinn vegna mannsins. Maðurinn er laus úr haldi lögreglu. 26.7.2009 00:01
Mögulegt að VR fari út úr ASÍ Rætt hefur verið meðal nokkurra stjórnarmanna í VR að félagið fari út úr ASÍ meðal annars vegna þess að það þyki of kostnaðarsamt. Formaður VR segir það vel koma til greina, þó taka þurfi slíka ákvörðun að vandlega íhuguðu máli. 25.7.2009 18:45
Einkafyrirtæki sinnir minniháttar umferðaróhöppum Einkarekið fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem starfar fyrir tryggingafélögin sinnir nú minniháttar umferðaróhöppum í stað lögreglunnar. Fyrirtækið sinnti hátt í þrjú þúsund óhöppum í fyrra. 25.7.2009 18:28
Allt bendir til að aðildarumsókn Íslands verði samþykkt Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir allt benda til þess að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði samþykkt á fundi utanríkisráðherra sambandsins á mánudag. Ekki er að vænta andstöðu frá Bretum og Hollendingum. Aðild Íslands getur styrkt Evrópusambandið að mati utanríkisráðherra Litháen. 25.7.2009 18:06
Leiðrétting vegna fréttar um einelti Í frétt sem birtist á Vísi.is í gær og fjallaði um eineltismál á alþingi var rætt við Helgu Björk Magnúsdóttur, sem er í samstarfshópi um vinnuvernd á Íslandi varðandi einelti. Í niðurlagi fréttarinnar var því haldið fram að Helga væri ekki ókunnug einelti þar sem sonur hennar hefði svipt sig lífi í kjölfar eineltis. 25.7.2009 17:08
Víkingasveit yfirbugaði Barðastrandarbyssumann 2002 Maðurinn sem sérsveit lögreglu yfirbugaði á Barðaströnd í morgun hefur áður komið við sögu lögreglu vegna svipaðra mála. Hann var yfirbugaður af Víkingasveit lögreglunnar í ágúst 2002 eftir þriggja klukkustunda umsátur fyrir utan heimili mannsins á Álftanesi. 25.7.2009 15:06
Býður lambalæri í fundarlaun fyrir stolið fellihýsi Formaður Landsambands sauðfjárbænda býður veglegt lambalæri í fundarlaun fyrir þá sem finna fellihýsi sem stolið var af honum um síðustu helgi. Hann segir fundarlaunin afar freistandi og hefur ekki trú á öðru að fólk hafi augun hjá sér. 25.7.2009 13:24
Sprengjuárás við lögreglustöð í Afganistan í morgun Sjálfsmorðssprengjuárás varð í morgun við lögreglustöð í borginni Khost sem er í austurhluta Afganistan. Engar fregnir eru af dauðsföllum enn sem komið er en talið er að einhverjir hafi særst í árásinni. 25.7.2009 13:15
Snéri aftur heim til Hondúras í morgun Manuel Zelaya, forseti Hondúras, snéri aftur til heimalands síns í morgun aðeins mánuði eftir að hann var hrakinn frá völdum. Um táknrænan atburð var að ræða og sneri Zelaya aftur yfir landamærin til Níkaragúa stuttu síðar. 25.7.2009 13:10
Landhelgisgæslan siglir til móts við hollenska skútu Landhelgisgæslunnu bárust boð kringum kvöldmatarleyti í gærkvöldi um gervihnött vegna hollenskrar skútu á leið frá Grænlandi til Íslands sem átti í vandræðum þar sem mastur skútunnar brotnaði í slæmu veðri daginn áður. 25.7.2009 12:55
Ráðið niðurlögum elds í Hátúni - myndir Tekist hefur að ráða niðurlögum eldsins sem kom upp í íþróttahúsi Íþróttafélags fatlaðra í morgun. Eldurinn kviknaði laust upp úr klukkan tíu í morgun. Upptök eldsins má rekja til þess að iðnaðarmaður var að vinna með eld við þéttingar á þaki hússins. Maðurinn slapp ómeiddur en hann var einn í húsinu. 25.7.2009 12:10
Börn á leikskólaaldri skutu systkini sín Tvö börn á leikskólaaldri skutu og særðu önnur börn í tveimur tilvikum í Bandaríkjunum. Þriggja ára drengur skaut fjögurra ára gamlan bróður sinn í Gray Court í Suður Karólínu, með 22 kalíbera skammbyssu á fimmtudag. Í morgun skaut svo fjögurra ára drengur tveggja ára systur sína. 25.7.2009 11:26
Eldur í þaki íþróttahúss fatlaðra Eldur kviknaði á þaki íþróttahúss Íþróttafélags fatlaðra að Hátúni 14 í morgun og allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru nú á vettvangi. 25.7.2009 10:47
Afvopnunarviðræður halda áfram í lok næsta mánaðar Afvopnunarviðræðum Rússa og Bandaríkjamanna verður framhaldið í lok næsta mánaðar en sendinefndir ríkjanna funduðu í Genf í Sviss nú í vikunni. START samkomulagið frá árinu 1991 sem kveður á um fækkun kjarnorkuvopna rennur út í lok þess árs. Bæði ríkin hafa lýst yfir vilja til að endurnýja samkomulagið til tíu ára. 25.7.2009 10:23
Nauðlenti á flugvellinum í Mosfellsbæ Enginn slasaðist þegar lítil flugvél nauðlenti á flugvellinum í Mosfellsbæ rétt eftir klukkan tíu í gærkvöldi. Að sögn rannsóknanefndar flugslysa hlekktist vélinni á í flugtaki. Rannsóknanefndin mun skoða vélina nánar í dag. 25.7.2009 10:07
1700 ungmenni rekin úr tjaldbúðum í Noregi vegna svínaflensu Heilbrigðisyfirvöld í Noregi hafa kveðið 1700 ungmenni á brott frá tjaldbúðum í Vestur Noregi eftir að 15 ára gömul stúlka greindist með svínaflensu. Ungmennin voru samankomin á svæðinu til að taka þátt í alþjóðlegri útihátíð. Alls hafa nú 37 svínainflúensu tilfelli verið staðfest á svæðinu og er nú óttast að mun fleiri séu smitaðir. 25.7.2009 10:04
Heitavatnslaust í Grafarvogi Bilun varð á aðveituæð heitavatnsins við Dalhús í Grafarvogi og er af þeim sökum heitavatnslaust á Grafarvogssvæðinu. Unnið er að viðgerð og búist við að vatnið verði komið á um hádegisbil. 25.7.2009 09:59
Slegist við höfnina á Húsavík Töluverð ölvun var á Húsavík í nótt og erilsamt var hjá lögreglu vegna bæjarhátíðarinnar Mærudaga sem nú stendur yfir. Stöðva þurfti minniháttar ryskingar sem komu upp við höfnina og tilkynningar bárust lögreglu vegna ölvunar. Tveir bílar voru dældaðir en sá sem það gerði var gripinn stuttu seinna. Hátt í fimmtán hundruð manns eru staddir í bænum yfir helgina og fór hátíðin vel fram að sögn lögreglu. 25.7.2009 09:48
Rólegt á höfuðborgarsvæðinu Rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan var þrisvar sinnum kölluð til vegna ryskinga milli manna í miðbæ Reykjavíkur. Þá voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Engin alvarleg atvik komu þó á borð lögreglunnar en tveir menn fengu að gista fangageymslur vegna ölvunar. 25.7.2009 09:45
Byssumaður gekk berserksgang á Barðaströnd Lögreglunni á vestfjörðum barst tilkynning um miðnætti að maður gengi berserksgang á Barðaströnd, vopnaður skotvopni. Lögreglan á Ísafirði og Patreksfirði fór á staðinn en einnig var óskað aðstoðar sérsveitar lögreglu sem flutt var vestur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. 25.7.2009 09:41
Faraldurinn á byrjunarreit Líklegt þykir að yfir hundrað þúsund manns hafi smitast af svínaflensu í Bretlandi og hefur smituðum fjölgað um helming nú í vikunni. Í Bandaríkjunum er talið að fjöldi þeirra sem hafa smitast sé kominn yfir milljón. 25.7.2009 09:00