Loftrýmisgæslu verði hætt 28. júlí 2009 05:00 Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar og þingmaður Vinstri grænna. Mynd/Valgarður
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að leggja eigi niður Varnarmálastofnun um áramótin. Í fjárlögum næsta árs eigi að vera skýrt hvaða verkefni hennar verði lögð niður og hvert hin verði færð. Árni Þór vill leggja loftrýmisgæslu niður. „Mín skoðun er sú að það eigi að klára þetta ár. Ef við teljum að einhverjum verkefnum þurfi að sinna áfram komum við þeim fyrir annars staðar. Í fjárlagafrumvarpinu á stefnan að koma fram og það er stefna ríkisstjórnarinnar að leggja Varnarmálastofnun niður." Stofnunin auglýsti nýverið tvær stöður lausar til umsóknar, meðal annars umsjón með mannvirkjum. Georg E. Friðriksson, sviðsstjóri mannvirkjasviðs, segir fastráðna starfsmenn 54, en að auki séu nokkrir í tímabundnum verkefnum. Heildarstarfsmannafjöldi í sumar er 68. „Það kemur mér mjög á óvart ef stofnunin er að færa út kvíarnar, því það er yfirlýst stefna stjórnarinnar að starfsemi Varnarmálastofnunar verði hætt. Það er í gangi skoðun hvort verkefni sem þar eru megi sameina annarri starfsemi og öðrum verkefnum," segir Árni. „Það kann vel að vera að einhverjum verkefnum megi koma fyrir annars staðar, en svo eru þarna áreiðanlega líka verkefni sem má bara leggja niður og óþarfi er að við sinnum. Hugmyndin í umræðum um að leggja starfsemina niður var sú, að það væri óþarfi fyrir okkur að vera í þessu hernaðarbrölti almennt, hvað þá í því efnahagsástandi sem nú ríkir." Loftrýmisgæsla hefst á ný 6. ágúst en hana annast um 140 bandarískir hermenn, en áður hafa meðal annars Norðmenn og Frakkar sinnt henni. Árni Þór segir að klára verði gerða samninga. Hann telji þetta þó óþarft. „Það mat mitt er stutt niðurstöðu nefndar sem vann áhættumat fyrir Ísland. Vel má vera að loftrýmisgæslan þjóni hagsmunum Atlantshafsbandalagsins, en hún er ekki nauðsynleg fyrir öryggi Íslands."
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira