Fleiri fréttir

Innbrot á Akureyri

Brotist var inn í mannlausa íbúð á Akureyri í gærkvöldi og þaðan meðal annars stolið DVD-tæki og tölvuprentara.

Verulegar tafir á ferðum Herjólfs

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fór ekki kvöldferðina frá Vestmannaeyjum fyrr en laust fyrir klukkan þrjú í nótt og kom til Þorlákshafnar um klukkan sex í morgun.

Reykskynjari bjargaði málunum

Tvær manneskjur sluppu ómeiddar þegar eldur kviknaði í sumarbústað í landi Efri-Reykja í Laugardal í Bláskógabyggð um þrjúleytið í nótt.

Maður féll ofan af húsþaki

Karlmaður slasaðist og missti meðvitund þegar hann féll nokkra metra ofan af húsþaki á Barðaströnd, skammt vestan við Brjánslæk, í gærkvöldi.

Bændur uggandi eftir beljudóm

Breskir kúabændur óttast hið versta eftir að héraðsdómur þar í landi úrskurðaði konu í vil sem hafði orðið fyrir beljuárás.

Ákærður fyrir að myrða mömmu sína

Hinn tuttugu og sex ára gamli Wehinmi Metsagharun, sem býr í Bretlandi hefur verið ákærður fyrir að myrða móður sína. Líkami hennar fannst á heimili hennar í Kenbury Gardens í Londin þann fjórða janúar.

Hvar er Karen?

Leit stendur enn yfir að þrettán ára stúlku, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær, en hennar hefur verið saknað frá því á fimmtudagskvöld. Stúlkan heitir Karen Lind Sigurpálsdóttir.

Stálin stinn á milli stórveldanna

Obama Barrack, forseti Bandaríkjanna er kominn til Rússlands í opinbera heimsókn en þegar er komið babb í bátinn. Stuttu eftir að hann lenti bárust þær fregnir að mögulegt væri að Rússar myndu slíta viðræðum um kjarnorkuvopn.

Lofsöng Landsbankann og Icesave rúmu hálfu ári fyrir hrun

Davíð Oddsson er tvísaga um viðvaranir sínar um erlenda innstæðureikninga íslensku bankanna. Í Morgunblaðinu í dag segist hann ítrekað hafa sagt bankastjórum Landsbankans í fyrra að þeir gætu ekki endalaust safnað peningum erlendis með ríkisábyrgð. Í viðtali við breskan fréttamann á sama tíma lofsöng hann hins vegar Landsbankann og sparnaðarreikningana.

Hleypur milli Reykjavíkur og Akureyrar

Gunnlaugur Júlíusson langhlaupari lagði í morgun upp í hlaup milli Reykjavíkur og Akureyrar og áformar að vera sex daga á leiðinni. Tilgangurinn er að safna fé til styrktar Grensásdeild Landspítalans.

Óvissa um vegagerðina yfir Lyngdalsheiði

Vegagerðin hefur gefið verktakafyrirtækinu Klæðningu frest út þessa viku til að gera grein fyrir því hvernig það ætli að ljúka gerð nýja vegarins um Lyngdalsheiði. Vinna hefur legið niðri í tvo mánuði.

Ólafur Þór Hauksson: Er hlutlaus varðandi afsögn ríkissaksóknara

„Hann beindi fyrirspurn til okkar um það hvort Eva talaði í nafni embættsins og það gerir hún ekki," segir sérstakur saksóknari efnahagshrunsins, Ólafur Þór Hauksson, spurður hvort það sé rétt að hann hafi látið Valtý Sigurðsson, ríkissaksóknara fá skriflegt plagg um að Eva Joly talaði ekki í krafti embættisins þegar hún krafðist afsagnar Valtýs.

Sérstakur saksóknari afneitar kröfu Evu Joly skriflega

„Þetta er ekki sagt í hans embætti. Ég er með það skriflegt frá honum," segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sem segist hafa skriflegt plagg frá Ólafi Þór Haukssyni að krafan hennar Evu er ekki sett fram í nafni embættis sérstaks saksóknara og þar kemur fram að Ólafur er henni ekki sammála.

Enn leitað að unglingsstúlku

Leit stendur enn yfir að þrettán ára stúlku, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær, en hennar hefur verið saknað frá því á fimmtudagskvöld. Stúlkan heitir Karen Lind Sigurpálsdóttir.

Davíð vitnaði í vitlausa skýrslu - önnur gögn finnast ekki

Í viðtali sem Agnes Bragadóttir tekur við Davíð Oddsson, fyrrum seðlabankastjóra, segist hann furða sig á því að stjórnvöld hafi ekki opinberað mikilvæga skýrslu sem hafi verið unnin af evrópskri nefnd á vegum OECD undir stjórn Jean Claude Trichet, núverandi seðlabankastjóra Seðlabanka Evrópu.

Mildi að keyra á ljósastaur

Maður um tvítugt sofnaði undir stýri og keyrði á ljósastaur á Óshlíðarvegi, milli Bolungarvíkur og Hnífsdals um þrjúleytið í nótt.

Ölvun á Humarhátíð

Humarhátíðin á Höfn gekk ágætlega fyrir sig í nótt samkvæmt lögreglunni á Höfn.

Orkuveitan býður völdum í lax þrátt fyrir niðurskurð

Orkuveita Reykjavíkur býður kjörnum fulltrúum og völdum starfsmönnum Orkuveitunnar í laxveiði í Elliðará á besta tíma í sumar. Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Þorleifur Gunnlaugsson, sat sinn fyrsta fund hjá stjórn Orkuveitunnar á föstudaginn og lagði fram fyrirspurnir um hversu marga daga Orkuveitan hefði tekið frá, hverjum er boðið og svo hver kostnaðurinn sé af boðsferðunum.

Utanríkisráðuneytið kannast ekki við Trichet-gögnin

Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins Urður Gunnarsdóttir segist í samtali við fréttastofu ekki kannast við neinar skýrslur eða gögn sem Davíð Oddsson fyrrverandi seðlabankastjóri vísar til í Morgunblaðinu í dag.

Friðsælt á hestamóti

Fjórðungsmót Hestmanna á Kaldármelum hefur farið vel fram að sögn lögreglunnar á Borgarnesi. Um tvö þúsund hestamenn hafa sótt mótið. Lögreglan stöðvaði einn ökumann grunaðan um ölvunarakstur. Honum var gert að gangast undir blóðrannsókn og verður að líkindum sviptur í kjölfarið.

Stútur sviptur á staðnum

Einn maður var tekinn ölvaður undir stýri hjá lögreglunni á Selfossi en nóttin var erilsöm en stóráfallalaus. Ökumaðurinn ölvaði var færður á lögreglustöð og þar kom í ljós að hann var verulega yfir leyfðum mörkum. Var hann því sviptur á staðnum.

Fullar fangageymslur á Írskum dögum

Nóttin hjá lögreglunni á Akranesi var erilsöm en stóráfallalaus. Nokkuð var um ölvunarakstur. Þá stöðvaði lögreglan nokkra ökumenn sem grunaðir eru um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Þrettánda heppnasta manneskja í heimi

Unglingstúlkan Baya Bakari er ein af þrettán heppnustu manneskjum veraldar en hún lfiði ein af hið hræðilega flugslys sem átti sér stað í síðustu viku nærri Kómoro-eyjunum.

Fjölskyldan vill steypa Jackson í jörðina

Fjölskylda poppgoðsins Michael Jacksons vill steypa líkkistu hans í jörðina þannig að brjálaðir aðdáendur geti ekki grafið kistuna upp eða vanvirt gröf hans að öðru leytinu til.

Tveggja mánaða kvóti klárast á rúmri viku

Fiskistofa áætlar að nýútgefinn strandveiðikvóti Norðvesturlands, sem átti að endast í tvo mánuði, klárist um næstu helgi. Æðisgengið kapphlaup virðist hafið um strandveiðarnar.

Davíð Oddsson: Gætum stefnt í eilífðar fátækt

„[...] Þetta er ótrúlegt klúður sem stjórnvöld hafa komið landinu í og við gætum stefnt hér hraðbyr í einhverja eilífðarfátækt,“ segir Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra til þrettán ára og nú síðast Seðlabankastjóri í viðtali við Agnesi Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kom út í kvöld.

Davíð vill ekki borga

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og nú síðast Seðlabankastjóri, segist ekki vilja greiða Icesave-skuldir án þess að reynt verði að fara dómstólaleiðina á undan. Þetta kemur fram í viðtali sem Agnes Bragadóttir tók við hann í sunnudagslaði Morgunblaðsins.

Kynlífskeppni á herskipi til rannsóknar

Áströlsk yfirvöld rannsaka nú skipverja á herskipinu HMAS Success en staðfestur grunur leikur á að skipverjar stundi heldur nýstárlega kynlífskeppni um borð.

Brown vill refsa Burma

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, útilokar ekki að frekari refsiaðgerðir gagnvart Burma eftir að ríkisstjórn landsins meinaði Ban Ki Moon, framkvæmdarstjóra Sameinuðu Þjóðanna, að hitta leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Aung San Suu Kyi.

Brúarsmíði í uppnámi vegna vantrausts á íslenskum bönkum

Brúarsmíði yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi er í uppnámi þar sem verktakafyrirtækið KNH ehf., þarf að staðgreiða fyrir tækjabúnaði þar sem breskt fyrirtæki treystir ekki íslenskum bönkum. Þetta kemur fram á ísfirska fréttavefnum bb.is.

Fannst fjórum árum eftir andlát

Hin áttatíu og níu ára gamla Isabella Purves fannst látin á heimili sínu í Edinborg í Skotalandi fyrir stuttu. Aftur á móti fannst hún fjórum árum eftir að hún lést.

Sara Palin segir af sér

Sarah Palin, fyrrum varaforseta-frambjóðandi repúblikana, hefur sagt af sér sem fylkisstjóri Alaska. Afsögnin kemur eins og blaut tuska í andlitið á samflokksmönnum hennar vestra en sextán mánuðir eru eftir af kjörtímabili hennar.

Þyrla í umferðareftirliti

TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð við umferðareftirlit í gærkvöld og fór með lögreglunni á Hvolfsvelli alla leið austur á Hornafjörð.

Lýst eftir unglingsstúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kareni Lind en hún sást síðast í gærkvöldi um átta en ekkert hefur spurst til hennar síðan.

Friður á Írskum dögum

Engin stórmál hafa komið upp hjá lögreglunni á Akranesi en þar fara nú í hönd útihátíðin Írskir dagar. Að sögn varðstjóra var nokkuð um ölvun og talsverður erill á lögreglu en nóttin gekk stóráfallalaust fyrir sig.

Fíkniefnafundur í Borgarnesi

Lögreglan á Borgarnesi stöðvaði mann sem ók undir áhrifum fíkniefna í nótt. Grunur vaknaði að finna mætti fíkniefni í bílnum og var því fíkniefnahundur fengin til þess að leita í honum. Við það fannst nokkurt magn af kannabis-efnum.

Brutust inn í gáma

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna þriggja líkamsárása í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þá var einnig tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi. Allar árásirnar áttu sér stað við skemmtistaði. Lögreglan tók skýrslur af þeim sem voru á vettvangi en engin kæra liggur fyrir vegna árásanna.

Sjá næstu 50 fréttir