Fleiri fréttir

Fangi frá Guantanamo kominn til New York

Fyrsti fanginn úr Guantanamo-fangabúðunum sem rétta skal yfir fyrir almennum dómstól í Bandaríkjunum er kominn til New York. Hann er grunaður um aðild að al Kaída hryðjuverkasamtökunum.

Kona lést í eldsvoðanum á Kljáströnd

Kona á níræðisaldri lést í bruna í sumarbústað á Kljáströnd skammt frá Grenvík í morgun. Slökkviliðinu í Grýtubakkahreppi barst tilkynning um eldinn um hálf níu leytið í morgun. Konan var ásamt eiginmanni sínum inni í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en maðurinn var fluttur með brunasár á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.

Reykvélin: Aftur reykur í sömu flugvél

Flugvél frá Icelandair á leið til Bergen var snúið við í morgun vegna reyklyktar í farþegarými. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Íbúi heyrði fyrst af eldsvoðanum í fréttunum

„Ég vaknaði upp við lætin. Síðan bölvaði ég í hljóði og hugsaði með mér af hverju menn gætu ekki bara farið að vinna klukkan átta eins og allir aðrir," segir íbúi í blokkinni við Einivelli sem kviknaði í snemma í morgun. Par var flutt með reykeitrun á sjúkrahús en íbúinn sem Vísir ræddi við bjó beint fyrir neðan þau.

Þrír dæmdir dópsmyglarar handteknir í gær

Fíkniefnalögreglan handtók í gær þrjá þekkta dópsmyglara í tengslum við rannsókn á gríðarlega umfangsmiklu fíkniefnamáli. Hinir handteknu eru Sigurður Ólason, Rúnar Ben Maitsland og Ársæll Snorrason.

Inflúensufaraldur: Annað tilfelli á Íslandi

Sextugur karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með inflúensu A (H1N1) og er það annað tilfelli veikinnar sem staðfest er hér á landi. Hann er á batavegi. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgengist eftir heimkomuna en smit hjá öðrum hefur ekki verið staðfest.

Setja fram aðgerðir vegna ástandsins í efnahagsmálum

Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um nauðsynlegar aðgerðir í ljósi alvarlegs ástands í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þingflokkurinn stendur allur að tillögunni. Í henni eru settar fram hugmyndir að lausnum og aðgerðum sem mikilvægt er að ráðist verið í hið allra fyrsta. Íslenska þjóðin upplifir nú samdrátt og atvinnuleysi og við þessu þarf að bregðast hratt.

Spítali í Manchester tapaði 1,3 milljörðum á bankahruninu

Christie Cancer spítalinn í Manchester, gerði þá kröfu á ríkisstjórn Bretlands að hún ábyrgðist þær 6,5 milljónir punda sem spítalinn tapaði með íslenska bankahruninu. Spítalinn lagði þessa fjármuni inn í Kaupthing Edge innlánsreikning hjá Singer & Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í London.

Einn á leið á slysadeild eftir bruna í sumarbústað

Slökkviliðið á Akureyri var beðið um aðstoð frá Slökkviliðinu á Grenivík rétt fyrir klukkan 9:00 í morgun vegna bruna í sumarbústað á Kljáströnd. Samkvæmt slökkviliðinu á Akureyri er búið að slökkva eldinn en einn maður er á leið á slysadeild slasaður eftir brunann.

Á fimmta hundrað sektir á einni og sömu uppákomu

Lögregla í Vandel á Suðaustur-Jótlandi hafði nóg að gera um helgina þegar 410 sektarmiðar voru skrifaðir á einni og sömu uppákomunni, hinni ólöglegu kappaksturshátíð „Hraðskreiðasti bíll landsins" eða „Danmarks hurtigste bil“.

Ástralar herða netlokanir

Fjöldi ástralskra fyrirtækja sem lokar fyrir aðgang að ýmsum samskiptasíðum á Netinu hefur margfaldast undanfarið.

Tónlistarhátíðir fara ekki varhluta af kreppunni

Fyrirsjáanlegt er að nokkrar þekktar tónlistarhátíðir í Evrópu, til dæmis Hróarskelduhátíðin í Danmörku og ungverska Sziget-hátíðin, muni draga að sér töluvert færri gesti en í meðalári vegna þeirra efnahagsþrenginga sem nú herja á íbúa álfunnar.

Tóku stóra heróínverksmiðju talibana

Breskir hermenn í Afganistan hafa lagt hald á 100 kíló af heróini og fimm og hálft tonn af ópíumpasta sem hefði smásöluverðmæti að jafnvirði 13 milljarða króna eftir að þeir réðust til inngöngu í stóra heróínverksmiðju talibana í Sangin-dalnum sunnarlega í landinu.

Drekkti 11 ára syni sínum vegna hárra skólagjalda

Bresk kona á fimmtugsaldri játaði fyrir rétti í gær að hafa orðið ellefu ára gömlum syni sínum að bana í desember á grundvelli þess að hún gat ekki lengur staðið undir greiðslu skólagjalda við einkaskóla sem hann sótti.

Áfram róstusamt í Acapulco

Þrír lögreglumenn féllu í árás byssumanna í mexíkósku borginni Acapulco í gær, aðeins tveimur dögum eftir mannskæðan skotbardaga hersins við félaga í eiturlyfjahring þar sem 18 manns lágu í valnum og ferðamenn áttu fótum fjör að launa en borgin er vinsæll ferðamannastaður.

Tveir ammoníaklekar í gær

Kalla þurfti til lögreglu og slökkvilið í gærkvöldi vegna ammoníaksleka í Ísverksmiðjunni í Grundarfirði. Tveir menn sem voru að störfum í verksmiðjunni þegar lekans varð vart munu ekki hafa hlotið skaða af.

Eldsvoði á Einivöllum - tveir með snert af reykeitrun

Eldur kom upp í fjögurra herbergja íbúð á Einivöllum í Hafnarfirði. Tveir voru í íbúðinni og voru þeir fluttir á slysadeild með snert af reykeitrun. Að sögn slökkviliðs gekk slökkvistarfið vel en tilkynnt var um eldinn klukkan tuttugu mínútur yfir fimm og voru menn að ljúka störfum um sexleytið.

Stjórnin beðin um útfærslur

Aðilar vinnumarkaðarins ræddu í gær við stjórn og stjórnarandstöðu um það hvernig hægt væri að tryggja stöðugleika þrátt fyrir þær ögranir sem bíða þjóðarinnar í ríkisfjármálum. „Við kölluðum eftir því að þeir færu í gegnum þessar stærðir og leituðu leiða með okkur í öllum þessum málum,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir fundinn. „Mér heyrðist á viðbrögðum að þeir hefðu hug á því.“ Hann segir ASÍ vilja fá að sjá útfærslu ráðuneytanna á því hvað eigi að gera í ríkisfjármálunum næstu ár til lengri og skemmri tíma.

Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu

Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fór fram á það á Alþingi í gær að þjóðin fengi að greiða atkvæði um samninginn um Icesave-lánið. Þingmenn Borgarahreyfingar hafa áður lýst sömu skoðun.

Vinsælasta grillkjötið

Um tvö tonn af hrefnukjöti hafa selst í verslunum Krónunnar en það kom fyrst í búðir um mánaðamótin. „Þetta er alveg glæsilegt, salan er núna um þrisvar sinnum meiri en síðast,“ segir Ólafur Júlíusson, sölustjóri Krónunnar.

Á móti erfðabreyttu byggi

Náttúrulækningafélag Íslands leggst alfarið gegn því að fyrirtækinu Orf líftækni ehf. verði veitt leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi sem inniheldur lyfjaprótín. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Eins og fram hefur komið í fréttum stefnir Orf líftækni ehf. að því að hefja slíka ræktun í Gunnarsholti í sumar.

Sömu kröfur gerðar til bankastjóranna

Tveir voru metnir mjög vel hæfir í stöðu Seðlabankastjóra, Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson, en þrír voru metnir vel hæfir. Þeirra á meðal voru Yngvi Örn Kristinsson og Tryggvi Pálsson. Báðir sóttu þeir einnig um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra og voru metnir mjög vel hæfir til hennar. Sömu hæfniskröfur eru gerðar til seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra.

Ammoníaksleki í ísverksmiðju Grundarfirði

Kalla þurfti til Lögreglu og Slökkvilið í kvöld vegna ammoníaksleka í Ísverksmiðjunni í Grundarfirði. Tveir menn sem voru að störfum í verksmiðjunni þegar lekans var vart munu ekki hafa hlotið skaða af.

Brown nýtur meiri stuðnings en ætlað var

Svo virðist sem Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sé hólpinn um stundarsakir hvað varðar hans pólitísku framtíð. Í kvöld fundaði Brown með þingflokki Verkamannaflokksins og eftir fundinn lýstu margir þingmenn yfir stuðningi við forsætisráðherran.

Segja Vinstri Græna senda flugumenn á mótmæli

Á vef Frjálslynda flokksins er því haldið fram að Vinstri Grænir hafi verið með útsendara á mótmælunum sem áttu sér stað á Austurvelli í dag. Þeir hafi ekki verið þar til að mótmæla Icesave samkomulaginu, heldur til að hrópa kaldhæðnislegar athugasemdir.

Búið að stöðva ammóníakleka á Grenivík

Slökkviliðsmönnum frá Akureyri hefur tekist að stöðva ammoníakleka sem kom upp í togaranum Frosta sem liggur við bryggju á Grenivík, að því er fram kemur á fréttavefnum Akureyri.net.

Vill að Samkeppniseftirlitið kanni hækkanir olíufélaga í lok maí

Olíufélögin hafa í tæpar tvær vikur ofrukkað viðskiptavini sína um milljónir króna. Þau lækkuðu verðið í dag og ætla að minnsta kosti tvö þeirra að endurgreiða það sem var oftekið. Framkvæmdastjóri FÍB ætlar óska eftir því að Samkeppniseftirlitið rannsaki hækkanir olíufélaganna í lok maí.

Versti samningur sem íslensk ríkisstjórn hefur hugleitt að skrifa undir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins var harðorður í umræðum um Icesavesamningana á Alþingi fyrr í dag. Hann sagði að annaðhvort hefðum við ríkisstjórn sem áttaði sig ekki á grundvallaratriðum í efnahagsmálum eða þá ríkisstjórn sem væri vísvitandi að blekkja þingið.

Brotist inn í Fríkirkjuveg 11

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning þess efnis nú í kvöld að um 20 manns höfðu brotið sér leið inn í Fríkirkjuveg 11. Lögreglan er mætt að svæðið.

Róleg stemning á Fríkirkjuvegi

Að sögn Lögreglu er róleg stemning við Fríkirkjuveg þar sem að 20-25 manns brutust inn um níuleytið í kvöld. Enginn hefur verið handtekinn.

SAS-farþegar til Osló

Farþegar sem voru með flugvél SAS sem þurfti að lenda í Bergen vegna bilunar í hreyfli, eru komnir til Osló með öðru flugi, samkvæmt Bryndísi Torfadóttur, framkvæmdastjóra SAS hér á landi.

Indefence hópurinn: Bretar beittu okkur þrýstingi í Icesavesamningum

Átta meðlimir hins svokallað Indefence hóps áttu fund með Svavari Gestssyni sem fór fyrir Icesave samninganefndinni í morgun. Ólafur Elíasson einn af meðlimum hópsins segir að eftir fundinn hafi þeir endanlega sannfærst um að samningarnir séu afar slæmir og það sé algjörlega óhugsandi að þingmenn geti með samvisku sinni skrifað undir fyrirliggjandi samkomulag. Hann segist hafa fengið það staðfest hjá einum af æðstu embættismönnum þjóðarinnar að Bretar hafi beitt okkur alþjóðlegum þrýstingi í samningaviðræðunum.

100 á Icesave-mótmælum

Hundrað manns eru mættir á Austurvöll til þess að mótmæla Icesave-samkomulaginu sem var undirritað á miðnætti aðfaranótti laugardags.

Fjölskyldur fórnarlamba Omagh árásarinnar fá skaðabætur

Fjórir meðlimir samtakann Real IRA voru í dag dæmdir til þess að greiða fjölskyldum fórnarlamba Omagh sprengjuárásarinnar árið 1998 skaðabætur. Tuttugu og níu létu lífið í árásinni, þar á meðal kona sem var ólétt af tvíburum. Yfir 200 manns særðust í árásinni en Real IRA er hluti af írska lýðveldishernum og sprengdu bílsprengju á markaði í Omagh í ágúst árið 1998.

Lýðvarpið: Mótmæli í beinni

Lýðvarpið FM100.5 sendir út frá Austurvelli klukkan þrjú í dag. Í tikynningu frá Lýðarpinu segir að Steingrímur J Sigfússon sé lifandi dæmi um svikin kosningaloforð. Það og fleira verður til umræðu í sérstakri útsendingu Lýðvarpsins sem verður útvarpað beint frá mótmælunum um klukkan þrjú í dag.

N1 bíður átekta - Olís lækkar

Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segist bíða eftir svari frá fjármálaráðuneytinu varðandi vörugjaldshækkunina en Skeljungur tilkynnti um 12,5 króna lækkun á eldsneyti fyrr í dag. Framkvæmdarstjóri vörustýringarsviðs hjá Olís segir að bensín hjá þeim muni lækka um sömu krónutölu í dag.

Flugeldadólgar héldu vöku fyrir þingkonu og syni

Lögreglan fékk tilkynningu um klukkan fimm í morgun um að óprúttnir aðilar hefðu kveikt í skottertu. Fjölmargir vöknuðu við herlegheitin og meðal annars þingkona Borgarahreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir.

Sjá næstu 50 fréttir