Sömu kröfur gerðar til bankastjóranna Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. júní 2009 04:45 Sömu hæfniskröfur gilda um æðsta og næstæðsta stjórnanda Seðlabankans.
Tveir voru metnir mjög vel hæfir í stöðu Seðlabankastjóra, Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson, en þrír voru metnir vel hæfir. Þeirra á meðal voru Yngvi Örn Kristinsson og Tryggvi Pálsson. Báðir sóttu þeir einnig um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra og voru metnir mjög vel hæfir til hennar. Sömu hæfniskröfur eru gerðar til seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra. Í lögum um Seðlabanka Íslands segir það eitt að seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri „skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum." „Einu lagafyrirmælin eru um þessa prófgráðu," segir Jónas Haralz, formaður matsnefndar sem hafði það verkefni að meta hæfni umsækjenda um báðar stöðurnar. Um ástæðu þess að Tryggvi og Yngvi hafi verið metnir mjög vel hæfir til aðstoðarseðlabankastjóra en vel hæfir til Seðlabankastjóra, segir Jónas að ýmislegt geti komið til greina. „Það sem kæmi til greina væri til dæmis reynsla manna og verkefni sem þeir hafa unnið að," segir Jónas. Hann segist ekki geta gefið nákvæmari upplýsingar um hvað hafi ráðið niðurstöðu nefndarinnar. Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar sagði við aðra umræðu í meirihlutaáliti viðskiptanefndar um frumvarpið að sömu hæfniskröfur væru fyrir seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra. Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands, segir ræðuna geta verið lögskýringargagn ef málið fari til Umboðsmanns Alþingis eða til dómstóla. Hann segir að almenna reglan sé sú að sá sem veiti starf hafi vald til að ákveða hvað henti starfinu og hvað lagt sé áhersla á við matið. „Þótt sömu almennu hæfisskilyrði gildi getur verið einhver sérstök áhersla sem forsætisráðherra kann að leggja til grundvallar," segir Trausti. Birgir Ármannsson, sem flutti ræðu fyrir minnihluta viðskiptanefndar í umræðu um frumvarpið, segir að í lögunum hafi verið gert ráð fyrir að sömu hæfisskilyrði giltu um báðar stöðurnar. „Auðvitað er við ráðningar í störf byggt á einhverju mati og auðvitað getur verið mismunandi mat varðandi það hvort um aðal- eða aðstoðarseðlabankastjóra er að ræða," segir Birgir.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Sjá meira